Tilkynnt um sex tilvik kynferðislegs áreitis eða ofbeldis er sneru að Atla Rafni

Kristín Eysteins­dóttir leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins taldi sér ekki annað fært en að segja Atla Rafni Sig­urð­ar­syni upp störfum til að tryggja öryggi á vinnu­staðnum. Atli Rafn hefur ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um til­vikin.

Tilkynnt um sex tilvik kynferðislegs áreitis eða ofbeldis er sneru að Atla Rafni
Kann­að­ist ekki við sögur af áreitni Atli Rafn Sig­urð­ar­son sagði af og frá að hann hefði áreitt konur kyn­ferð­is­lega. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frá því í byrjun des­em­ber og fram í miðjan mán­uð­inn árið 2017 fékk Kristín Eysteins­dóttir, leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Reykja­víkur, inn á borð til sín sjö til­kynn­ingar sem vörð­uðu sex atvik um kyn­ferð­is­lega áreitni og kyn­ferð­is­legt ofbeldi af hálfu Atla Rafns Sig­urð­ar­sonar leik­ara, sem þá var starf­andi í Borg­ar­leik­hús­inu. Taldi Kristín sér ekki annað fært til að verja starfs­fólk sitt og Borg­ar­leik­húsið en að segja Atla upp störfum.

Atli sagði fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun, í mál­flutn­ingi sínum í dóms­máli hans gegn leik­hús­stjór­anum og leik­hús­inu, að hann hefði komið af fjöllum þegar honum var greint frá upp­sögn­inni og ástæðum hennar. Hann fékk ekki þá, né hefur fengið síðan, upp­lýs­ingar um hverjar þessar konur væru, hvenær meint brot áttu sér stað eða með hvaða hætti. Atli Rafn seg­ist telja að það and­rúms­loft sem ein­kenndi sam­fé­lagið á þessum tíma, með því að #metoo bylt­ingin hafði risið hvað hæst á, hafi valdið því að Kristín tók ákvörðun um að segja honum upp störfum eftir að hafa heyrt sögur af fram­ferði hans. „Mér hefur verið haldið í algeru myrkri um hvaða atburðir þetta eiga að hafa verið og hver eigi í hlut. Það gerir mér ókleift að verja hendur mínar á nokkurn hátt.“

Lýstu kvíða og ótta vegna samstarfs við Atla

Við aðal­með­ferð máls Atla Rafns á hendur Borg­ar­leik­hús­inu og Kristínu kom fram að þrjár af þeim sex konum sem kvört­uðu undan Atla Rafni voru starf­andi við Borg­ar­leik­húsið á þeim tíma sem Atli Rafn var þar við störf. Að minnsta kosti eitt til­vikið sem um ræðir var sagt hafa átt sér stað á vinnu­tíma og á starfs­stöð Borg­ar­leik­húss­ins á meðan að Atli Rafn var þar starf­andi. Lýstu þær í sam­tölum við Kristínu, eftir fram­burði hennar, því að þær upp­lifðu kvíða og van­líðan þegar þær mættu til vinnu í Borg­ar­leik­hús­inu. Þá lýstu sumar því að því fylgdi ótti að vinna á sama stað og Atli Rafn. Kristín greindi frá því að kon­urnar sem um ræðir hefðu allar leitað til hennar í trún­aði vegna máls­ins og teldi sig ekki hafa nokkra heim­ild til þess að greina, hvorki Atla Rafni né öðrum, nánar frá því sem fram kom á þeim fundum. Hún hafi hins vegar ekki átt neinna ann­arra kosta völ en að segja Atla Rafni upp störfum. „Þarna eru fjórir starfs­menn leik­húss­ins sem horfa í augun á mér og segja að þeir upp­lifa mikla van­líðan og kvíða við að mæta í vinn­una.“

„Þarna eru fjórir starfs­menn leik­húss­ins sem horfa í augun á mér og segja að þeir upp­lifa mikla van­líðan og kvíða við að mæta í vinn­una“

Atla Rafni var sagt upp störfum í des­em­ber 2017 vegna þess fjölda ásak­ana sem Kristínu var greint frá. Atli Rafn sagð­ist ekki kann­ast við að hafa nokkurn tíma brotið á neinum né áreitt kyn­ferð­is­lega, hvorki tengt störfum sínum né í einka­lífi. Hann hafi fram til þessa getað valið úr hlut­verkum í íslensku leik­húsi. „Það má segja að minn fer­ill hafi staðið í miklum blóma þar til ég var rek­inn frá Leik­fé­lagi Reykja­víkur haustið 2017.“

Sagði #Metoo sögu um sig lygasögu

Atli Rafn fer fram á að fá greiddar tíu millj­ónir króna í skaða­bætur og þrjár millj­ónir króna í miska­bætur vegna upp­sagn­ar­innar sem hann telur ólög­mæta. Lýsti hann því sem svo að atvinnu­mögu­leikar hans væru í „rusl­flokki“ eftir að málið kom upp, hann hefði misst tekjur vegna þess og vísað meðal ann­ars í að Krónan hefði sagt upp við hann samn­ingi um aug­lýs­inga­lestur vegna máls­ins.

„Það má segja að minn fer­ill hafi staðið í miklum blóma þar til ég var rek­inn frá Leik­fé­lagi Reykja­víkur haustið 2017“

Atli Rafn greindi frá því að ein af sög­unum sem kom fram í #Metoo bylt­ing­unni hefði átt við hann. Atli Rafn kall­aði þá sögu hins vegar „lyga­sögu“ en hún fjall­aði um að hann hefði, drukk­inn við tökur á kvik­mynd, stungið tungu sinni upp í mót­leikkonu. Vildi hann ekki kann­ast við að það væri rétt. Umrædd mót­t­leik­kona hefði verið við störf í Borg­ar­leik­hús­inu þegar hann kom þangað til starfa og faðir hennar einnig, sem leik­ari þar. Lýsti Atli því að þau hefðu ekki heilsað sér á göng­unum og hefði and­rúms­loftið verið óþægi­legt að hans mati.

Spurður hvort hann teldi að sú saga sem var rakin hefði haft eitt­hvað með upp­sögn hans að gera sagði Atli Rafn að hann hefði þrá­spurt Kristínu leik­hús­stjóra um það. Hún hefði fast­lega neitað því. Hann telji þó sjálfur að svo hafi hlotið að vera.

Atli sagð­ist telja að Kristín hefði verið búin að taka sér stöðu vegna þess anda sem var yfir sam­fé­lag­inu í #Metoo bylt­ing­unni, þá stöðu að þeir sem greindu frá því að brotið væri á sér yrði skil­yrð­is­laust trúað en hags­munir ann­arra, hans þar með, yrðu fyrir borð bornir.

Fleiri tilkynningar bættust við

Kristín lýsti því að hún hefði tekið kvart­an­irnar á hendur Atla Rafni mjög alvar­lega. Fyrst hafi komið inn á hennar borð ein til­kynn­ing og þá hafi hún unnið að því að boða Atla Rafn í starfs­manna­við­tal vegna máls­ins. Á meðan unnið hafi verið að und­ir­bún­ingi þess hafi mál­unum hins vegar bara fjölgað og hún séð sig knúna til að segja honum upp, til að tryggja öryggi á vinnu­staðnum og gæta hags­muna starfs­fólks og Borg­ar­leik­húss­ins.

„Mér bar skylda til þess sem stjórn­anda að tryggja öryggi og líðan starfs­fólks“

Kristín sagði að hún hefði reynt eftir mætti að standa eins fag­lega að mál­inu eins og tök væru á. Þannig hafi við­brögð Atla Rafns, þar sem hann kom algjör­lega af fjöllum, orðið til þess að athugað var hvort hægt væri að beita væg­ari við­brögðum en brott­rekstri. Fund­ur­inn þar sem Atla Rafni hafi verið til­kynnt upp­sögn var á laug­ar­degi og annar fundur var hald­inn, með lög­mönnum, dag­inn eftir þar sem rætt var um hvort hægt væri að milda aðgerð­irnar. Í því skyni hafi lög­menn Atla Rafns og Borg­ar­leik­húss­ins ætlað að ræða saman á mánu­degi, en í milli­tíð­inni hafi Kristínu borist tvær til­kynn­ingar til við­bótar um brot af hálfu Atla Rafns og því hafi verið óhjá­kvæmi­legt annað en að láta upp­sögn­ina standa.

Kristín sagði að ákvörð­unin um upp­sögn Atla Rafns hefði ekki verið tekin á óat­hug­uðu ráði, síður en svo. Þegar hún hafi komið til fram­kvæmda hafi aðeins verið tvær vikur í að frum­sýna ætti jóla­leik­rit Borg­ar­leik­húss­ins, Medeu, þar sem Atli Rafn átti að leika aðal­hlut­verk. Óhjá­kvæmi­legt var að fresta frum­sýn­ing­unni með til­heyr­andi kostn­aði og tjóni. Kristín segir ljóst að ekki hafi verið hægt að halda striki og frum­sýna með Atla Rafn inn­a­borðs. Það hefði þýtt að hann yrði við störf hjá leik­hús­inu í að minnsta kosti tvo til þrjá mán­uði til við­bótar. Eftir að hafa verið upp­lýst um fram­ferði Atla Rafns hefði það verið á ábyrgð Krist­ínar og vinnu­stað­ar­ins, Borg­ar­leik­húss­ins, ef upp hefðu komið frek­ari atvik á þeim tíma. Við það var ekki hægt að búa, sagði Kristín. „Mér bar skylda til þess sem stjórn­anda að tryggja öryggi og líðan starfs­fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár