Bækur gegn gleymsku

Það er mik­ill völlur á frændum okkar Norð­mönnum í menn­ing­ar­geir­anum þessa dag­ana. Í byrjun árs voru þeir heið­urs­gestur á stærstu kvik­mynda­há­tíð Evrópu, Berl­inale, í höf­uð­stað Þjóð­verja, og nú í haust voru þeir heið­urs­gestur á bóka­mess­unni miklu í Frank­furt. Íslend­ingar voru í sama hlut­verki fyrir níu árum og þótti takast með afbrigðum vel. En hvernig lítur þetta út hjá Norð­mönnum?

Bækur gegn gleymsku
Karl Ove Knaus­gaard var í pall­borði Með seríu sinni, Min Kamp, er hann orð­inn einn allra vin­sæl­asti Norð­maður heims. Mynd: Frankefurter Buchmesse

Frændur vorir Norðmenn eru þekktir fyrir að leita til Íslands þegar mikið liggur við, sem er reyndar ástæða þess að nokkur býr hér yfir­höfuð. Í seinni tíð hafa þeir reynt að eigna sér Leif Eiríks­son, ráðið til sín Svíann Lars Lagerbäck beint úr íslenskum æfinga­búðum og nú er röðin komin að Halldóri Guð­munds­syni. Halldór var, eins og flestir vita, síð­ast fram­kvæmda­stjóri Hörpu hér­lendis, en sá einnig um að skipu­leggja íslensku heim­sókn­ina til Frank­furt árið 2011. 

Ekki var að sjá á norska skál­anum að hann bæri sér­stök höf­und­ar­ein­kenni Halldórs. Að mörgu leyti er hann and­stæða hins íslenska. Á meðan íslenski skál­inn var hlýr og nota­legur, þar sem gestum var boðið upp á að setj­ast niður með bók í sófa með nátt­úru­myndir sem bak­grunn, þá var norski skál­inn skjanna­hvítur með speglum á veggjum og meira í ætt við það sem kalla má „Nordic Cool“.  

Íslendingar og Norðmenn til bjargar flóttamönnum

„Við höfum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár