Hagfræðingar fagna skynsamlegri áætlun um losun fjármagnshafta

„Áætlunin verndar hag­kerfið og er um leið sann­gjörn í garð erlendra kröfu­hafa,“ segja hag­fræð­ing­arnir Ásdís Krist­jáns­dóttir og Jón Dan­í­els­son

Hagfræðingar fagna skynsamlegri áætlun um losun fjármagnshafta

„Áformum Íslend­inga um losun fjár­magns­hafta ber að fagna. Nú er rétti tím­inn, enda telj­ast höftin efna­hags­lega skað­leg og eru afar óvin­sæl. Áætlunin um losun haft­anna er skyn­sam­leg og mun að öllum lík­indum heppn­ast vel,“ segir í grein eftir hag­fræð­ing­ana Ásdísi Krist­jáns­dóttur og Jón Dan­í­els­son sem birt­ist á vefnum VoxEU.com í gær. Ásdís er for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins og Jón Dan­í­els­son er pró­fessor við London School of Economics.

Í grein­inni útskýra þau hvers vegna gjald­eyr­is­höftin voru lögð á í upp­hafi og hvers vegna reynst hefur erfitt að losa þau. Ásdís og Jón benda á að helsta hindr­unin á vegi þess hafi tengst upp­gjöri á eignum föllnu bank­anna. Nú virð­ist kröfu­haf­arnir hafa fall­ist á að greiða stöð­ug­leika­fram­lag fremur en stöð­ug­leika­skatt.

„Áætlunin verndar hag­kerfið og er um leið sann­gjörn“

„Áætlunin verndar hag­kerfið og er um leið sann­gjörn í garð erlendra kröfu­hafa, sem munu eftir að hafa greitt út stöð­ug­leika­fram­lagið, þó hafa hagn­ast vel á fjár­fest­ingum sínum á Íslandi á hápunkti krepp­unnar,“ segja þau. 

Þá benda þau á að hrun íslenska banka­kerf­is­ins er þriðja stærsta fyr­ir­tækja­hrun sög­unnar, á eftir Lehman Brothers og Washington Mutual. Hins vegar er verg lands­fram­leiðsla á Íslandi aðeins 0,1 pró­sent af lands­fram­leiðslu Banda­ríkj­anna. Umfang fjár­mála­kerf­is­ins var tíu sinnum meira en lands­fram­leiðslan þegar bank­arnir fór á hlið­ina árið 2008.

Grein Ásdísar og Jóns er á ensku, en text­inn sem hér birt­ist er laus­leg þýð­ing blaða­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gjaldeyrishöft

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár