Balkanlöndin loka á flóttamenn

Grikk­land er orðið að enda­stöð fyrir flótta­menn á leið til Evrópu. 15 þús­und manns eru nú í flótta­manna­búðum ætl­uðum 1.500 manns.

Balkanlöndin loka á flóttamenn
Flótta­fólk í Ung­verja­landi Flótta­menn bíða á lest­ar­stöð­inni Keleti í Búdapest. Mynd: Mstyslav Chernov / Wikimedia commons

Í gær, þriðju­dag­inn átt­unda mars, var Balk­an­leið­inni fyrir flótta­menn lokað. Þetta var til­kynnt af lög­reglu­yf­ir­völdum Slóveníu, Króatíu og Serbíu í gær­kvöld. Á níunda hund­rað þús­und manns ferð­uð­ust eftir henni í fyrra eftir að hafa komið á smá­bátum frá Tyrk­landi og á annað hund­rað þús­und það sem af er þessu ári, en yfir­völd í Mið-Evrópu hafa hert skil­yrði fyrir inn­göngu flótta­manna skref fyrir skref í vetur, allt frá því að bann var lagt við komu ann­arra en Sýr­lend­inga, Íraka og Afgana án til­skil­inna skil­ríkja. Tíu þús­und manns gengu leið­ina dag­lega þegar mest lét í haust, flest á leið til Þýska­lands, en rétt fyrir lokun hafði sú tala lækkað í nokkur hund­ruð, ekki síst vegna lengdra við­tala við sér­hvern flótta­mann sem vildi ganga í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár