Báðust afsökunar en snúa aftur með milljarða bónusa

Stjórn­endur Straums-Burða­r­áss ætl­uðu að greiða sér millj­arða í bónusa árið 2009, eftir gjald­þrot bank­ans, en báð­ust afsök­unar eftir mót­mæli. Hvata­kerfið hefur verið tekið upp að nýju. 20 til 30 ein­stak­lingar munu skipta með sér millj­örð­unum.

Báðust afsökunar en snúa aftur með milljarða bónusa
Baðst afsök­unar Óttar Pálsson, þáver­andi for­stjóri Straums, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið árið 2009 og baðst afsök­unar á hug­mynd­inni, hún hefði ekki tekið mið af íslenskum aðstæðum.

Bón­us­greiðslur upp á 3,4 millj­arða króna verða greiddar út til á milli 20 og 30 starfs­manna eigna­um­sýslu­fé­lags­ins ALMC, áður Straums-Burða­r­áss. DV greinir frá þessu í dag. Bónus­arnir eru fyrir umsýslu með eignir ALMC. Meðal þeirra sem fá bónus­ana eru núver­andi stjórn­ar­menn ALMC og fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn fjár­fest­ing­ar­bank­ans Straums, meðal ann­ars núver­andi for­stjóri hans Jakob Ásmunds­son og fyrr­ver­andi for­stjóri, Óttar Pálsson, sem jafn­framt er stjórn­ar­maður í ALMC í dag.

Helsti eig­andi ALMC er félagið Thing­vellir B.V. sem stýrt af Deutsche Bank í Amster­dam. Ekki liggur fyrir hver á það félag en banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Davidson Kempner hefur verið nefndur til sög­unnar sem einn af stærri hlut­höf­unum. 

Ákveðið 2011

Í ásreikn­ingi ALMC fyrir árið 2014 eru 22,831 millj­ónir evra bók­færðar undir skýr­ing­unni „lang­tíma hvata­kerfi“. Í texta sem fylgir skýr­ing­unni er rakið hvernig hvata­kerfið var ákveðið á hlut­hafa­fundi ALMC árið 2011. Þar segir: „Fyr­ir­tækið ákvað hvata­kerfi til langs tíma árið 2011, eftir að aðal­fundur hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins heim­il­aði það. Markmið hvata­kerf­is­ins end­ur­heimtur skipt­an­legra skulda­bréfa með því að hvetja og halda í lyk­il­stjórn­endur og starfs­menn.“

Tveimur árum áður, síð­sum­ars 2009, kom fram í fjöl­miðlum að Straumur ætl­aði að greiða lyk­il­stjórn­endum sínum millj­arða króna í bónusa fyrir umsýslu með eignir bank­ans. Þá var talað um að bónus­arnir gætu orðið allt að tíu millj­arðar króna. Mikil umræða skap­að­ist um það mál í fjöl­miðlum. 

Forstjórinn fær bónusa
For­stjór­inn fær bónusa Núver­andi for­stjóri fjár­fest­ing­ar­bank­ans Straums, Jakob Ásmunds­son, er einn þeirra sem fær bónus sam­kvæmt kaupauka­kerf­inu. Hann var áður fjár­mála­stjóri ALMC. Fleiri starfs­menn Straums fá bónusa frá ALMC en ein­hverjir þeirra hafa einnig unnið fyrir AlMC.

Baðst afsökunar

Eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum árið 2009 skrif­aði þáver­andi for­stjóri Straums, Óttar Pálsson, aðsenda grein í Morg­un­blaðið og baðst afsök­unar á hug­mynd­inni. Hann sagði að hug­myndin hefði ekki tekið mið af íslenskum aðstæðum.

„Sem starf­andi for­stjóri félags­ins ber ég hins vegar ríka ábyrgð á því sem frá félag­inu kemur og biðst afsök­unar“

Orðrétt kom fram í grein Óttars: „Í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað und­an­farna daga er ég ekki í nokkrum vafa um að ég og aðrir sem að end­ur­skipu­lagn­ing­unni koma hefðum átt að gefa aðstæðum hér á landi betri gaum. Ég tel einnig mik­il­vægt að fram komi að aldrei hefur staðið til að ég verði þátt­tak­andi í eigna­um­sýslu Straums að end­ur­skipu­lagn­ingu lok­inni og hef ég því engra per­sónu­legra hags­muna að gæta í tengslum við launa­fyr­ir­komu­lag þeirrar starf­semi. Sem starf­andi for­stjóri félags­ins ber ég hins vegar ríka ábyrgð á því sem frá félag­inu kemur og biðst afsök­unar, fyrir eigin hönd og félags­ins, á að þær for­sendur sem áætl­anir mínar og ann­arra stjórn­enda voru reistar á hafi ein­blínt um of á erlendar aðstæður og ekki verið í nægj­an­legum tengslum við þann veru­leika sem við Íslend­ingar búum nú við sem þjóð. Framhald máls­ins verður í höndum nýrrar stjórnar og nýrra eig­enda bank­ans. Það er þeirra að meta hvernig hags­munir þeirra verða best tryggðir.“

Hugmyndin aftur á kortið

Hug­myndin um bón­us­greiðsl­urnar komst hins vegar aftur á kortið tveimur árum síðar þrátt fyrir umrædda afsök­un­ar­beiðni fyrir hönd Straums. Nú er hins vegar sama félag, það er að segja sama kennitalan, búið að ákveða slíkar bón­us­greiðslur sem byggja á nokkurn veg­inn sömu for­sendum og hvata­kerfið sem greint var frá árið 2009.

Við­brögðin við bón­us­greiðsl­unum eru hins vegar hörð í dag, að minnsta kosti að hluta til á sam­fé­lags­miðlum. Meðal þeirra sem leggja orð í belg er fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son segir orð­rétt: „Er ekki hægt að gera þetta lið útlægt? Það virð­ist hvort sem er búa í öðrum heimi en við hér.“

Miðað við afsök­un­ar­beiðni Óttars árið 2009 þá telja hlut­hafar og aðstand­endur ALMC að bón­us­greiðsl­urnar feli ekki í sér rangt veru­leika­mat árið 2014 líkt og gilti fyrir fimm árum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bónusar bankamanna

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár