Að skrifa er eins og að vera í pleymó

Júlía Margrét Ein­ars­dóttir er að leggja loka­hönd á tvær skáld­sögur, önnur kemur út í haust en hin í vor. Í stað þess að loka sig inni á afskekktum stað við skrift­irnar, eins og skáld gjarna gera, hefur hún und­an­farna tvo mán­uði flakkað milli borga í Evrópu. Hvernig fer það saman að skrifa og flakka og hvað er hún eig­in­lega að gera þarna?

Að skrifa er eins og að vera í pleymó

„Ég er á ferða­lagi um Evrópu að labba um og skoða borgir sem ég hef ekki heim­sótt, læra að segja „takk“ á fram­andi tungu­málum og skrifa. Var að klára bók sem ég er að gefa út í sept­em­ber hjá Partus press og er að leggja loka­hönd á aðra sem kemur út í vor. Mest­megnis kannski líka að drekka kok­teila ...“

Segðu mér meira frá þessum tveimur bókum, eru þetta skáld­sögur?

„Já, önnur þeirra sú sem er að koma út ber vinnu­heitið Grandagall­erí og hún mun koma bara seint í næsta mán­uði, hin heitir Sirkús, hún er veg­legri og hefur verið lengi í smíðum en flakkið hér hefur haft mjög góð áhrif og það er loks að kom­ast loka­mynd á hana.“

Eru þetta jálfsævi­sögu­legar sögur?

„Nei, þær eru það hvorug, en byggja bara báðar á ýmsu sem mætti setja í sjálfsævi­sögu­legt sam­hengi. En bæk­urnar eru ekki sjálfsævi­sögu­legar, allt bara skáld­skapur. Grandagall­erí ger­ist að hluta til í Barcelona og ég er einmitt þar núna, svo það hjálpar að koma þangað að skoða sig um til að draga upp raun­sæja mynd af borg­inni. Sirk­ús­inn í Sirkús er reistur í borg sem er ekki til, en ég stel borg­ar­mynd­inni bara með því að blanda saman evr­ópskum borgum sem ég er að heim­sækja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár