Átta staðreyndir um aflandskrónufrumvarpið

Aflandskrónu­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra var sam­þykkt á Alþingi í gær­kvöldi með 47 greiddum atkvæðum. Hér eru átta stað­reyndir um frum­varpið.

Átta staðreyndir um aflandskrónufrumvarpið

1. Lögin eru liður í áætlun stjórn­valda um losun gjald­eyr­is­hafta sem birt var í fyrra­sumar.
 
2. Aflandskrónu­eignir eru eignir í eigu eða vörslu erlendra aðila, sem varð­veittar eru hjá inn­láns­stofn­unum og verð­bréfa­fyr­ir­tækjum hér á landi, sem eru lík­legir til að leita útgöngu við losun fjár­magns­hafta með nei­kvæðum áhrifum á gengi íslensku krón­unnar.


3. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að aflandskrónu­eignir nemi nú um 319 millj­örðum króna og eru í eigu fjög­urra vog­un­ar­sjóða. Ásgeir Jónsson, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, sagði í við­tali við Rás 2 í morgun að gang­ist eig­endur aflandskrón­anna við skil­málum lag­anna muni ríkið hagn­ast um 116 millj­arða króna.


4. Samkvæmt lög­unum mun Seðla­banki Íslands standa fyrir gjald­eyr­is­út­boði með það að mark­miði að greiða fyrir útgöngu aflandskrónu­eigna án nei­kvæðra áhrifa á geng­is­stöð­ug­leika á inn­lendum gjald­eyr­is­mark­aði og gjald­eyr­is­forða bank­ans. Þar verður aflandskrónu­eig­endum gef­inn kostur á að skipta aflandskrónu­eignum sínum fyrir evrur á lágu gengi, 220 krónur á evru, og kom­ast þannig hjá þeim tak­mörk­unum sem lagðar eru til í frum­varp­inu. Þátttaka í gjald­eyr­is­út­boði er val­frjáls. 


5. Eigendum aflandskrónu­eigna verður gert skylt að aðgreina sér­stak­lega þær eignir sem ekki verða nýttar í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans og flytja þær á vaxta­lausa banka­reikn­inga háða sér­stökum tak­mörk­unum í síð­asta lagi 1. sept­em­ber næst­kom­andi. 


6. Fjár­fest­ing­ar­fé­lögin Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP gagn­rýndu frum­varpið harð­lega í umsögn sinni. Þeir segja lögin brjóta gegn eign­ar­rétti þeirra og að þau mis­muni fjár­festum eftir þjóð­erni eða búsetu. Lögin brjóti einnig gegn jafn­ræð­is­reglu og sjón­ar­miðum um með­al­hóf. Þá er bent á að aðferð rík­is­stjórn­ar­innar geti út á við talist sem greiðslu­falls­við­burður, sem skapi áhættu fyrir íslenska ríkið.


7. Enn á því eftir að koma í ljós hvort eig­endur aflandskrón­anna muni sam­þykkja skil­mála lag­anna. Eins og Ásgeir Jónsson benti á þá eru þeir engir við­van­ingar. „Þeir eru vanir að stunda fjár­fest­ingar. Þeir munu vænt­an­lega fara í mat um hvort betra sé að sam­þykkja þessa skil­mála eða fara í hart við okkur. Við lögðum fyrir ári ekkki ósvip­aða skil­mála fyrir kröfu­hafa gömlu bank­ana. Þá voru skil­mál­arnir að þeir legðu sjálf­krafa inn krón­urnar sínar eða þeir greiddu stöð­ug­leika­skatt. Sá skattur var á gráu svæði laga­lega. Þeir ákváðu að ganga til samn­inga og ég vona að það sama ger­ist núna,“ sagði Ásgeir í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. 


8. Í nefnd­ar­á­liti Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, segir að sam­ráðs­nefnd um losun hafta, þar sem allir stjórn­mála­flokkar eiga full­trúa, hafi ekki verið höfð með í ráðum um gerð frum­varps­ins. Þá segir hún að það sé stórt umhugs­un­ar­efni að ekk­ert sé vitað um raun­veru­lega eig­endur aflandskrónu­eigna. Þingmenn Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og Pírata sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um frum­varpið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gjaldeyrishöft

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár