Mestur munur á tekjuháum körlum og konum í Reykjavík

Í fyrra höfðu tíu tekju­hæstu karl­arnir í Reykja­vík meira en þrefalt hærri heild­ar­tekjur sam­an­lagt en tíu tekju­hæstu kon­urnar í höf­uð­borg­inni, eða 8,4 millj­arða sam­an­borið við 2,5 millj­arða kvenn­anna. Horft til sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er minnstur munur á heild­ar­tekjum tekju­hæstu karl­anna og kvenn­anna í Hafn­ar­firði.

Mestur munur á tekjuháum körlum og konum í Reykjavík
Jón og Rannveig Jón Björns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Festar, og Rannveig Rist, for­stjóri Alcan á Íslandi, eru bæði búsett í Garðabæ, þar sem tekju­hæstu karl­arnir hafa sam­an­lagt rúm­lega tvö­falt hærri heild­ar­árs­tekjur en tíu tekju­hæstu kon­urnar. Jón og Rannveig eru bæði í hópi þeirra tíu tekju­hæstu af sínu kyni í Garðabæ. Jón var tekju­hæsti for­stjóri lands­ins í fyrra sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra, með um 28,4 millj­ónir króna á mán­uði. Rannveig er eina konan sem komst á topp tíu list­ann yfir tekju­hæstu for­stjóra lands­ins. Hún vermir þar tíunda sætið og hefur tals­vert lægri tekjur en Jón, eða 6,2 millj­ónir á mán­uði.

Tals­verður munur er á heild­ar­árs­tekjum tekju­hæstu íbú­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir kyni. Í fimm af sex sveit­ar­fé­lögum eru heild­ar­tekjur tekju­hæstu tíu karl­anna í það minnsta tvö­falt hærri en heild­ar­tekjur tíu tekju­hæstu kvenn­anna. 

Mestur er mun­ur­inn í Reykja­vík. Tíu tekju­hæstu karl­arnir í Reykja­vík höfðu sam­an­lagt rúm­lega 8,4 millj­arða króna í heild­ar­árs­tekjur í fyrra, á meðan tíu tekju­hæstu kon­urnar þar höfðu tæp­lega 2,5 millj­arða í heild­ar­árs­tekjur sam­an­lagt. 

Í Kópavogi höfðu karlar meira en fjórum sinnum hærri heild­ar­tekjur en konur. Þar höfðu tíu tekju­hæstu karl­arnir tæp­lega 2,6 millj­arða króna en tíu tekju­hæstu kon­urnar rétt tæp­lega 647 millj­ónir, sam­an­lagt í heild­ar­árs­tekjur. 

Sam­an­lagðar heild­ar­árs­tekjur tíu tekju­hæstu karl­anna í Garðabæ voru 2,7 millj­arðar króna, á meðan tíu tekju­hæstu kon­urnar í Garðabæ höfðu sam­an­lagt 1,14 millj­arða króna í heild­ar­árs­tekjur.

Hafn­ar­fjörður sker sig úr að því leyti hve litlu munar á heild­ar­tekjum tekju­hæstu kvenna og karla sem þar búa. Heild­ar­tekjur tíu tekju­hæstu karl­anna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár