Haraldur Reynir Jónsson er einn systkinanna sem kennd eru við útgerðarfyrirtækið Sjólaskip. Hann hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot á skattalögum, með þeim hætti að vantelja tekjur að upphæð 245 milljónir króna. Nafn hans var í Panamaskjölunum og var hann viðskiptavinur lögmannsstofunnar Mossack Fonseca.
Haraldur Reynir var með rúma 1 milljón á mánuði í almennar tekjur á síðasta ári en fékk 30 milljónir króna í fjármagnstekjur á árinu.
Athugasemdir