Guðni minnir Trump á jafnrétti í heillaóskum sínum

Forseti Íslands minnir for­seta Banda­ríkj­anna á jafn­rétti og jafnan rétt óháð trú í heilla­óskum til hans.

Guðni minnir Trump á jafnrétti í heillaóskum sínum
Guðni Th. Jóhann­es­son Nýr for­seti Íslands hefur áherslur ólíkar nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna. Mynd: Pressphotos

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sendi í dag stuttar og hnit­mið­aðar heilla­óskir á Donald Trump, nýkjör­inn for­seta Banda­ríkj­anna.

Í heilla­ósk­unum bendir Guðni sér­stak­lega á þau atriði sem Donald Trump hefur verið helst gagn­rýndur fyrir í kosn­inga­bar­átt­unni, þar á meðal jafn­rétti kynj­anna og jafnan rétt óháð trú.

Trump hefur marg­sinnis verið stað­inn að kven­fyr­ir­litn­ingu, bæði fyrir kosn­inga­bar­átt­unna og í henni. Hann hefur meðal ann­ars kallað frétta­mann „gálu“ og ítrekað vísað til útlits­legra ein­kenna kvenna í and­svari við gagn­rýni þeirra. Hann seg­ist vera and­vígur fóst­ur­eyð­ingum, nema í til­fellum eins og nauðg­unum. Þá hefur hann sagst vilja úti­loka múslima frá því að koma til Banda­ríkj­anna, en dregið nokkuð í land með það. Á sama tíma hefur hann biðlað til óbreyttra borg­ara að fylgj­ast með múslimum. Múslimar hafa verið ótta­slegnir yfir sigri Trump. Loks hefur Trump reglu­lega beint spjótum sínum að fjöl­miðlum í ræðum sínum og nefnt þá „lyga­fjöl­miðla“.

Donald TrumpNýkjör­inn for­seti er meðal ann­ars and­vígur rétti kvenna til fóst­ur­eyð­inga.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, beinir heilla­óskum sínum sér­stak­lega að gildum sem Trump hefur brotið gegn. „Enda þótt Banda­ríkin væru eitt stærsta lýð­ræð­is­ríki ver­aldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóð­irnar mörgum mik­il­vægum gildum; við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

„... höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Stundin hafði sam­band við emb­ætti for­seta Íslands í morgun og neit­aði Örnólfur Thorsson for­seta­rit­ari að gefa upp hvort sendar yrðu heilla­óskir, en þær voru síðan sendar síðla dags í dag.

Annar tónn í heillaóskum til Obama

Heilla­óskir Guðna til Donalds Trump eru tölu­vert frá­brugðnar þeim heilla­óskum sem for­seti Íslands færði Barack Obama við kjör hans árið 2008.

Þar var meg­in­á­herslan á end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa, frið, stuðn­ing við fátæka og heil­brigð­is­mál, en Donald Trump hefur á stefnu­skránni að stór­auka olíu- og gas­fram­leiðslu með rýmri reglum, auk­inn víg­búnað, skatta­lækk­anir á fyr­ir­tæki og afnám Obamacare, sem er kerfi sem veitir fátækum heil­brigð­is­þjón­ustu: „Vanda­málin sem nú blasa við ver­öld­inni – þörfin á að skapa frið og öryggi, bar­áttan gegn lofts­lags­breyt­ingum, end­ur­bætur á fjár­mála­kerfi heims­ins og umbætur í þágu hinna fátæk­ari og til að veita öllum rétt til heil­brigð­is­þjón­ustu og mennt­unar – kalla á afger­andi for­ystu.

Forseti Íslands rifj­aði í bréf­inu upp sam­ræður þeirra Obama þar sem reynsla og kunn­átta Íslend­inga í nýt­ingu hreinnar orku hafi verið á dag­skrá, hvernig Íslend­ingar gætu orðið að liði við að umskapa orku­bú­skap Banda­ríkj­anna, hverfa frá olíu og kolum til hreinna orku­gjafa og koma þannig í veg fyrir hinar hrika­legu lofts­lags­breyt­ingar. Íslend­ingar væru nú sem áður reiðu­búnir til slíkrar sam­vinnu við Banda­ríkin.“

Heillaóskir Guðna til Trump

„Forseti Íslands Guðni Th. Jóhann­es­son hefur í dag, mið­viku­dag­inn 9. nóv­em­ber, sent Donald Trump, nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna, heilla­óskir frá sér og íslensku þjóð­inni í kjöl­far sig­urs hans í for­seta­kosn­ing­unum.

Forseti árétt­aði í kveðju sinni rót­gróna sam­vinnu og vin­áttu þjóð­anna tveggja og langa sam­eig­in­lega sögu sem teygði anga sína allt aftur til þess er sæfar­endur frá Íslandi og Græn­landi tóku land í Norður- Ameríku fyrir meira en þús­und árum. Öldum síðar hefðu þús­undir Íslend­inga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tæki­færa sem nýbúar í frjálsum sam­fé­lögum.

Enda þótt Banda­ríkin væru eitt stærsta lýð­ræð­is­ríki ver­aldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóð­irnar mörgum mik­il­vægum gildum; við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Barack ObamaRæddi við for­seta Íslands um end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa.

Heillaóskir Ólafs Ragnars Grímssonar til Obama

5. nóv­em­ber 2008

„Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag nýkjörnum for­seta Banda­ríkj­anna Barack Obama og fjöl­skyldu hans heilla­óskir frá sér og íslensku þjóð­inni.

Í bréf­inu sagði for­seti Íslands að kosn­ing Obama væri sögu­legur vitn­is­burður um að í krafti lýð­ræðis gætu hug­sjónir og fram­sýni, vonir og bar­átta almenn­ings orðið áhrifa­ríkt breyt­inga­afl.

Vanda­málin sem nú blasa við ver­öld­inni – þörfin á að skapa frið og öryggi, bar­áttan gegn lofts­lags­breyt­ingum, end­ur­bætur á fjár­mála­kerfi heims­ins og umbætur í þágu hinna fátæk­ari og til að veita öllum rétt til heil­brigð­is­þjón­ustu og mennt­unar – kalla á afger­andi for­ystu.

Forseti Íslands rifj­aði í bréf­inu upp sam­ræður þeirra Obama þar sem reynsla og kunn­átta Íslend­inga í nýt­ingu hreinnar orku hafi verið á dag­skrá, hvernig Íslend­ingar gætu orðið að liði við að umskapa orku­bú­skap Banda­ríkj­anna, hverfa frá olíu og kolum til hreinna orku­gjafa og koma þannig í veg fyrir hinar hrika­legu lofts­lags­breyt­ingar.

Íslend­ingar væru nú sem áður reiðu­búnir til slíkrar sam­vinnu við Banda­ríkin.

Vinátta Íslands og Banda­ríkj­anna ætti sér djúpar rætur í lýð­ræð­is­legum arfi land­anna, vit­neskju um að eitt elsta lýð­ræð­is­ríki heims og hið öfl­ug­asta gætu komið góðum málum til leiðar. Við værum einnig reiðu­búin til að deila nýfeng­inni reynslu okkar í glímunni við fjár­málakrepp­una með öðrum og taka þannig þátt í því að ríkjum ver­aldar tak­ist að skapa nýja umgjörð, örugg­ari stjórn og trygg­ara eft­ir­lit, breyta stofn­unum sem kenndar eru við Bretton Woods á þann veg að þær full­nægi betur þörfum 21. aldar. 

For­set­inn vék í lok bréfs­ins að sam­starfi sínu við for­ystu­menn í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum árum og óskaðir nýkjörnum for­seta og þingi allra heilla í vanda­sömum verkum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár