Bankamenn vilja meira en hundrað milljónir á mann - Friðrik kemur af fjöllum

Stjórn­endur Íslands­banka vilja eign­ast 1 pró­senta hlut í bank­anum, eða and­virði 2 millj­arða, segir í frétt Morg­un­blaðs­ins. Stjórn­ar­for­maður Íslands­banka kann­ast ekki við að farið hafi verið fram á þetta.

Bankamenn vilja meira en hundrað milljónir á mann - Friðrik kemur af fjöllum

„Ég hef ekki hug­mynd um það hvaðan þetta kemur. Það eru engar fyr­ir­liggj­andi til­lögur um þetta. Það hefur margoft verið rætt um bónusa án þess að neinar til­lögur séu uppi um það mál," segir Friðrik Soph­us­son, for­maður stjórnar Íslands­banka, vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins um að Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri Íslands­banka, auk fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manna bank­ans, hafi farið fram á kaupauka í tengslum við gerð nauða­samn­ings og mögu­lega sölu hans. 

Stefán Einar Stef­áns­son við­skiptasið­fræð­ingur skrifar frétt­ina, en þar kemur fram að gerð hafi verið til­laga um að 1 pró­senta hlutur í bank­anum renni hópnum í skaut. Friðrik þver­tekur fyrir að nokkrar til­lögur, hvað þá ákvarð­andir, liggi fyrir um málið. Þá seg­ist hann hafa allar sínar upp­lýs­ingar um þetta úr fjöl­miðli. Fréttin í morgun hafi komið honum í opna skjöldu. „Ég las þetta í Morg­un­blað­inu. Meira hef ég ekki um þetta mál að segja," segir Friðrik sem vill ekki tjá sig um hvort eðli­legt sé að æðstu stjórn­endur bank­ans eign­ist hlut í bank­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bónusar bankamanna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár