Kaupfélagið boðaði til leynifundar í Þjóðmenningarhúsinu

Lánasafn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga er undir í nýjum búvöru­samn­ingum. Hafa lánað kúa­bændum fé með veði í mjólk­ur­kvót­anum. Til stendur að afnema kvóta­kerfið þar sem kerfið er talið óhag­kvæmt fyrir neyt­endur.

Miklir hagsmunir
Miklir hags­munir Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefur mikla hags­muni af því að koma í veg fyrir að kvóta­kerfið í mjólkur­iðn­aði verði afnumið. Þórólfur Gíslason er for­stjóri kaup­fé­lags­ins og Bjarni Mar­ons­son stjórn­ar­for­maður þess.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga boð­aði for­svars­menn samn­inga­nefndar bænda og for­svars­menn Mjólk­ur­sam­söl­unnar á lok­aðan fund í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu um miðjan jan­úar þar sem Ragnar Árnason kynnti nið­ur­stöður sínar um nei­kvæðar, þjóð­hags­legar afleið­ingar af afnámi kvóta­kerf­is­ins í mjólkur­iðn­aði. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Rík­is­út­varpið hefur áður greint frá því hvernig Kaup­fé­lagið hefur reynt að beita sér gegn afnámi kvóta­kerf­is­ins í mjólkur­iðn­aði. 

Samn­inga­við­ræður standa nú yfir á milli samn­inga­nefndar bænda og íslenska rík­is­ins um nýja búvöru­samn­inga og hefur „mikið gengið á“ í þeim við­ræðum á bak við tjöldin sam­kvæmt einum heim­ild­ar­manni Stund­ar­innar. Hug­myndin sem er ofan á núna er að kvóta­kerfið í mjólk verði afnumið og þar með kerfi sem tryggir mjólk­ur­bændum sem selja mjólk innan kerf­is­ins ákveðið verð fyrir mjólk­ina innan kvóta­kerf­is­ins. Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga er mikið í mun að halda í þetta kerfi og var fund­ur­inn í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu einn liður í þeirri við­leitni fyr­ir­tæk­is­ins að þrýsta á hags­mun­að­ila að standa vörð um núver­andi kerfi í mjólkur­iðn­aði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár