Lögmannafélagið telur hert lög Sigríðar brjóta á mannréttindum flóttafólks

„Óheimilt er með öllu að rétt­læta brot á mann­rétt­indum með til­vísun í fjár­skort,“ segir í umsögn Lög­manna­fé­lags Íslands um umdeilt frum­varp Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sem kveður á um að hægt sé að vísa fólki strax úr landi sé umsókn þeirra metin „ber­sýni­lega til­hæfu­laus“ og umsækj­andi komi frá „öruggu ríki“.

Lögmannafélagið telur hert lög Sigríðar brjóta á mannréttindum flóttafólks
Dóms­mála­ráð­herra Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vill skerða mögu­leika hæl­is­leit­enda frá ákveðnum ríkjum til að kæra ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar. Mynd: xd.is

Laga­nefnd Lög­mann­fé­lags Íslands telur að frum­varp Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, sem þrengir veru­lega að mögu­leikum hæl­is­leit­enda til að fá brott­vísun sinni frestað, geti falið í sér brot á mann­rétt­indum flótta­fólks. Þetta kemur fram í umsögn félags­ins um frum­varpið. 

Í frum­varp­inu er lögð til breyt­ing sem kemur í veg fyrir að kærur hæl­is­leit­enda fresti rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun í til­vikum þar sem hæl­is­um­sókn hefur verið metin „ber­sýni­lega til­hæfu­laus“ og umsækj­andi kemur frá landi sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki. Laga­breyt­ingin myndi festa end­an­lega í sessi þá reglu sem lög­fest var til bráða­birgða síð­asta haust og Stundin fjall­aði um. Samkvæmt henni kemur kæra hæl­is­leit­enda til kæru­nefndar útlend­inga­mála ekki í veg fyrir að við­kom­andi verði vísað úr landi, þó svo að end­an­leg nið­ur­staða liggi ekki fyrir í mál­inu. 

Laga­nefndin telur breyt­ing­arnar fela í sér mis­munun á grund­velli þjóð­ernis og geta orðið til þess að umsóknir fólks frá svoköll­uðum „öruggum ríkjum“ verði ekki metnar ein­stak­lings­bundið heldur verði umsókn metin á grund­velli fyr­ir­fram mót­aðra skoð­ana um að umsókn sé ber­sýni­lega til­hæfu­laus með vísan til þjóð­ernis umsækj­anda. 

Minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar hefur sömu­leiðis lagst ein­dregið gegn breyt­ing­unni. 

Mannréttindasamtök og alþjóðastofnanir leggjast gegn hugtakinu „öruggt ríki“

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er bent á að hæl­is­um­sóknum fólks frá öruggum ríkjum, einkum Makedóníu og Albaníu, hafi fjölgað umtals­vert. Með frum­varp­inu sé stefnt að því að lág­marka dval­ar­tíma fólks­ins á Íslandi. Laga­nefndin bendir hins vegar á að þrátt fyrir að sum lönd hafi verið álitin örugg heima­ríki, þar með talin Albanía og Makedónía, sé ekki þar með sagt að allar umsóknir þaðan séu til­hæfu­lausar. „Vísað er í þessu sam­hengi til þess að hug­takið öruggt ríki hefur og er enn afar umdeilt og hafa virt mann­rétt­inda­sam­tök og alþjóða­stofn­anir, þar með talin Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, lagst gegn notkun hug­taks­ins.“ Þessu til stuðn­ings vísar laga­nefndin til álits evr­ópsku efna­hags- og félags­mála­nefnd­ar­innar sem birt var í Stjórn­ar­tíð­indum Evr­ópu­sam­bands­ins á síð­asta ári vegna til­lögu að reglu­gerð þings­ins um lista yfir örugg ríki. Í álit­inu kemur fram að notkun og beit­ing hug­taks­ins „örugg ríki“ geti reynst erfið í fram­kvæmd, meðal ann­ars vegna þess að erfitt verður að auð­kenna umsækj­endur sem eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu þar sem máls­með­ferð­ar­tími er afar stuttur og þá verður veit­ing alþjóð­legrar verndar til ein­stak­linga frá þessum ríkjum mjög erfið í fram­kvæmd vegna þess að með­ferð umsókna er byggð á fyr­ir­fram mót­uðum skoð­unum um að umsókn sé ber­sýni­lega til­hæfu­laus. 

„Það verður þannig vega­bréf umsækj­anda sem ræður úrslitum um það hvort hlýtt er á mál hans.“

„Þá ber jafn­framt að nefna að mis­mun­andi máls­með­ferð á grund­velli þjóð­ernis getur falið í sér mis­munun sem er í and­stöðu við 65. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 3. gr. flótta­manna­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 1951,“ segir í umsögn nefnd­ar­innar.

Í nefnd­ar­á­liti minni­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar segir einig að hug­myndin um svokölluð „örugg ríki“ sé í meira lagi vafasöm og engan veg­inn byggð á traustum grunni, sér­stak­lega ekki þegar kemur að mál­efnum ýmissa minni­hluta­hópa í þeim löndum sem um ræðir. „Með því að beita skírskot­un­inni til „öruggra ríkja“ og nota hana til að senda fólk af landi brott án við­hlít­andi máls­með­ferðar er í raun verið að hafna því, á grund­velli rík­is­fangs, að meta umsóknir stórra hópa umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Það verður þannig vega­bréf umsækj­anda sem ræður úrslitum um það hvort hlýtt er á mál hans en ekki kring­um­stæður við­kom­andi,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu. 

Óheimilt að réttlæta brot á mannréttindum með tilvísun í fjárskort

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að gangi lög­fest­ing frum­varps­ins ekki eftir gæti sú réttaró­vissa sem skap­ast leitt til þess að dvöl umsækj­anda í þjón­ustu fari úr þremur vikum í tvo til þrjá mán­uði með til­heyr­andi kostn­að­ar­auka. „Þess ber að geta að kostn­aður við hvern umsækj­anda í þjón­ustu er 8.000 kr. fyrir hvern dag sem þeir dvelja í þjón­ustu. Það gæti þýtt auk­inn kostnað fyrir rík­is­sjóð á bil­inu 200–300 m.kr. á árs­grund­velli en erfitt er þó að meta það með nákvæmum hætti,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins. 

Í þessu sam­hengi ítrekar laga­nefnd Lög­manna­fé­lags Íslands að áhrif ákvæð­is­ins muni leiða til skerð­ingar á rétti umsækj­enda um alþjóð­lega vernd til rétt­látrar máls­með­ferðar. „Þá ber að hafa í huga að óheim­ilt er með öllu að rétt­læta brot á mann­rétt­indum með til­vísun í fjár­skort,“ segir í umsögn laga­nefndar Lög­manna­fé­lags Íslands. 

Rætt var um frum­varpið á Alþingi í gær:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu