Kynna sig sem nýtt símafyrirtæki en eru í helmingseigu Vodafone

101 Sam­bandið, mark­aðs­sett sem „síma­fé­lag fram­tíð­ar­innar“, er kynnt af með­limum Útvarps 101 sem „nýtt fyr­ir­tæki“. Um er að ræða sam­starfs­verk­efni Family 101 sf og Vodafone, í helm­ing­seigu beggja aðila.

Kynna sig sem nýtt símafyrirtæki en eru í helmingseigu Vodafone
101 Sam­bandið Þekktir lista­menn standa bak við nýja vöru­merkið.

Nýja síma­vöru­merkið 101 Sam­bandið, sem mark­aðs­sett er með tón­listar- og leik­li­st­ar­fólk­inu sem stendur á bak við Útvarp 101 og hljóm­sveitir á borð við Sturla Atlas, verður rekið á kerfum Vodafone, sem er í eigu Sýnar. 101 Sam­bandið er ekki lög­að­ili, heldur eiga not­endur við­skipti beint við Vodafone, þvert á orð þeirra sem kynna þjón­ust­una.

101 Sam­bandið var kynnt á blaða­manna­fundi í Hörpu í morgun. „Ég kynni til leiks sam­bandið, síma­fé­lag fram­tíð­ar­innar,“ sagði Unn­steinn Manuel Stef­áns­son söngv­ari við tæki­færið. Hann er einn eig­enda helm­ings­hlutar á móti Sýn í 101 Productions, ásamt bróður sínum Loga Pedro, tón­list­ar­mönn­unum og bræðr­unum Jóhanni Krist­ó­fer og Haraldi Ara Stef­áns­sonum, Sig­ur­bjarti Sturlu Atlasyni, Agli Ást­ráðs­syni og Aroni Má Ólafs­syni, einnig þekktum sem Aroni Mola.

Logi Pedro neit­aði því aðspurður af not­endum á Facebook og Twitter í dag að 101 Sam­bandið væri ný þjón­ustu­leið Vodafone. „Þetta er ný far­síma­þjón­usta. Ekkert rebr­and. Annað fyr­ir­tæki.“

101 Productions, fyr­ir­tækið sem rekur Útvarp 101, er hins vegar að hálfu leyti í eigu Sýnar, sem á Vodafone. Skil­málar á síðu 101 Sam­bands­ins eru einnig skýrir um að Sam­bandið sé ekki lög­að­ili, heldur sé við­skipta­sam­band not­enda við Sýn: „Sá lög­að­ili sem nefndur er Sam­bandið í skil­málum þessum er Vodafone / Sýn hf. Með sam­þykki eða stað­fest­ingu þess­ara skil­mála sam­þykkir áskrif­andi jafn­framt skil­mála Vodafone fyrir fjar­skipta­þjón­ustu eins og þeir eru hverju sinni, en skil­málar þeir eru aðgengi­legir á vef­síð­unni www.vodafone.is.“

Logi Pedro segir í athuga­semd sem hann sendi Stund­inni að alþekkt sé að fjar­skipta­fyr­ir­tæki kaupi dreif­ing­ar­þjón­ustu ann­ars staðar frá. Svo sé í þessu til­felli.

„101 Sam­bandið er sam­starfs­verk­efni 101 Productions og Sýn hf. líkt og kemur skýrt fram á heima­síðu 101 Sam­bands­ins.  

Allar vörur 101 Sam­bands­ins eru þró­aðar af 101 Productions, hins­vegar er tækni­vinna og rekstur fjar­skipta­hluta í höndum Sýnar hf. Því liggur fyrir að Sýn er lög­að­ili á bak­við fjar­skipta­þjón­usta. 
Daglegur rekstur Sam­bands­ins á sér stað í höf­uð­stöðvum 101 Productions, sem og er þjón­ustu­ver okkar rekið í höf­uð­stöðvum 101 Productions.
Ef ég hefði haft tæki­færi á því að gera athuga­semd við upp­runa­legu frétt­ina hefði ég sagt að við hjá 101 Productions erum afar stolt af sam­starfi okkar við Sýn og af 101 Sam­band­inu. Tæknileg úrræði Sýnar gera okkur kleift að bjóða upp á frá­bæra vöru sem ætti að hrista vel uppi í íslenskum fjar­skipta­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár