SS vill ekki myndatökur af framleiðslunni: „Ekki mjög lystaukandi fyrir almenning“

Steinþór Skúlason, for­stjóri SS, hafnar beiðni Stund­ar­innar um að fá að mynda fram­leiðslu­ferli félags­ins. Hann kveðst ekki heldur geta leyft blaða­manni að sjá fram­leiðsl­una. Jón Ólafsson, stjórn­ar­maður í Gagnsæis, segir að fyr­ir­tæki í mat­væla­fram­leiðslu geti ekki leyft sér að snið­ganga fjöl­miðla.

SS vill ekki myndatökur af framleiðslunni: „Ekki mjög lystaukandi fyrir almenning“
Mót­mæl­andi Stundin fylgd­ist með mót­mæl­endum úr hópnum aktí­vegan við slát­ur­hús Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands á Selfossi í lok ágúst. Mynd: Heiða Helgadóttir

Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands leyfir ekki mynda­töku af fram­leiðslu sinni og seg­ist for­stjóri félags­ins ekki heldur geta heim­ilað blaða­manni að verða vitni að henni, að svo stöddu. For­stjóri félags­ins rök­styður synj­un­ina með því að það sé „ekki mjög lystauk­andi fyrir almenn­ing“ að upp­lýst yrði með þeim hætti um fram­leiðslu á vörum félags­ins.

Stundin fór fram á að mynda fram­leiðslu­feril kjöt­af­urða frá bónda til neyt­anda í greina­röð um land­bún­að­ar­fram­leiðslu og afteng­ingu almenn­ings frá upp­runa mat­væla. Til vara fór Stundin fram á að blaða­maður fengi að verða vitni að ferl­inu og skrifa grein um það.

Aðdrag­andi beiðn­innar var að í kjöl­far greinar um mót­mæli veg­ana við slát­ur­hús SS á Selfossi í ágúst upp­hófust sam­skipti milli blaða­manns­ins sem skrif­aði grein­ina og for­stjóra SS, Stein­þórs Skúla­sonar, sem vildi leið­rétta hluta umfjöll­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Matvælaframleiðsla

AfhjúpunMatvælaframleiðsla

Róttækir veg­anar hefja virka bar­áttu gegn dýra­neyslu

Hópur fólks kom saman á Selfossi og hafði afskipti af bíl sem flutti svín til slátr­unar á dög­unum. Um var að ræða nýjan bar­áttu­hóp rót­tækra veg­ana. Bragi Páll Sig­urð­ar­son kynnti sér hóp­inn og komst að því að fólkið hefur mætt harðri and­stöðu og verið jað­ar­sett í fjöl­skyldum sínum vegna boð­skapar síns. Og bar­áttan er rétt að byrja.

Myndband25 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár