Landlæknir leiðréttir „misskilning“ Óttars – lagatúlkun ráðuneytisins opni á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið styðst við laga­túlkun sem gæti reynst Klíník­inni hag­stæð. Land­læknir telur túlk­un­ina gera það að verkum að einka­rekstur á sviði sér­hæfðrar þjón­ustu geti haldið áfram að vaxa.

Landlæknir leiðréttir „misskilning“ Óttars – lagatúlkun ráðuneytisins opni á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins

Land­læknir telur að túlkun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á heil­brigð­is­lögum geri það að verkum að einka­rekstur og einka­væð­ing á sviði sér­hæfðrar heil­brigð­is­þjón­ustu og sjúkra­hús­þjón­ustu geti haldið áfram að vaxa hér á landi. Slík þróun eigi sér stað í skjóli samn­ings Sjúkra­trygg­inga Íslands og Lækna­fé­lags og vand­séð sé hvernig heil­brigð­is­yf­ir­völd geti haft stjórn á því hvert opin­bert fjár­magn rennur til heil­brigð­is­mála og hvaða rekstr­ar­form verði ríkj­andi í íslensku heil­brigð­is­kerfi.

Embætti land­læknis sendi út til­kynn­ingu í gær vegna mis­skiln­ings sem gætir í umræðu um heil­brigð­is­þjón­ustu. Leið­réttir land­læknir bæði ummæli sem Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra lét falla á Alþingi þann 23. mars og full­yrð­ingu sem birt­ist í frétt Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir.

Þegar rætt var um mál­efni heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi þann 23. mars sagði Óttarr: „Það er ekki ég sem veiti starfs­leyfi fyrir starf­semi eða stofum, aðstöðu sér­fræð­inga úti í bæ, það er emb­ætti land­lækn­is­ins sem veitir starfs­leyfi fyrir stöð­inni.“ 

„Embætti land­læknis hefur ítrekað reynt að leið­rétta þann mis­skiln­ing að emb­ættið veiti leyfi til rekstrar heil­brigð­is­þjón­ustu“

Í til­kynn­ingu land­læknis segir hins vegar: „Embætti land­læknis (EL) hefur ítrekað reynt að leið­rétta þann mis­skiln­ing að emb­ættið veiti leyfi til rekstrar heil­brigð­is­þjón­ustu. Samkvæmt lögum um land­lækni og lýð­heilsu á land­læknir að stað­festa að fyr­ir­hug­aður rekstur heil­brigð­is­þjón­ustu upp­fylli fag­legar lág­marks­kröfur. Í lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu stendur að þegar um er að ræða svo­kall­aða sér­hæfða heil­brigð­is­þjón­ustu þurfi leyfi ráð­herra til rekstr­ar­ins.“

Starfsemi Klíníkurinnar eins og hver annar stofurekstur

Bendir land­læknir á að emb­ættið hafi þegar stað­fest að starf­semi Klíník­ur­innar Ármúla með fimm daga legu­deild upp­fylli fag­legar lág­marks­kröfur um sér­hæfða sjúkra­hús­þjón­ustu.

„Embættið hefur því bent ráðu­neyt­inu á að sam­kvæmt skiln­ingi þess á lögum þurfi leyfi ráð­herra til þess að hefja rekstur legu­deildar með til­heyr­andi aðgerðum.“ 

 

Ráðu­neytið lýsti því hins vegar yfir í des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar Kristján Þór Júl­í­us­son var heil­brigð­is­ráð­herra, að það væri ósam­mála túlkun emb­ætt­is­ins; líta bæri á rekstur Klíník­ur­inn sem hvern annan stofu­rekstur lækna sem ekki þyrfti leyfi ráð­herra. 

Eins og Stundin hefur áður bent á teng­ist fyr­ir­tækið Klíníkin Sjálf­stæð­is­flokknum sterkum böndum. Á meðal hlut­hafa eru Hrólfur Ein­ars­son, náfrændi Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerð­ar­kona sem verið hefur einn stærsti hlut­hafi Morg­un­blaðs­ins und­an­farin ár, Ásta Þór­ar­ins­dóttir sem Bjarni Bene­dikts­son skip­aði sem stjórn­ar­for­mann Fjár­mála­eft­ir­lits­ins árið 2015 og Ásdís Halla Braga­dóttir, stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins sem er fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár