Tíu mest lesnu fréttaskýringar Stundarinnar á árinu

Aðstæður fanga, starfs­fólks í ferða­þjónustu og ungs fólks á fasteigna­markaði, þetta var á meðal þeirra viðfangs­efna sem mest lesnu frétta­skýringar ársins fjölluðu um.

1  Fangelsi án lausnar

Í fangelsinu á Hólms­heiði eru konur lokaðar inni vegna brota sem þær frömdu undir áhrifum áfengis- og vímuefna. Fá úrræði eru hins vegar til staðar inni í fangelsinu til þess að mæta þessum vanda, þar sem einn sálfræðingur sinnir öllum föngum í fangelsum og enginn meðferðar­gangur er fyrir konur. Það er ekki heldur neitt sem tekur við þeim þegar þær ljúka afplánun, og þær lýsa því hvernig þær fara beint úr fangelsi á götuna og þaðan aftur inn í fangelsið. Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir kynnti sér lífið í fangelsinu á Hólms­heiði.

 

2 Það sem SÁÁ vill ekki tala um

Meðferð SÁÁ snýst um að lækna „lífs­hættulegan heila­sjúkdóm,“ en konur hafa upplifað ógnanir og áreitni frá dæmdum brota­mönnum í meðferðinni. Ung stúlka lýsir því hvernig hún hætti í meðferð vegna ógnana og áreitis. Vinkona móður hennar var vikið fyrirvara­laust úr meðferð án skýringa, eftir að hún tilkynnti um áreitni, og ekki vísað í önnur úrræði þrátt fyrir alvarleika sjúk­dómsins. Forsvars­menn SÁÁ segja gagnrýni ógna öryggi og heilsu annarra sjúklinga og vísa henni á bug.

 

3 Ungt fólk flýr klær GAMMA og heldur sig í hreiðrinu

Stundin rýndi í húsnæðis­málin á árinu og komst að því að ungt fólk situr eftir í lengstu samfelldu uppsveiflu lýðveldis­sögunnar. Þrátt fyrir aukinn hagvöxt og kaupmátt hefur sjaldan verið erfiðara fyrir ungt fólk að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Húsnæðis­skortur, fjölgun erlendra ferða­manna og uppkaup stórra leigu­félaga á jafnvel heilu íbúða­blokkunum hefur ýtt undir sífellt hækkandi húsnæðis- og leiguverð á undan­förnum árum sem veldur því að fjöldi fólks kemst ekki úr foreldra­húsum, gefst jafnvel upp og flytur úr landi. Ekki sér fyrir endann á þeirri þróun.

 

4 Ótti og grátur eftir störf á farfuglaheimili á Selfossi

Stundin fjallaði ítarlega um brot á erlendu starfs­fólki á árinu. Ein sagan er af Dagmöru og Gabrielu, pólskum konum sem voru ráðnar til starfa á Farfugla­heimilinu á Selfossi. Himinn og haf var hins vegar á milli þess hvernig starfið var auglýst og hvernig það var í raun. Vinnutími var mun lengri, frí var mun minna, matur var ekki inni­falinn og laun ekki greidd.

  

5 Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyðarlögin voru sett

Í byrjun október greindi Stundin frá því að Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætis­ráðherra, hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana 2. til 6. október árið 2008, en hann var þá þingmaður Sjálfstæðis­flokksins. Umfjöllunin var unnin í samstarfi við RME og breska fjöl­miðilinn Guardian og byggði á nýjum gögnum sem varpa ljósi á hlutabréfa­sölu Bjarna í Glitni í febrúar 2008 en hann fundaði með banka­stjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrjaði að selja bréfin.

Enn er í gildi lögbann á Stundina vegna umfjöllunarinnar. 

 

6 Tengsl manndrápsmanna við útlendingahatur og ógnanir

Sveinn Gestur Tryggvason var í sumar hand­tekinn fyrir morðið á Arnari Jónssyni Aspar, en hann hafði áður ógnað og hótað fólki sem hefur sett sig á móti þjóðernis­sinnuðum stjórn­málum, líkt og Stundin greindi frá. Hann fangaði því að hælis­leitandi kveikti í sér og kom meðal annars að heimili bloggara sem hafði haldið úti gagnrýni á þjóðernis­sinna. 

 

7 Íslendingar flytja úr landi til að geta lifað af framfærslu sinni

Stundin fjallaði um land­flótta Íslendinga til Spánar, en um 200 Íslendingar hafa keypt húsnæði á Spánar­ströndum það sem af er þessu ári. Þúsundir búa allt árið eða að hluta á Costa Blanca, Hvítu ströndinni. Öryrkjar og eldri borgarar geta lifað mann­sæmandi lífi í stað þess að berjast við fátækt, en helmingi ódýrara er að lifa á Spáni en á Íslandi.

 

8 Forsætisráðherra á gráu svæði stjórnmála og viðskipta

Í mars á þessu ári rýndi Stundin í tengsl Bjarna Benedikts­sonar, þáverandi forsætis­ráðherra, við viðskipta­lífið en hann var umsvifa­mikill í viðskiptum samhliða þing­mennsku. Félög sem hann stýrði eða átti aðkomu að stefna í að skilja eftir sig tæplega 130 milljarða króna af afskriftum, sem nemur næstum því tvöfaldri upphæð leið­réttingar verð­tryggðra húsnæðis­lána. Bjarni og faðir hans tóku ákvarðanir um sölu hluta­bréfa þegar hann var í kjör­aðstæðum til að njóta upplýsinga sem almennur aðili á markaði hafði ekki. Síðar á árinu kom í ljós að Bjarni seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana fyrir hrun árið 2008.

 

9 Stríðsglæpamaðurinn sem við elskuðum: Saga af glæpum og meðvirkni

Karl Th. Birgisson rifjaði upp hvernig íslenska þjóðin stóð með stríðs­glæpamanni sem stóð að skefja­lausu ofbeldi og morðum á gyðingum og fleirum í seinni heims­styrjöldinni. Morgun­blaðið tók meðal annars þá fyrir sem bentu á sannanir í máli Eðvalds Hinriks­sonar og tengdi þá við sovésku leyni­þjónustuna.

  

10 Draumurinn á Íslandi breytist í martröð

Með örum vexti ferðamanna­iðnaðar á Íslandi hafa skapast kjörnar aðstæður fyrir brot þar sem vinnu­veitendur nýta sér vanþekkingu erlendra starfs­manna. Stundin fjallaði ítarlega um málið og sagði sögur starfs­manna af erlendum uppruna sem upplifði sig svikið. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár