Líf mitt í 5 réttum

Linda Björg Árna­dóttir fag­stjóri við Lista­há­skóla Íslands deilir minn­ingum af mat. Hún segir frá þeim fimm réttum sem hún tengir mest við og útskýrir af hverju.

Blómkálssúpa

Ég ólst ekki upp við að mat­ar­gerð væri í hávegum höfð á heim­il­inu. Heima var íslenskur heim­il­is­matur á borðum, eins og ORA-fiski­búð­ingur og soðnar kart­öflur. En mamma bjó stundum til blóm­káls­súpu sem hefur fylgt mér alla tíð. Ég hef bætt aðeins við upp­skrift­ina og elda hana nokkuð oft, við tölu­verðar vin­sældir. Súpan er bæði ein­föld og holl.

Upp­skrift:

1 meðal blóm­káls­haus

hálfur laukur

lít­ill sell­erstilkur

salt

pipar

græn­met­is­kraftur

ólífu­olía

Fyrst sker ég græn­metið í bita, set ólífu­ol­í­una í pott og steiki græn­metið aðeins. Ég set síðan vatn í pott­inn þannig að það fljóti yfir. Ég bæti síðan við svörtum pipar, salti og græn­met­is­krafti. Þegar græn­metið er orðið mjúkt af suð­unni veiði ég það upp úr vatn­inu og set í mat­vinnslu­vél. Ég mauka græn­metið og set aftur í pott­inn. Oft sýð ég græn­meti að morgni til að borða um kvöldið, því súpan er betri ef hún hefur fengið að standa aðeins.  

Moulles frittes

Þegar ég var nemi í París fór ég fyrst að borða kræk­ling, sem ég keypti þá ferskan á úti­mörk­uðum. Ég hef ein­fald­lega ekki orðið söm síðan og borða kræk­ling við hvert tæki­færi. Þeim fer fjölg­andi á Íslandi, mér til mik­illar gleði. 

Gnocchi al gorgonzola

Á þessum bestu árum mínum í París átti ég mér upp­á­halds­stað þar. Þetta var lít­ill ítalskur staður sem var lítið áber­andi, ekk­ert skilti var fyrir utan og inn­rétt­ingin lát­laus. Þetta var einn af þessum stöðum sem aðeins heima­menn þekkja. Þar var boðið upp á heima­lagað gnocchi al gorgonzola. Þetta er einn af mínum upp­á­halds­réttum og ég borða hann hvar sem ég kemst í hann. Ég var eitt­hvað að fikta við að búa hann til sjálf, en gafst upp. Hver veit nema ég reyni aftur. 

Lasagna

Nítján ára gömul bjó ég einn vetur á Spáni. Þar komst ég yfir þykka spænska mat­reiðslu­bók og í henni var upp­skrift að lasagna sem ég tel að sé einn af mínum bestu réttum, og ég bý það bara til fyrir spari­stundir. Mér fannst upp­skriftin frekar vera spænsk en ítölsk, en kjötið sem átti að fara í rétt­inn var nauta­hakk, skinka og ferskir lamba­heilar. Ég not­aði þetta allt nema lamba­heil­ana. Þeim sleppti ég.  

Tiramisu

Ég er engin sér­stök eft­ir­rétt­ar­mann­eskja en elska tiramisu. Ég hef reyndar aldrei reynt að búa það til, en ég átti einu sinni kærasta sem var mjög góður í því. Ef ég er á veit­inga­stað og það er í boði þá fæ ég mér alltaf tiramisu. 

Upp­skrift: 

Tiramisu er einn þekkt­asti eft­ir­réttur Ítalíu og til eru ýmsar útgáfur af honum. Hér er ein­föld en góð útgáfa af honum. 

4 egg

1 bolli sykur

2 dósir mascarpone ostur eða rjóma­ostur, sirka 400 g

200 g köku­fingur 

2 bollar mjög sterkt kaffi 

2 msk. amar­etto líkjör

Kakó til að sáldra yfir 

Aðferð:

Stíf­þeytið egg og sykur þar til mynd­ast þykk froða. Blandið ost­inum var­lega út í blönd­una og þeytið saman. Veltið köku­fingr­unum upp úr kaffi­blönd­unni og raðið með jöfnu milli­bili í form. Setjið helm­ing­inn af ostakrem­inu yfir og þekjið kök­urnar. End­ur­takið þannig að þetta sé lag­skipt kaka. Sléttið yfir­borðið og dreifið kakói yfir. Látið standa í kæli í 3–4 tíma. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár