Kári Stefánsson ánægður en skammast sín fyrir að vera skattakóngur

Einn af skatta­kóngum árs­ins, Kári Stef­áns­son, seg­ist hálf­skamm­ast sín fyrir að vera stór­eigna­maður í landi þar sem margt fólk á ekk­ert. Hann sé þó ánægður með geta lagt sitt að mörkum til sam­fé­lags­ins.

Kári Stefánsson ánægður en skammast sín fyrir að vera skattakóngur

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir í sam­tali við Stundina hálf­part­inn skamm­ast sín fyrir að vera einn af skatta­kóngum Íslands. Hann seg­ist ánægður með að skila sínu til sam­fé­lags­ins en telur þó erfitt fyrir gamlan sós­í­alista að vera á þessum lista. Í frétta­til­kynn­ingu frá Rík­is­skatt­stjóra kemur fram að Kári er í þriðja sæti á Íslandi yfir þá ein­stak­linga sem greiða hæstan skatt. Í fyrra greidd Kári 277.499.661 krónur í skatt.

„Ég er býsna ánægður með það að leggja að mörkum til sam­fé­lags­ins. Ég alla­vega gjalda keis­ar­anum það sem keis­ar­ans er að fullu. Allir þessir pen­ingar sem ég er að greiða af opin­ber gjöld koma erlendis frá. Þannig að í þessum opin­beru gjöldum end­ur­spegl­ast flutn­ingur á gjald­eyri til lands­ins. Að því leyti gleður þetta mig. Það sem mér finnst hins vegar dálítið erfitt fyrir gamlan sós­í­alista er að sitja uppi með að vera svona auð­kýf­ingur í þessu sam­fé­lagi,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár