Get ég hreyft mig án þess að jöklarnir bráðni? Má ég fara á rúntinn? Á nagladekkjum? Má ég horfa á eitt uppistand án þess að grínistinn hafi káfað á börnum eða konum eða fróað sér fyrir framan þær? Má ég fá mér gos? Hvaða pískaði bóndi grét ofan í moldina sem kaffibaunirnar mína uxu í? Get ég fengið að horfa á eina bíómynd án þess að leikstjórinn eða framleiðandinn eða aðalleikarinn hafi sofið hjá dóttur sinni eða reynt að þvinga allar konur sem unnið hafa fyrir hann með sér í sturtu? Má ég lesa Moggann? Fara á dv.is? Má ég hlusta á eina hljómsveit án þess að vita að söngvarinn hafi lamið konuna sína í plokkfisk eða misnotað vald sitt með því að troða frosinni síld í klofið á grúpppíum? Má ég hlusta á rappara án þess að hann hafi gripið í píkur eða gefið allt of ungum stelpum dóp svo þær dóu raundauða bakvið sófa í einhverju ömurlegu partíi? Get ég farið á Facebook til þess að spjalla við vini og kunningja án þess að nafnlaus áróður og lygar troði sér í augun á mér? Má ég skoða fyndin kisu-meme án þess að persóna mín sé seld til einkafyrirtækja? Hvaða þrælasviti er í aukabúnaðnum í farsímanum mínum? Má ég hlusta á Grínverjann? Má ég fá mér epli? Get ég fengið að taka húsnæðislán af einhverjum öðrum en siðblindum mafísósa íklæddum bankastjórabúningi? Má ég setjast upp í rútu sem er ekki í eigu aflandspésa eða fara í verslunarmiðstöð sem er ekki þrifin af fyrirtæki í eigu aflandspésa eða fara með bílinn minn í skoðun hjá fyrirtæki sem er ekki í eigu aflandspésa eða nota greiðslukortið mitt án þess að færa krónur í vasa aflandspésa? Má ég setja sjampó í fitugan lubbann án þess að það innihaldi pálmaolíu sem er með líf þúsunda saklausra órangútanunga á samviskunni? Má ég setja skeinipappír í klósettið áður en ég drulla svo það skvettist ekki fjósavatn á hvítan og sígandi rassinn? Fæ ég að éta einn helvítis hamborgara án þess að kokkurinn og afgreiðslufólkið séu niðurlægðir þrælar á skítakaupi af innflytjendaættum? Má ég ganga í fötum sem kosta ekki hvítuna úr augunum án þess að þau séu saumuð af barnaþrælum? Hvaða þjáning er í þráðum þeirra? Blóð hvaða krakka er í sólum skónna minna? Má ég fá mér vatnsflösku? Má ég fara í matvöruverslun? Má ég kaupa þennan bíl? Má ég setjast inn í flugvél? Má ég fara á hótel? Get ég fengið mér kakómalt? Sett smjör á brauðið mitt? Má ég setja lax á það? Hvernig ætli ég traðki á jörðinni og íbúum hennar í dag? Gröf hvaða sakleysingja er ég óafvitandi að svívirða í þessum töluðu orðum? Hvaða samviskubit fæ ég næst? Og hvaða samviskubit ætti ég að vera með akkúrat núna? Eða er séns á að sleppa við blæðandi magasár af móral á þessum síðustu og langverstu á meðan allt helvítis draslið brennur og sekkur? Er hægt að bæta ráð sitt án þess að tapa lífsgleðinni? Eða eigum við að halda áfram svona? Að rústa okkur andlega á meðan við rústum okkur endanlega.
Athugasemdir