Einn af vogunarsjóðunum sem keyptu hlut í Arionbanka lenti í ruslflokki í gær

Rekstr­ar­horfur Och-Ziff Capi­tal eru óvissu und­ir­orpnar að mati S&P. Sama fyr­ir­tæki varð upp­víst að mútu­greiðslum til opin­berra starfs­manna í Líbíu og Kongó og er nú hlut­hafi í Arion­banka í gegnum sjóð­inn Sculptor Invest­ments.

Láns­hæf­is­ein­kunn vog­un­ar­sjóðs­ins Och-Ziff Capi­tal Mana­gement Group var færð niður í rusl­flokk hjá grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Stand­ard & Poor’s í gær, en til­kynnt var á sunnu­dag að sjóður á vegum fyr­ir­tæk­is­ins hefði keypt 6,6 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði.  

MarketWatch greindi frá breyttri láns­hæf­is­ein­kunn Och-Ziff í gær og Kjarninn vakti athygli á mál­inu í dag. Um er að ræða sama vog­un­ar­sjóð og varð upp­vís að mútu­greiðslum til opin­berra starfs­manna í Líbíu og Kongó.

Að mati Standard and Poor's hefur rekstur félags­ins versnað að und­an­förnu vegna minnk­andi eigna í stýr­ingu og eru horfur þess taldar nei­kvæðar til fram­tíðar. Af þeim sökum var ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins færð í flokk­inn BB, en slík ein­kunn gefur alla jafna til kynna að óvissa ríki um fram­tíð og rekstr­ar­horfur fyr­ir­tækis og að ekki þurfi mikið til að það lendi í þeirri stöðu að geta ekki staðið við fjár­hags­legar skuld­bind­ingar sínar. 

Tilkynnt var um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár