Atvinnurekendur vara við frumvarpi Þórdísar: „Draumaland þeirra sem kjósa að brjóta samkeppnislög“

Félag atvinnu­rek­enda styður ekki ákvæði frum­varps Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra um Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Félagið segir að sam­þykki Alþingi frum­varpið muni það „ganga erinda stór­fyr­ir­tækja“.

Atvinnurekendur vara við frumvarpi Þórdísar: „Draumaland þeirra sem kjósa að brjóta samkeppnislög“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir Félag atvinnu­rek­enda leggst gegn frum­varpi ráð­herra. Mynd: xd.is

Félag atvinnu­rek­enda leggst gegn því að staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verði veikt, eins og félagið telur verða afleið­ing frum­varps Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, kemur fram að félagið sé ein­dregið gegn afnámi heim­ildar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að bera ákvarð­anir áfrýj­un­ar­nefndar Sam­keppn­is­mála undir dóm­stóla. 

Álit Félags atvinnu­rek­enda gengur þvert gegn áliti Samtaka atvinn­lífs­ins (SA), sem hafa þrýst á laga­breyt­ing­una. 

Halldór Benjamín Þor­bergs­sonFram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins er ánægður með frum­varp sem Félag atvinnu­rek­enda segir myndu koma á „drauma­landi þeirra sem kjósa að brjóta sam­keppn­is­lög.“

Það hefur meðal ann­ars birst í því að fram­kvæmda­stjóri SA, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, hefur harð­lega gagn­rýnt Gylfa Magn­ús­son, lektor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og for­mann banka­ráðs Seðla­bank­ans, og sagt and­stöðu hans við frum­varpið vera ósæm­andi stöðu hans. Halldór Benjamín sagði nýverið í sam­tali við Mark­að­inn að hann vildi ganga lengra. „Sam­keppn­is­lögin hér eru meira íþyngj­andi en víð­ast hvar ann­ars staðar í Evrópu og því eru þessar breyt­ingar skref í rétta átt. Heilt yfir erum við jákvæð, en við hefðum viljað ganga lengra.“

„Við hefðum viljað ganga lengra“

Félag atvinnu­rek­enda færir hins vegar fram harða gagn­rýni á frum­varpið og varar við afleið­ingum þess.

„Með því að sam­þykkja umrædda breyt­ingu væri Alþingi að ganga erinda stór­fyr­ir­tækja sem vilja kom­ast hjá rétt­mætum afleið­ingum sam­keppn­islaga­brota sinna og við­halda hátt­semi sem skaðar allan almenn­ing,“ segir í umsögn félags­ins. „Þannig tæki þingið sér stöðu gegn almenn­ingi í land­inu, sem og gegn smærri og með­al­stórum fyr­ir­tækjum sem hvað mesta hags­muni eiga af því að farið sé að ákvæðum sam­keppn­islaga.“

Bendir félagið á að dóma­fram­kvæmd hafi tak­markað aðgengi að dóm­stólum. „Sérstakt laga­á­kvæði um aðild Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að dóms­málum til ógild­ingar á nið­ur­stöðum ÁNS [Áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála] vinnur gegn þessum mein­bugi og tryggir þar með hags­muni fyr­ir­tækja, neyt­enda og alls almenn­ings.“

„Hér er um að ræða drauma­land þeirra sem kjósa að brjóta sam­keppn­is­lög og hafa ábata af slíkum brotum“

„Til­gangur frum­varps­drag­anna hvað varðar aðgengi að dóm­stólum er aug­ljós,“ segir í umsögn­inni. „Verið er að nota fram­an­greindan rétt­ar­far­sann­marka til þess að búa til skálka­skjól fyrir þá aðila sem brjóta sam­keppn­is­lög en koma sér hjá afleið­ingum gjörða sinna fyrir ÁNS. Sé slíkur aðili svo „lán­samur“ að fá ranga nið­ur­stöðu ÁNS um sak­leysi sitt mun sú nið­ur­staða verða end­an­leg fyrir þann aðila þar sem íslenskar rétt­ar­fars­reglur stæðu í vegi þess að aðrir gætu borið hina röngu nið­ur­stöðu undir dóm­stóla. Enn verri er sú stað­reynd að hin ranga nið­ur­staða ÁNS yrði í fram­haldi for­dæm­is­gef­andi í sam­bæri­legum málum og því gild­andi réttur á við­kom­andi sviði. Það þýddi í raun að borg­ar­arnir þyrftu að búa við við­var­andi órétt sökum þess að rangri nið­ur­stöðu ÁNS væri ekki hægt að hnekkja. Hér er um að ræða drauma­land þeirra sem kjósa að brjóta sam­keppn­is­lög og hafa ábata af slíkum brotum. Að sama skapi er þetta martröð þeirra sem trúa á virka sam­keppni, heil­brigða við­skipta­hætti og eðli­legt og virkt rétt­ar­ríki þar sem óréttur fær ekki óhindr­aða fram­göngu.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samkeppnismál

KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt
Skýring

KS kaupir Kjarna­fæði – Skag­firska efna­hags­svæðið orðið Norð­ur­land allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár