Boða róttækar breytingar á barnalögum

Lögmaður sem sér­hæfir sig í fjöl­skyldu­rétti segir breyt­ingar sem ný rík­is­stjórn boðar á barna­lögum bæði rót­tækar og afdrátt­ar­lausar. Boðaðar séu miklar breyt­ingar á fjöl­skyldu­rétti sem séu til bóta, ekki síst fyrir þá for­eldra sem skilja að skiptum en vilja og geta haldið áfram að ala upp börn sín saman og í sátt.

Boða róttækar breytingar á barnalögum
Börn í leik­skóla Í dag geta börn aðeins verið skráð með lög­heim­ili hjá öðru for­eldra sinna. Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar segir að tryggja eigi rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lög­heim­ilum. Mynd: Kristinn Magnússon

Í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar segir að sam­fé­lagið eigi að styðja ólíkar fjöl­skyldu­gerðir og hvetja til þess að for­eldrar sem ekki búi saman ali upp börn sín í sátt. Þar segir að tryggja eigi rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lög­heim­ilum og aðstaða umgengn­is­for­eldra og lög­heim­il­is­for­eldra verði jöfnuð. Þetta vakti athygli Oddgeirs Ein­ars­sonar lög­manns en hann hefur sér­hæft sig í fjöl­skyldu­rétti. „Þetta er mjög afdrátt­ar­laust orða­lag, með því afdrátt­ar­laus­ara í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Þetta hefur verið bar­áttu­mál margra í mörg ár og ég held að þetta verði mjög jákvæðar breyt­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár