Landnámsmennirnir hefðu ekki fengið hæli á Íslandi

Ef hinir upp­haf­legu kelt­nesku íbúar lands­ins hefðu komið sér upp útlend­inga­stofnun er ansi ólík­legt að hinir forn­frægu land­náms­menn Íslands hefðu fengið land­vist­ar­leyfi.

Landnámsmennirnir hefðu ekki fengið hæli á Íslandi
Straumur flótta­fólks Á þessu póst­korti reyndi Samúel Egg­erts­son að teikna upp mynd af því hvaðan land­náms­menn­irnir komu og hvar þeir lentu. Mynd: Samúel Eggertsson

Á síð­ustu árum, vegna stríðs­á­taka í Afríku og Mið-Aust­ur­löndum, hefur straumur flótta­fólks og hæl­is­leit­enda frá þessum svæðum auk­ist gríð­ar­lega. Þessir ein­stak­lingar, sem flestir eru ein­fald­lega að flýja vargöld í leit að betra lífi á frið­sælli stað, hafa víð­ast hvar fengið óblíðar mót­tökur. Hér á Íslandi sendum við til baka rúm­lega 3 af hverjum 4 ein­stak­lingum sem hér leita hælis.

Fyrstu nor­rænu land­náms­menn Íslands voru margir hverjir flótta­menn og hæl­is­leit­endur. Á land­náms­öld­inni, sem er sögð hefj­ast með land­námi Ingólfs Arn­ars­sonar 870 eða 874, sigldu þús­undir manna frá nágranna­lönd­unum, einkum Noregi, til Íslands, í leit að nýju upp­hafi. Margir af fyrstu land­náms­mönn­unum voru einmitt að flýja for­tíð sína, eftir að hafa lent upp á kant við vald­hafa, og sáu fram á að hefja nýtt líf á nýjum stað.

Forn­leifa­rann­sóknir und­an­far­inna ára benda til þess að hér hafi verið mun blóm­legri byggð en nokkrir Papar í sum­ar­leyfi, sem Ari fróði lýsir í Landnámu. Segjum nú sem svo að kelt­unum, sem virð­ast hafa verið hér áður en nor­rænir menn hófu ferðir sínar til lands­ins, hefði tek­ist að koma sér upp útlend­inga­stofnun og svip­aðri útlend­inga­lög­gjöf og Íslend­ingar hafa starfað eftir síð­ustu ára­tugi. Hefðu þá hinir dáðu land­náms­menn fengið land­vist­ar­leyfi?

Ingólfur Arnarson

Í hugum flestra er Ingólfur Arnarson hetja. Hvernig getur annað verið? Þar sem hann hangir í atgeirnum sínum á Arnarhól, í stafni vík­inga­skips með bumb­una út í loftið. Horfir yfir öll hót­elin þar sem einu sinni stóð borgin sem hann sáði fræ­inu að.

Þegar fer­ill Ingólfs er hins­vegar skoð­aður kemur í ljós að þeim dýrð­ar­ljóma sem hann er bað­aður er ef til vill ofaukið. Eins og margir hinna fyrstu Íslend­inga voru hendur Ingólfs löðr­andi í blóði þegar hann kom til lands­ins.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár