Aðstoðarmaður Benedikts segir hann sjá eftir ummælunum

Aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, Gylfi Ólafsson, segir Benedikt Jóhann­es­son hafa séð eftir ummælum sínum um hinar hag­sýnu hús­mæður strax í ræðu­stól, en þetta er ekki í fyrsta skiptið Benedikt hefur verið ásak­aður um karl­rembu.

Aðstoðarmaður Benedikts segir hann sjá eftir ummælunum
Gylfi Ólafsson Aðstoð­ar­mað­ur­inn segir Benedikt sjá eftir orðum sínum Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, Gylfi Ólafsson, seg­ist hafa rætt við Benedikt Jóhanns­son um ummæli sem Benedikt lét falla í ræðu­stól í gær, og að Benedikt sjái eftir þeim. 

Ummælin lét Benedikt falla í umræðum um verk­lag við opin­ber fjár­mál, og fjall­aði Stundin um það fyrr í dag. Þar sagði hann „Mér finnst áhuga­vert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum. Það erum við Njáll Trausti og hinar hag­sýnu hús­mæður sem eru í stórum hópum hér inni. Það er þannig að það skiptir afar miklu máli að tala um þetta.“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, gagn­rýndi orða­val Bene­dikts harð­lega í dag og í kjöl­farið baðst hann afsök­unar. „Í ræðu­stól Alþingis vís­aði ég til þing­kvenna sem hag­sýnna hús­mæðra. Það var til­raun til þess að gefa hnyttið and­svar við fyrri ræðu, en hún heppn­að­ist afleit­lega. Um leið og ég heyrði mig segja þetta hugs­aði ég: „Þú ert nú ekki alltaf jafn orð­hepp­inn Benedikt.“ Þetta voru kjána­leg ummæli og ég biðst afsök­unar á þeim,“ skrif­aði hann.

„Til­raunir Bene­dikts til að vera fynd­inn eru mis­tækar.“

Gylfi Ólafsson, aðstoð­ar­maður Bene­dikts, tjáði sig um málið á Facebook í dag. Þar sagð­ist hann hafa rætt við fjár­mála­ráð­herra og að hann sæi eftir ummæl­unum, og hefði gert það strax í ræðu­stól. „Til­raunir Bene­dikts til að vera fynd­inn eru mis­tækar. Ég ræddi þetta við hann og hann sér eftir þessu; og sá eftir þessu strax í ræðu­stól.“

Gylfi tjáði sig um málið á síðu Ingu Auð­bjargar Straum­land, en hún er eig­in­kona Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, fyrrum þing­manns Pírata. Í færsl­unni biðl­aði Inga til Gylfa, sem femínista, að kenna Benedikt að vera ekki karl­rema. „Það er alveg hægt ef hann bara vandar sig. Hann getur til dæmis byrjað á því að passa sig á því hvernig hann hrósar konum og hætta að vísa í úreltar staðalí­myndir og furða sig á fjár­mála­læsi kvenna.“

Katrín eins og Lea prinsessa

Inga bendir í sömu færslu á að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem Benedikt hafi gerst upp­vís að karl­rembu. „Sami ráð­herra var sælla minn­inga upp­vís að því að hrósa Kötu Jak fyrir útlit sitt í Krydd­síld­inni, á meðan allir karl­arnir fengu hrós um umhyggju­semi og dugnað.“

Kryddsíldin
Krydd­síldin Katrín tekur við hrósi Bene­dikts um útlit sitt

Þar vísar Inga í orð Bene­dikts sem hann lét falla í Krydd­síld­inni, síð­asta gaml­árs­dag, en þau hlutu umtals­verða gagn­rýni. Í þætt­inum voru saman komnir sjö full­trúar stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi, en aðeins einn af þeim, Katrín Jak­obs­dóttir, var kona. Þegar full­trú­unum var gert að hrósa hver öðrum, og var Katrín sú eina þeirra sem fékk hrós fyrir útlit. Benedikt sagði við það til­efni: „Ég var nú að hafa orð á því við Katrínu áðan að mér finnst hún vera eins og Lea prinsessa hérna, hún er svo flott hérna í dag. Það er eig­in­lega bara það fal­leg­asta sem ég get sagt um þig að þessu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár