Seðlabankastjóri segir peningahagfræði svipaða guðfræði og mikilvægt að treysta bönkunum

„Sá banki sem ekki nýtur trausts, hann er búinn að vera,“ sagði Ásgeir Jónsson í Kast­ljósi.

Seðlabankastjóri segir peningahagfræði svipaða guðfræði og mikilvægt að treysta bönkunum

„Sá banki sem ekki nýtur trausts, hann er búinn að vera. Pen­inga­hag­fræði er ekk­ert ósvipuð guð­fræði. Hún byggir á trú eða trausti.“ Þetta sagði Ásgeir Jónsson, nýr seðla­banka­stjóri Íslands, í Kast­ljós­svið­tali í kvöld, aðspurður hvort hann „treysti“ íslensku bönk­unum.

Ásgeir telur að störf sín fyrir grein­ing­ar­deild Kaup­þings í kringum hrun hafi verið góður und­ir­bún­ingur fyrir starfið sem hann er nú að taka við. Sagðist hann í Kast­ljós­svið­tal­inu ekki hafa gert sér grein fyrir því á hve veikum grunni bank­arnir stóðu þegar hann sagði, sem for­stöðu­maður grein­ing­ar­deild­ar­innar í maí 2008 að þeir væru „burð­ugar stofn­anir“. 

Már Guð­munds­son lauk tíu ára starfs­tíma­bili sínu sem seðla­banka­stjóri Íslands í dag og tók á móti arf­taka sínum. „Bless­aður seðla­banka­stjóri og vel­kom­inn,“ sagði hann við Ásgeir. Gönt­uð­ust þeir með að nú þyrfti nýr seðla­banka­stjóri að ná að lyfta gull­forða rík­is­ins, ellegar hverfa frá. „Þetta er eig­in­lega eina starfið sem hefði geta dregið mig út úr háskól­anum,“ sagði Ásgeir við frétta­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár