Allir forsetaframbjóðendur andvígir stóriðju

Stundin hefur á und­an­förnum vikum spurt alla fram­bjóð­endur til for­seta tíu spurn­inga er varða nokkur af helstu deilu og álita­málum líð­andi stundar. Hér ber að líta svör þeirra við annarri spurn­ing­unni: „Hvað finnst þér um stefnu stjórn­valda und­an­farna ára­tugi varð­andi stór­iðju?“

Allir forsetaframbjóðendur andvígir stóriðju
Fram­bjóð­end­urnir. Níu ein­stak­lingar eru í boði sem næsti for­seti lýð­veld­is­ins.

Stundin hefur spurt alla fram­bjóð­endur* til for­seta tíu spurn­inga er varða nokkur af helstu deilu og álita­málum líð­andi stundar. Hér ber að líta svör þeirra við fyrstu spurn­ing­unni:

Hvað finnst þér um stefnu stjórnvalda undanfarna áratugi varðandi stóriðju?


Andri Snær Magnason 

Andri Snær.
Andri Snær. Rit­höf­undur.

Ég sé bara mjög skýrt hvernig sagn­fræð­ingar munu skrifa um tíma­bilið frá maí 1997, þegar stór­iðju­stefnan hófst fyrir alvöru. Eftir það þurfti aktí­visma og í raun­inni gras­rót­ar­hreyf­ingu til að tala fyrir nýsköpun. Við þurfum að skapa gras­rót­ar­hreyf­ingu til að fá að vera millj­óna­mær­ingar eins og í Síli­kon­dal. Leið­togar okkar töl­uðu alls ekki fyrir þeirri fram­tíð­ar­sýn á löngu tíma­bili, töl­uðu það jafn­vel bara niður og gerðu lítið úr því. Ef ein­hver hefði sagt fyrir 20 árum: „Hvað eigum við að gera í fram­tíð­inni?“ og ég hefði sagt: „Af hverju búum við ekki til lappir fyrir fóta­lausa svo þeir geti keppt á Ólymp­íu­leik­unum?“ þá hefði fólk sagt að ég væri vit­leys­ingur. Þessi 0,1% sem er álf­ram­leiðsla heims­ins fyllti rýmið okkar. Fyllti blöðin okkar. Við vorum með 0,1% af mögu­leikum heims­ins sem fyllti sam­fé­lags­um­ræð­una, blöðin, dal­ina uppá hálendi. Klufu okkur í herðar niður sem þjóð. Stór­iðju­stefnan var hörm­ung, raun­veru­lega. Segjum sem svo að það að hafa eitt iðju­ver á land­inu sé eðli­legur hluti af 300 þús­und manna sam­fé­lagi, en stór­iðju­stefnan sem stefndi raun­veru­lega að eyði­legg­ingu hálendis Íslands, hún á eftir að vera dæmd mjög hart í fram­tíð­inni. En það fer líka eftir því hver fær að skrifa sög­una, hvort það verður ég eða ein­hver annar.


Ástþór Magnússon

Ástþór Magnússon.
Ástþór Magn­ús­son. Við­skipta­maður.

Við þurfum að stíga var­lega til jarðar þegar kemur að óaft­ur­kræfum mann­virkjum og starf­semi sem skaðar nátt­úr­una. Ein af okkar stærstu og mest vax­andi atvinnu­greinum bygg­ist á hreinni nátt­úru.

Ég vil virkja for­seta­emb­ættið á alþjóða­vett­vangi og tala fyrir að hér rísi aþjóð­leg mið­stöð friðar, lýð­ræð­isum­bóta, mann­rétt­inda og nátt­úru­verndar. Þetta gæti aukið lands­fram­leiðslu okkar um 600 millj­arða á ári og skapað þús­undir starfa. Ég tel sterkar líkur á því að fá höf­uð­stöðvar Sam­ein­uðu þjóð­anna og tengdar stofn­anir til Íslands. Þegar er mikil und­ir­alda erlendis að flytja höf­uð­stöðv­arnar frá New York á hlut­laus­ari stað. Ísland gæti orðið álit­legur kostur í þeirri umræðu sé unnið að því mark­visst.

Fyrir 30 árum var Reykja­vík valin sem fund­ar­staður valda­mestu manna heims sem mark­aði upp­haf að lokum kalda stríðs­ins. Ísland var valið undir eitt þekktasta frið­ar­merki heims, Lennon frið­ar­ljósið. Ísland hefur nú tæki­færi að verða valið sem fram­tíð­ar­heim­ili S.Þ. ef við beitum okkur af krafti í því máli.


Elísabet Jökulsdóttir

Elísabet Jökulsdóttir.
Elísabet Jök­uls­dóttir. Rit­höf­undur.

Ég er bara á móti stór­iðju. Soldið fanat­ísk með það. Mér finnst það ætti að vera heild­ar­stefna að hafa ekki stór­iðju í land­inu. Nú er RioTinto að rass­skella verk­falls­menn. Þeir hafa ekki borgað skatta. Land­flæmi eru eyðilögð til að þessir auð­jöfrar komi hér með fabrikk­urnar sínar. Þetta er ekki virð­ingu okkar sam­boðið. Við sem Íslend­inga­sagna­þjóð, og þjóð sem er búin að þrauka hérna í þús­und ár, hljótum að geta fundið upp á ein­hverju öðru.


Guðni Th. Jóhannesson

Guðni Th.
Guðni Th. Sagn­fræð­ingur.

Þegar Kristján Eldjárn vígði Búr­fells­virkjun vorið 1970 þá minnt­ist hann á það að hér værum við sem þar voru á mörkum hins byggða lands á Íslandi. Þarna hefðu íbúar hrak­ist á brott við Heklugos og nátt­úran hefði haft yfir­hönd­ina. Nú værum við að beisla hana, nú hefðu Íslend­ingar vinn­ing­inn yfir nátt­úr­unni, en yrðu um leið að bera virð­ingu fyrir henni. Ég vann uppi í Búr­fells­virkjun nokkur sumur og fátt er eins fögur nátt­úru­sýn og þegar geislar sól­ar­innar leika um þetta fal­lega stöðv­ar­hús undir Sám­staða­múla, en við erum að vakna til vit­undar um það að fossar og gæði lands­ins eru ekki mæld í megawöttum ein­göngu og nýir tímar eru að renna upp. Stór­iðju­skeiðið er að ég hygg að breyt­ast. Við Íslend­ingar viljum ekki ein­göngu hugsa sem svo að hér geti komið álver og það skapi ákveðið mörg störf og þess vegna þurfi að virkja ein­hvers staðar. Svona hugs­un­ar­háttur er lið­inn og ég held að stjórn­völd geri sér grein fyrir því, og ef þau gera það ekki þá þarf for­set­inn nátt­úr­lega að vera á vakt­inni.


Guðrún Margrét Pálsdóttir

Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Guðrún Margrét Páls­dóttir. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

Hún hefur verið atvinnu­skap­andi en jafn­framt raskað nátt­úr­unni á við­kvæmum svæðum. Ég held að ætti að fara var­lega í stór­iðju­fram­kvæmdir og meta vel hver umhverf­is­á­hrifin verða til að forða nátt­úruslysum sem frekast er unnt. Við þurfum einnig að gæta þess að mengun sé í algjöru lág­marki og fram­kvæmdir séu arð­bærar fyrir þjóð­ina. Við þurfum að vera vand­fýsin á hvers konar starf­semi er um að ræða og hafa ekki öll eggin í sömu körfu.


Halla Tómasdóttir

Halla Tómasdóttir.
Halla Tóm­as­dóttir. Fjár­festir.

Ég tel að þetta sé eitt af þeim málum sem þjóðin þarf að ræða, hún þarf að setja sér  lang­tíma mark­mið og vega og meta ávinn­ing á móti fórn­ar­kostn­aði. Ég er fylgj­andi fjöl­breytni í atvinnu­sköpun og vara við því að ein atvinnu­grein vegi mun þyngra en aðrar. Við þurfum að dreifa áhætt­unni. Einnig þarf að skil­greina áhrif á nátt­úru, lands­lag og lofts­lag mun betur en gert hefur verið til þessa   og búa svo um hnút­ana að þær auð­lindir sem ákveðið er að nýta skili sem mestum verð­mætum til sam­fé­lags­ins. 


Hildur Þórðardóttir

Hildur Þórðardóttir.
Hildur Þórð­ar­dóttir. Rit­höf­undur.

Mér finnst þetta bara orðið ágætt. Finnst við eigum að veita meiri athygli núna smærri fyr­ir­tækjum og nýsköpun. Við höfum staðið okkur vel í því en gætum gert enn betur. Fara að hugsa smærra, á micro leveli. Hafa lítil fyr­ir­tæki í heima­byggðum í stað­inn fyrir að þurfa alltaf að sam­eina stór fyr­ir­tæki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Halda litlu byggð­unum í byggð með litlum úrræðum, eins og það er búið að vera mikil upp­bygg­ing á Höfn í Horna­firði sem hefur ekk­ert með stór­iðju að gera. Hum­ar­hót­elið og allt í kringum það, veit­inga­staðir og fleira. Þetta er dæmi um nýsköpun sem hjálp­aði heilu byggð­ar­lagi. Þeir veiða humar þegar veiði­tím­inn er og svo geyma þeir hann lif­andi í hólf­unum og selja hann svo þegar hæsta verðið fæst fyrir hann, þannig virkar það. Allar svona góðar hug­myndir eru eitt­hvað sem við eigum að leggja alúð og rækt við. Stjórn­völd eiga miklu frekar að setja pen­ing í þetta. Líka að setja pen­inga í að rækta græn­meti svo við getum verið sjálf­bær í græn­met­is­fram­leiðslu, og leyfa græn­met­is­bændum frekar að fá álvers­raforku­verð, frekar en að láta þá punga öllu út af því við þurfum að hafa græn­met­is­fram­leiðslu í land­inu. Miklu umhverf­is­vænna er að rækta græn­meti heldur en að bræða ál.


Sturla Jónsson

Sturla Jónsson.
Sturla Jónsson. Athafna­maður.

Ég er ekki sáttur við hana. En hins vegar er það þannig að þegar maður er kom­inn í sætið getur maður ekki gert það að ein­leik að tala það niður, og þá komum við aftur að því, að fólkið getur haft áhrif á þetta, því stór­iðjan fer ekki í gang nema með laga­setn­ingu. Þá getum við komið þessu valdi til fólks­ins. Við sem þjóð náum ekki að nota 10% af því raf­magni sem verið er að fram­leiða. Af hverju erum við ekki með smá­iðnað sem við gætum nýtt raf­magnið í?


* Fram­bjóð­and­inn Davíð Oddson fékk spurn­ing­arnar sendar og tæki­færi til þess að svara þeim en hefur ekki gert það. Berist svör frá honum mun þeim verða bætt við jafn­óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár