Fjölskyldan komin til Albaníu: Allslaus í hripleku húsi með hjartveikan dreng

Pllum Lalaj, fjöl­skyldu­faðir frá Albaníu sem var neitað um dval­ar­leyfi á Íslandi og sendur úr landi með hjart­veikan son í lög­reglu­fylgd, er í erf­iðum aðstæðum. Hann seldi kýrnar sínar til að eiga fyrir far­inu til Íslands.

Fjölskyldan komin til Albaníu: Allslaus í hripleku húsi með hjartveikan dreng

„Auðvitað vill ég vera á Íslandi,“ segir Pllum Lalaj, fjöl­skyldu­faðir frá Albaníu sem var neitað um dval­ar­leyfi á Íslandi og sendur aftur út í lög­reglu­fylgd í vik­unni. Með í för voru eig­in­kona hans og tvö börn, þriggja ára dóttir hans og árs gam­all sonur hans sem fædd­ist með opna fósturæð og op á milli hjarta­gátta.

Pllum sótti um hæli fyrir fjöl­skyld­una á Íslandi, meðal ann­ars vegna hót­ana sem hann lifði við eftir skilnað og eins vegna veik­inda son­ar­ins. Honum var hins vegar hafnað af Útlend­inga­stofnun. Hann kærði ákvörð­una en dró kæruna til baka eftir að honum var sagt að sonur hans myndi ekki fá að fara í aðgerð hér á landi. Lög­reglan fylgdi fjöl­skyld­unni svo úr landi aðfar­arnótt mið­viku­dags með leiguflugi á vegum Útlend­inga­stofn­unar. Í sömu ferð var önnur albönsk fjöl­skylda einnig flutt brott með lang­veikt barn. 

Læknar hafa gagn­rýnt brott­flutn­ing­inn harka­lega, en Hróðmar Helgason sem var læknir Arjans, litla drengs­ins, segir málið hafa komið afskap­lega illa við sig. Þá hafa þúsundir skrifað undir áskorun til inn­an­rík­is­ráð­herra um að aft­ur­kalla ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar og bjóða fjöl­skyld­unum aftur til Íslands. Í kvöld kom fram á Vísi að alls­herj­ar­nefnd ætl­aði að skoða mál þess­ara fjöl­skyldna. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, segir að nefndin muni skoða hvort tvær albanskar fjöl­skyldur hafi fengið rangar upp­lýs­ingar, sem leitt hafi til þess að þær hafi dregið kærur sína til baka áður en úrskurð­ar­nefndin fjall­aði um þær. 

Seldi kýrnar
Seldi kýrnar Pllum seldi allt sem hann átti til að kom­ast til Íslands í von um að sonur hans fengi aðstoð hér á landi. Nú er hann kom­inn aftur heim og búinn að tapa öllu.

Það breytir því ekki að fjöl­skylda Pllum er nú komin aftur í gamla heima­bæ­inn þar sem hann átti lít­inn bóndbæ, tvær kýr, svín og sauðfé, áður en hann kom til Íslands. „Það dugði mér til að lifa af og færa mat á borðið. Þannig tókst mér að brauð­fæða fjöl­skyld­una.“

„Ég vil bara að sonur minn verði heil­brigður.“

Eftir heim­kom­una hefur fjöl­skyldan hins vegar lítið sem ekk­ert á milli hand­anna. Það reyn­ist erfitt að fá vinnu og engin dýr eru eftir á bænum. „En ég seldi kýrnar til þess að kaupa flug­miða til Íslands í von um þar fengi sonur minn aðstoð. Núna á ég ekk­ert. Ég tap­aði öllu. En mér er sama. Ég vil bara að sonur minn verði heil­brigður.“

Húsið er orðið gam­alt og illa farið segir Pllum, enda byggt fyrir rúmum 100 árum og hann hefur ekki haft tök á því að sinna nauð­syn­legu við­haldi. Þannig að fjöl­skyld­unni er kalt og hann reynir að halda börn­unum undir teppi af ótta við að syni sínum hraki við þessar aðstæður. Þá segir hann að börnin séu enn að jafna sig eftir flutn­ing­inn og gráti stöðugt. Þau hafi verið á Íslandi í átta mán­uði áður en þeim var vísað úr landi og búið í Keflavík, þar sem þau sóttu messur og eign­uð­ust vini. 

„Við reynum að kom­ast af en þetta er erfitt. Nágrann­arnir færðu okkur mat þegar við komum. En þetta er erfitt og það virð­ist vera erfitt að fá vinnu líka. Þú ert heppin að hafa fæðst á Íslandi. Þú ert heppin að ala upp börn á Íslandi. Þú mátt vera stolt af Íslandi. Það er góður staður til þess að ala upp börn. Það er hugsað um börnin ykkar, af því að þið eruð fædd þarna. En við þurftum að fara. Ég veit ekki hvað ég á að segja.“

Efnt hefur verið til mót­mæla gegn brott­vís­un­inni á Aust­ur­velli klukkan fimm á þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár