KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt

KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) hefur gengið frá samn­ingum um kaup á meiri­hluta hluta­fjár í Kjarna­fæði Norð­lenska (KN). Viku­dagur greindi fyrst frá þessu í gær­kvöldi.

Bræð­urnir Eiður og Hreinn Gunn­laugs­synir sem eiga 57% hluta­fjár í Kjarna­fæði, og stofn­uðu fyr­ir­tækið fyrir fjórum ára­tugum, hafa  sam­þykkt að selja fyr­ir­tækið til Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Með­eig­endur bræðr­anna, í kringum 400 bændur sem eiga 43% hlut í Kjarna­fæði, í gegnum félagið Búsæld ehf., hafa einnig fengið til­boð í sína hluti. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur KS boðið um tvo og hálfan millj­arða króna í Kjarna­fæði. Í kringum 1.500 millj­ónir króna renna því til bræðr­anna og millj­arður króna færi til bænd­anna sem eiga Búsæld, taki þeir til­boð­inu.

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    . Þetta er sorgardagur fyrir Neytendur og Glæpsamlegt athæfi hja Alþingi, Matar verð hækka og Okur aukast mikið. Kaupfelag Skagfirðinga er Glæpa Samkvunta það er Storveldi i Utgerð og öðrum viðskiptum. Þeir eiga nu Felög a Höfuð borgar svæðinu Maiones Verksmiðju og Hamgorgarastaði og otalmargt sem gefur pening i aðra hönd. Heimilin munu Blæða fyrir svona Hakalla sem eru Ovinir Neitands Okur Hundar, nefna ma Ali sem a Svinabu og kjötvinslu Lifland sem a Hænsnabu a Vatnleysuströnd með 100.000 hænur rekið a SNYKJUSTIRA BOTUM og annað i Arnessyslu Þessir firar Aka um a Luxux Kerrum og Neytandinn heldur þessum Vesalingum Gangandi. SS sem er Mafiufelag og Mjolkursamsalan öll þessi felög þarf að Brjota upp. Ferðamönum a eftir að snarfækka næstu 5 arin. Island er Stimplað inn sem Land með dyrasta mat i heimi. Þessi Glæpafelög eiga TOLLKOTA og flitja in Kjötvörur i Massavis þa Þorolfur a Sauðarkroki. Rikistjornin er Baneitruð og þarf að Hætta Strax
    Þeir hafa leikið þjodina Gratt. Kvernig er Husnæðis Verðið. Það eina sem getur Bjarkað Þjoðini er AÐILD AÐ EVROPU BANDALAGININU OG FRJALS INFLUTNINGUR MATVÆLA.
    Kvað varð um SIS og Samvinnuhreifinguna, og X B Sem mun ÞURKAST UT I NÆSTU KOSNINGUM.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    xB mafían
    3
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það mega þeir eiga, blessaðir Framsóknarmennirnir, að þeir gera enga tilraun til að fela spillinguna. Flokkast líklega sem siðblinda. Allt fer þetta síðan fram í boði Vg og Sj.fl.
    4
    • Sigmundur Gretarsson skrifaði
      Framsóknarmenn allra flokka standa alltaf saman.
      0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Er ekki best að kjósa bara Framsókn.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samkeppnismál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár