Milljörðum varið í bónusa til starfsmanna föllnu bankanna

Á síð­asta ári hafa félög tengd föllnu bönk­unum eyrna­merkt millj­arða króna í bón­us­greiðslur til starfs­manna félag­anna. Laga­frum­varp sem hefði sett þak á bón­us­greiðsl­urnar var ekki tekið til umræðu á Alþingi í fyrra.

Milljörðum varið í bónusa til starfsmanna föllnu bankanna
Kolbeinn Árnason, stjórn­ar­maður í LBI. Fær greiddar um 90 millj­ónir króna í bónus fyrir störf sín hjá LBI ehf. sem heldur utan um eignir gamla Lands­bank­ans. Mynd: mbl/Golli

Fjórir stjórn­endur eign­ar­halds­fé­lags­ins LBI fá greiddar sam­an­lagt á bil­inu 350 til 370 millj­ónir króna í bónus.

LBI heldur utan um eignir gamla Lands­bank­ans. Þetta kemur fram í Mark­aðnum, fylgi­blaði með Frétta­blað­inu í dag. Á rúmu ári hefur millj­örðum króna verið varið í bón­us­greiðslur til starfs­manna föllnu bank­anna.

Lands­bank­innFjórir stjórendur LBI fá greiddar sam­an­lagt á bil­inu 350-370 millj­ónir króna í bónus.

Bón­us­greiðsl­urnar til stjórn­enda LBI koma til vegna þess að Lands­bank­inn ákvað að gera upp skuld sína við LBI þann 22. júní síð­ast­lið­inn, rúmum 9 árum fyrir loka­gjald­daga. Þannig hefur ákvörðun bank­ans um að gera upp skuld­ina ein­hliða tryggt fjór­menn­ing­unum, Kolbeini Árnasyni, stjórn­ar­manni í LBI og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra SFS, Ársæli Haf­steins­syni, fram­kvæmda­stjóra LBI, Richard Katz, for­manns stjórnar LBI og Christian Anders Digemose, dönskum ráð­gjafa sem var lög­maður fyrir kröfu­hafa föllnu bank­anna, hund­ruð millj­óna króna í bón­us­greiðslur.

Ársæll var sam­kvæmt tekju­blaði Frjálsrar versl­unar með rúm­lega 23 millj­ónir króna í tekjur á mán­uði í fyrra. Þá var Kolbeinn var með rúmar 7 millj­ónir króna á mán­uði.

Á aðal­fundi LBI í apríl 2016 var kaupauka­kerfi sam­þykkt og fengu fjór­menn­ing­arnir greiddan bón­us­inn á grund­velli þess kerfis. Þá áætlar Mark­að­ur­inn að bónu­spott­ur­inn fyrir stjórn­endur LBI geti numið tveimur millj­örðum króna, gangi til­teknar for­sendur eftir um end­ur­greiðslur til skulda­bréfa­eig­enda.

Einum og hálfum milljarði varið í bónusa hjá Kaupþing

Á síð­asta aðal­fundi eign­ar­halds­fé­lags­ins Kaup­þings sem fram fór í ágúst í fyrra var ákveðið að verja 1.500 millj­ónum í bón­us­greiðslur til 20 lyk­il­starfs­manna. Þessir sömu starfs­menn hlutu tugi millj­ónir króna í bónusa um þar­síð­ustu ára­mót þegar Kaupþing lauk nauða­samn­ingum. Fregnir af bón­us­greiðslum Kaup­þings vöktu mikla athygli og keppt­ust þing­menn við að gagn­rýna greiðsl­urnar. Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, sagði bónus­ana „lykta af sjálftöku“ í við­tali við Rúv í fyrra­sumar.

Þor­steinn Sæmunds­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sóknarVildi leggja 90-98 pró­senta skatt á bón­us­greiðslur.

Málið var rætt af miklum þunga á Alþingi í lok ágúst í fyrra. Þor­steinn Sæmunds­son, þáver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vildi leggja 90-98 pró­senta skatt á bón­us­greiðslur. „Glaður vil ég að slita­búin skili aftur pen­ingum til Íslands eins og þarna er ráð fyrir gert. Ég kæri mig bara ekki um að þeir lendi í fjög­urra til fimm manna höndum. Þannig að ég myndi bara leggja til að við yrðum fljót að setja lög um það að 90-98% skattur yrði lagður á slíkar bón­us­greiðslur þannig að við getum tryggt að þessi fram­lög slita­bú­anna sem eru að koma til Íslands lendi ekki í fjög­urra til fimm manna hóp heldur hjá þjóð­inni allri,“ sagði Þor­steinn.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna og Helgi Hjörvar, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tóku undir orð Þor­steins og mæltu með sér­stakri skatt­lagn­ingu á bónusa. „Þessa nöktu birt­ing­ar­mynd nýfrjáls­hyggju­græðg­i­skap­ít­al­ism­ans viljum við ekki sjá aftur á Íslandi. Það er nóg komið af því. Og við þurfum að taka til þeirra ráða sem eru til­tæk gagn­vart þessu,“ sagði Stein­grímur.

Lagafrumvarp sem hefði takmarkað bónusgreiðslur fékk ekki afgreiðslu

Helgi Hjörvar, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innarHefði frum­varp hans verið leitt í lög hefðu bón­us­greiðslur starfs­manna föllnu bank­anna lækkað umtals­vert.

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar lögðu fram frum­varp á Alþingi síð­asta haust um þak á bón­us­greiðslur fyr­ir­tækja sem fara með eignir föllnu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna. Helgi Hjörvar flutti frum­varpið en það var ekki tekið til umræðu á Alþingi. Í frum­varp­inu var lagt til að þak sem gildir um bónusa starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja næði einnig til fjár­mála­fyr­ir­tækja sem tekin hefðu verið til slita­með­ferðar og félaga sem voru í eigu slíka félagra eða fara með eignir þess. Í lög­unum er áskilið að bónusar megi ekki fara yfir 25 pró­sent af árs­launum við­kom­andi starfs­manns. Frum­varpið sem varð ekki að lögum hefði haft það að verkum að Kaupþing, LBI, Glitnir og ALMC sem áður var Straumur Burðarás gætu ekki greitt starfs­fólki sínu bónusa umfram kaupauka­þakið. Öll þessi félög hafa lýst því yfir að þau ætli að greiða starfs­fólki sínu bónusa. 

Laun Kolbeins hjá LBI eru um 200 þús­und doll­arar á ári eða um 21 milljón króna. Hefði frum­varp Helga Hjörvars verið leitt í lög og náð yfir til­fellið hefði LBI ein­ungis getað greitt honum rúmar 5 millj­ónir króna í bónus á ári – en ekki um 90 millj­ónir eins og félagið stefnir að í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bónusar bankamanna

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár