Guðni veit meira - sér nýja ríkisstjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti ræddi við alla for­menn flokk­anna og sér nýja rík­is­stjórn í myndun á næstu dögum. Katrín Jak­obs­dóttir ræðir við flokk sinn í dag og úti­lokar ekki sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Guðni veit meira - sér nýja ríkisstjórn
Guðni á Bessa­stöðum For­set­inn var glað­beittur á Bessa­stöðum þar sem hann lýsti því að hann væri von­góður um nýja rík­is­stjórn eftir sam­töl við for­menn allra flokka. Mynd: RÚV

Svo virð­ist sem for­menn flokks eða flokka hafi lýst því yfir við Guðna Th. Jóhann­es­son for­seta að þeir myndu end­ur­skoða þá afstöðu sína að úti­loka sam­starf við til­tekna flokka.

Nú eru aðeins eftir rík­is­stjórn­ar­mögu­leikar sem flokkar hafa úti­lokað. Til dæmis hafa Vinstri grænir því sem næst úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum, Píratar úilok­uðu Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk og Viðreisn úti­lok­aði rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki saman. 

Guðni sagð­ist á blaða­manna­fundi á Bessa­stöðum í dag hafa ástæðu til að ætla að ný rík­is­stjórn geti verið í gerjun.

Hann var spurður af frétta­manni RÚV hvort hann væri von­góður:

Ertu bjart­sýnn á að þessar óform­legu við­ræður skili árangri, og það strax í næstu viku? „Já.“

Hefurðu eitt­hvað fyrir þér í því? „Já.“

Guðni byggir afstöðu sína á sam­tali við for­menn flokk­anna.„Ég er nýbú­inn að tala við for­menn eða full­trúa allra flokka og allir sann­færðu mig um það, sem ég lagði brýna áherslu á, að það mætti ekki úti­loka leiðir fyr­ir­fram. Ég vildi ekki segja að nú væru þeir tímar liðnir, en ég bað alla um að átta sig á þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og það tóku allir undir að það væri í þeirra verka­hring að sjá til þess að hér væri starf­hæf rík­is­stjórn og allir kváð­ust að vilja gerðir að leita allra mögu­legra lausna.“

Katrín virðist opin fyrir Sjálfstæðisflokknum

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, seg­ist í sam­tali við Stundina ekki hafa úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Ertu búin að biðja þing­flokk­inn að end­ur­skoða hug sinn til sam­starfs við sjálf­stæð­is­flokk­inn? 

„Nei, ég hef ekki beðið um það en ég vænti þess að við förum yfir þessi mál í dag.“

Svo það gæti farið svo að þið end­ur­skoðið ykkar afstöðu til Sjálf­stæð­is­flokks­ins? 

„Ég hef aldrei úti­lokað sam­starf Sjálf­stæð­is­flokk­inn en alltaf bent á það að það er mál­efna­lega langt á milli.“

Það hefur ekk­ert breyst?

„Nei, það breyt­ist ekki, nema allir fari að horfa á þetta með nýjum hætti.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri grænir hafa sam­tals 31 þing­mann og gætu myndað rík­is­stjórn með þriðja flokki, hvort sem það væri 34 þing­manna stjórn með Sam­fylk­ingu, 35 þing­manna stjórn með Bjartri fram­tíð, eða sterk­ari stjórnir með öðrum flokkum.

Rík­is­stjórn­ar­mynd­anir Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar með Sjálf­stæð­is­flokknum, ann­ars vegar, og Vinstri grænum, Pírötum og Sam­fylk­ingu, hins vegar, hafa ekki gengið upp.

Katrín sagði á fundi á Bessa­stöðum í dag „kannski of snemmt að segja til um“ mögu­lega rík­is­stjórn VG og Sjálf­stæð­is­flokks. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár