Ríkið fékk ekki krónu fyrir Iðnskólann í Hafnarfirði

Iðn­skól­inn í Hafn­ar­firði var færður úr opin­berri eigu og undir hinn einka­rekna Tækni­skóla án þess að nokkuð feng­ist fyrir eign­irnar.

Ríkið fékk ekki krónu fyrir Iðnskólann í Hafnarfirði

Ríkið fékk ekki krónu fyrir Iðn­skól­ann í Reykja­vík þegar hann var sam­ein­aður Tækni­skól­anum. Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við skrif­legri fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna. Svandís spurði Kristján Þór meðal ann­ars hvert hefði verið virði þeirra eigna Iðn­skól­ans í Hafn­ar­firði sem runnu inn í Tækni­skól­ann við sam­ein­ing­una. Þá spurði hún hvað Tækni­skól­inn hefði greitt íslenska rík­inu fyrir Iðn­skól­ann í Reykja­vík.

Í svari mennta­mála­ráð­herra kemur fram að Tækni­skól­anum hafi verið fal­inn rekstur þeirra eigna sem hann fékk með Iðn­skól­anum í Hafn­ar­firði. Ráðherra segir jafn­framt að engar greiðslur hafi átt sér stað frá Tækni­skól­anum fyrir Iðn­skól­ann í Hafn­ar­firði eða þær eignir sem honum fylgdu. Ríkið sé ennþá eig­andi allra þess­ara eigna þrátt fyrir að Tækni­skól­inn hafi afnot af þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í skólakerfinu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár