Jaðarskattar lágtekjufólks miklu hærri á Íslandi en í öðrum OECD-ríkjum

„Er ekki ráð að stjórn­mála­menn og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins fari að líta í kringum sig í heim­inum og velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að fara aðrar leiðir en hinar sér­ís­lensku jað­ar­skatta- og skerð­ing­ar­leiðir?“ skrifar Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor.

Jaðarskattar lágtekjufólks miklu hærri á Íslandi en í öðrum OECD-ríkjum
Skatt­byrðin þyngri Skipan skatta­mála og dreif­ing skatt­byrði ræðst af póli­tískri stefnu­mótun, ákvörð­unum og aðgerðum þeirra sem fara með skatt­lagn­ingar- og fjár­veit­ing­ar­valdið á Íslandi. Mynd: Davíð Þór

Virkir jað­ar­skattar á launa­tekjur lág­tekju­fólks eru miklu hærri á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum og víð­ast hvar í OECD. Bent er á þetta í gögnum OECD vegna nýrrar skýrslu stofn­un­ar­innar um íslenskt efna­hags­líf. Með virkum jað­ar­sköttum (e. implicit marg­inal tax rates) er átt við það hlut­fall sem greitt er í skatt af hverri við­bót­ar­krónu með til­liti til tekju­til­færslna (svo sem barna­bóta) og skatt­afsláttar. Við­mið­un­ar­hóp­ur­inn sem stuðst er við er tveggja barna fjöl­skylda þar sem for­eldrar eru full­vinn­andi, en í mynd­inni hér að neðan má sjá hvernig jað­ar­skatt­hlut­fallið breyt­ist eftir tekju­hópum, það er hlut­falli af með­al­tekjum í við­kom­andi ríkjum, ann­ars vegar á Íslandi og hins vegar í öllum OECD-ríkj­unum og á Norð­ur­lönd­unum.

Þórólfur Matth­í­as­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, gerir mynd­ina að umtals­efni í færslu á Facebook. „Eins og sjá má er jað­ar­skattur á lágar tekjur og með­al­tekjur miklu hærri á Íslandi en bæði á hinum Norð­ur­lönd­unum og í OECD. Munar þar 10 til 20 pró­sentu­stigum fyrir allra lægstu tekj­urnar og tæpum tutt­ugu pró­sentum fyrir miðl­ungs­tekjur,“ skrifar hann. „Það er greini­legt að það er grund­vall­ar­munur á því hvernig jað­ar­skattar og skerð­ingar bóta­flokka á borð við barna­bætur og vaxta­bætur vinna saman á Íslandi ann­ars vegar og ann­ars staðar í OECD hins vegar! Er ekki ráð að stjórn­mála­menn og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins fari að líta í kringum sig í heim­inum og velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að fara aðrar leiðir en hinar sér­ís­lensku jað­ar­skatta- og skerð­ing­ar­leiðir?“

Eins og Stundin hefur áður fjallað um búa Íslend­ingar við flatasta tekju­skatts­kerfi Norð­ur­landa og skatt­leggja hátekju­fólk minna en nágranna­þjóð­irnar meðan lág­tekju­fólk á Íslandi býr við einna þyngstu skatt­byrð­ina sem þekk­ist í Evrópu. Skatt­byrði lág­tekju­fólks jókst meira á Íslandi heldur en í nokkru öðru vest­rænu OECD-ríki á tíma­bil­inu 2000 til 2017. Þetta staf­aði einkum af því að skatt­leys­is­mörk og skerð­ing­ar­mörk bóta­kerf­is­ins fylgdu ekki launa­þróun. 

Breytt skatt­byrði eftir tekju­hópumMyndin sýnir mun­inn á skatt­byrði tekju­hópa, ann­ars vegar árið 1993 og hins vegar árið 2015, og birt­ist í umfjöllun Stund­ar­innar um skýrslu Stefáns Ólafs­sonar og Indriða H. Þor­láks­sonar um skatt­kerfið í fyrra.

Aukin skatt­byrði lág­tekju- og milli­tekju­fólks um og eftir alda­mót skap­aði umtals­vert svig­rúm til að létta byrðum af hátekju­fólki, fyr­ir­tækjum og fjár­magns­eig­endum. Þannig bjuggu Íslend­ingar, á árunum fyrir hrun, við eitt flatasta og hægri­s­inn­að­asta skatt­kerfi þró­aðra ríkja. Þetta var meðal ann­ars rétt­lætt á þann veg að svona mætti laða fjár­magn til lands­ins og draga úr skattaund­anskotum, en eins og síðar varð ljóst héld­ust skatt­breyt­ingar fyr­ir­hrunsár­anna í hendur við stór­felld skattaund­an­skot og fjár­magns­flutn­inga í skattaparadísir. „Umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs [var] ein­stakt í heim­inum á þessum tíma,“ segir í skýrslu opin­bers starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga frá 2016. 

Skatt­byrði eigna­mesta 1 pró­sents­insÞessi mynd birt­ist í ítar­legri úttekt Stund­ar­innar á skatt­kerf­inu árið 2017.

Árið 2017 greiddi íslensk fjöl­skylda með tvö börn, þar sem annað for­eldrið er á með­al­launum en hitt þénar 67 pró­sent af með­al­launum, að jafn­aði tæp­lega 27 pró­sent af tekjum sínum í beinan skatt. Skatt­byrði fjöl­skyldna á sama stað í tekju­stig­anum var 35 pró­sent í Danmörku en miklu lægri í hinum sam­an­burð­ar­lönd­unum. Ef rýnt er í þró­un­ina í löndum OECD frá alda­mótum til dags­ins í dag kemur í ljós að hvergi hefur skatt­byrði þessa hóps auk­ist jafn mikið og á Íslandi. Hér­lendis hefur skatt­byrði hóps­ins auk­ist um rúm 5 pró­sent frá árinu 2000 en víð­ast hvar í þró­uðum ríkjum hefur skatt­byrði sama hóps dreg­ist saman.

Flatasta skatt­kerfiðHér má sjá hvernig beinni skatt­byrði er dreift milli 10 tekju­hópa á Norð­ur­lönd­unum árið 2017. Ísland er með næst­hæstu skatt­byrð­ina í öllum tekju­hópum á eftir Danmörku nema hjá efstu tíu pró­sent­unum, en þar er skatt­byrðin lægst á Íslandi. Skatt­byrði lægri og milli hópanna er mun hærri á Íslandi en í Finn­landi, Noregi og Svíþjóð, en lægri en í Danmörku.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár