Forseti Íslands lagði áherslu á fjölbreytileika við Pence

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands sagð­ist von­ast til að Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, myndi gera sér grein fyrir mik­il­vægi frelsis og fjöl­breyti­leika í íslensku sam­fé­lagi.

Forseti Íslands lagði áherslu á fjölbreytileika við Pence
Hittust í Höfða Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, tók á móti Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna. Mynd: Skjáskot

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagð­ist von­ast til þess að á fundum Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, með íslenskum ráða­mönnum myndi hann gera sér grein fyrir þeim gildum sem ein­kenndu íslenskt þjóð­fé­lag og nefndi frelsi, fjöl­breyti­leika og virð­ingu fyrir sam­borg­ur­unum. Þetta sagði Guðni þegar hann tók á móti Pence í Höfða núna fyrir skemmstu.

Pence hefur sætt gagn­rýni vegna and­stöðu sinnar við rétt­indi sam­kyn­hneigðra. Hefur hann verið and­vígur því að sam­kyn­hneigðir þjóni í banda­ríska hernum og kosið gegn auknum rétt­indum LGBT+ fólks. Hann er einnig and­vígur hjóna­böndum tveggja aðila af sama kyni.

Guðni benti á að Ísland mæti góð sam­skipti við Banda­ríkin mik­ils. „Ég von­ast líka til að þú fáir til­finn­ingu fyrir þeim gildum sem okkur eru kær, frelsi, fjöl­breyti­leika, alþjóða­sam­starf og virð­ingu hverju fyrir öðru.“

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Guðni leggur áherslu á slík gildi gagn­vart banda­rískum stjórn­völdum. Þegar Donald Trump var kjör­inn for­seti árið 2016 óskaði Guðni honum til ham­ingju með þeim orðum að við styddum „jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Pence þakk­aði fyrir sig og vildi byrja á að óska, fyr­ir­fram, Íslend­ingum til ham­ingju með 75 ára afmæli lýð­veld­is­ins. Banda­ríkin væru stolt af því að hafa verið meðal fyrstu ríkja til að við­ur­kenna sjálf­stæði Íslands og hann lýsti jafn­framt ánægju með góða sam­vinnu þjóð­anna í efna­hags og varn­ar­málum alla tíð síðan.

Pence sagði að þjóðir á borð við Rússa og Kínverja væru í auknum mæli að færa sig upp á skaftið á norð­ur­slóðum og sam­starf Banda­ríkj­anna og Íslands í gegnum NATÓ og beint til að gæta hags­muna Banda­ríkj­anna á svæð­inu. „Við erum þakk­lát fyrir varn­ar­sam­starf ríkj­anna og við­veru banda­ríkja­hers á Íslandi og við Ísland.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár