DaddyToo: Velta fyrir sér ofbeldi eða „byltingu“ í þágu málstaðarins

„Myndi per­sónu­lega ekki missa and­ar­drátt eða fella tár ef byssuglaður ein­stak­lingur myndi koma við hjá barna­vernd Kópavogs og hreinsa þá nefnd út af borð­inu fyrir betri fram­tíð barna á Íslandi,“ skrifar maður sem komið hefur fram sem full­trúi DaddyToo-hóps­ins í lok­uðu spjalli á Facebook. Annar með­limur vill „bylt­ingu gegn vald­stjórn­inni“.

DaddyToo: Velta fyrir sér ofbeldi eða „byltingu“ í þágu málstaðarins
Örvænt­ing „Maður veltir því stundum fyrir sér hvort það fari jafn­vel að stytt­ast í það að menn geri eitt­hvað virki­lega rót­tækt í örvænt­ingu sinni,“ segir faðir sem berst gegn umgengni­stálm­unum. Mynd: Shutterstock

Feður sem berj­ast gegn umgengni­stálm­unum á Íslandi undir merkjum DaddyToo-hreyf­ing­ar­innar velta upp mögu­leik­anum á ofbeldi í þágu mál­stað­ar­ins á fjöl­mennum en lok­uðum umræðu­vett­vangi á Facebook. 

„Bylt­ingar eru aldrei lög­legar en maður veltir því stundum fyrir sér hvort það fari jafn­vel að stytt­ast í það að menn geri eitt­hvað virki­lega rót­tækt í örvænt­ingu sinni yfir því gríð­ar­lega órétt­læti sem feður á Íslandi þurfa að sætta sig við,“ skrifar Eyjólfur Vestmann Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Flokks heim­il­anna og umsjón­ar­maður Karl­mennsku­spjalls­ins á Facebook. 

Á meðal þeirra sem bregð­ast við er Hugi Ingi­bjarts­son, sem titl­aður hefur verið sem einn af for­svars­mönnum DaddyToo [en er það þó ekki að sögn Hugins Þórs Grét­ars­sonar, stofn­andi hóps­ins, sjá neðst í grein­inni].

„Myndi per­sónu­lega ekki missa and­ar­drátt eða fella tár ef að byssuglaður ein­stak­lingur myndi koma við hjá barna­vernd Kópavogs og hreinsa þá nefnd út af borð­inu fyrir betri fram­tíð barna á Íslandi,“ skrifar Hugi.

„Það er merki­legt að ekki enn sé búið að gera eitt­hvað virki­lega rót­tækt eða ljótt“

„Það er merki­legt að ekki enn sé búið að gera eitt­hvað virki­lega rót­tækt eða ljótt gegn þeim sem standa fyrir því ofbeldi sem feður eru beittir hér af barna­verndum, stjórn­völdum og mæðrum. Og það veit sá sem allt veit að margir hafa hugsað ýmis­legt sem and­svar við þessu van­hæfa starfs­liði barna­verndar og það væri góð­verk ef eitt­hver myndi fara að dæmi erlendra þjóða og losa lands­menn end­an­lega við það ofbeldis- og brota­fólk sem þar starfar.“

Eyjólfur veltir því fyrir sér hvers vegna feður sem mega þola umgengni­stálm­anir og jafn­vel rangar ásak­anir um ofbeldi „hafa ekki gripið til ofbeldis gegn barns­mæðrum sínum“. „Getur það mögu­lega verið vegna þess að þessir menn eru einmitt ekki ofbeld­is­menn?“ spyr hann. Einn þeirra sem leggja orð í belg brýnir fyrir þeim að það sé aldrei rétt­læt­an­legt að beita konur og börn ofbeldi en bætir við: „Bylting gegn vald­stjórn­inni væri hins vegar eitt­hvað sem ég myndi styðja í þessum málum.“

Stundin bauð Eyjólfi og Huga að útskýra orð sín. 

„Maður veltir ýmsu fyrir sér í heim­speki­legu sam­hengi þegar órétt­læti er ann­ars vegar og hvernig og þá hvað sé best til þess fallið að gera til þess að vekja athygli á við­kom­andi mál­stað og hvaða aðferðir séu lík­leg­astar til að skila árangri,“ segir Eyjólfur í svari til blaðs­ins.

„Það eru dæmi um feður sem hafa gert rót­tæka hluti eins og að klifra upp á Big Ben í London í Batman bún­ing og hengja upp borða til þess að vekja athygli á því órétt­læti sem virð­ist vera kerf­is­lægt þegar kemur að rétti feðra og barna að njóta sam­vista og umgengni. Staðan er því miður sú á Íslandi í dag að hund­ruð og jafn­vel þús­undir feðra hafa verið úti­lok­aðir úr lífi barna sinna. Það er veru­lega aðkallandi þörf á umræðu um þessi mál og hafa hátt um þau mál eins og Metoo bylt­ingin gerði. Það er um að gera að fara að hefja DaddyToo-bylt­ingu og hafa hátt um þetta mál­efni. Þetta er til­gangur Daddy-Too hóps­ins. Við for­dæmum allt ofbeldi hvers konar.“

„Við for­dæmum allt ofbeldi“

Loks bætir hann við: „Þetta er þegar öllu er á botn­inn hvolft rétt­inda­bar­átta þar sem hallar á feður og því verður að breyta til hins betra, öllu sam­fé­lag­inu til heilla. Við erum jú öll saman í þessu feður, mæður, börn, afar ömmur, frændur og frænkur. Það gengur ekki að annað for­eldrið geti tekið lögin í sínar hendur og úti­lokað hitt án dóms og laga.“

Hugi segir í sam­tali við Stundina að ummæli sín séu til komin vegna þess að Barn­ar­vernd­ar­nefnd Kópavogs hafi brotið gegn honum með alvar­legum hætti og Barna­vernd­ar­stofa hafi stað­fest þetta í ítar­legum athuga­semdum við verk­lag nefnd­ar­innar. Hann seg­ist hafa sætt til­hæfu­lausum ásök­unum og sakar nefnd­ina um mis­beit­ingu valds. „Börn eiga fullan rétt sam­kvæmt lögum á því að vera hjá hæfum for­eldrum, sem er stað­reyndin í þessu máli, en Barna­vernd­ar­nefnd Kópavogs brýtur lög svo árum skipti í þessu máli,“ segir Hugi.


Viðbót kl. 12:26:

Upp­haf­lega stóð í frétt­inni að Hugi Ingi­bjarts­son væri einn af stofn­endum DaddyToo. Sú lýs­ing byggði á frétt DV þar sem fjallað var um stofnun DaddyToo og Hugi kom fram sem einn af for­svars­mönnum hóps­ins. Huginn Þór Grét­ars­son, annar af for­svars­mönnum hóps­ins, sendi Stund­inni tölvu­póst eftir að fréttin birt­ist. Þar full­yrðir Huginn að Hugi sé ekki einn af stofn­endum hóps­ins. Frétt­inni hefur verið breytt til sam­ræmis við þetta.

„Að bendla DaddyToo við ummæli ein­stak­linga innan hóps­ins er algjör­lega óásætt­an­legt. DaddyToo er ekki ábyrgt fyrir ein­stökum ummælum á spjall­þræti frekar en Stundin sé ábyrg fyrir öllum ummælum í athuga­semd­ar­kerf­inu,“ skrifar Huginn Þór. „DaddyToo er umræðu­vett­vangur fyrir rétt­indi barna og ein­stök ummæli koma ekki frá hópnum. Hugi er ekki stofn­andi DaddyToo. Reyndu nú að kynna þér mál sem þú ert að fjalla um. Allir innan DaddyToo eru hins­vegar góðir og gildir með­limir en Hugi kom hvergi að stofnun DaddyToo.“

Huginn hvetur Stundina til að fjalla um „hið raun­veru­lega ofbeldi, ekki inn­an­tóm orð örvænt­ing­ar­fullra feðra“. Báðir menn­irnir sem vitnað sé í í grein Stund­ar­innar séu beittir ofbeldi með því að fá ekki að hitta börnin sín.

„Að taka liggj­andi menn og sparka í þá, það ferst þér greini­lega vel. Fer fram á að þú leið­réttir rangar full­yrð­ingar um að hann sé stofn­andi DaddyToo og hafir ekki nafn hóps­ins sem ábyrgan fyrir ummælum þeirra. Það er áróður af verstu gerð og fer inn í kæru til fjöl­miðla­nefndar fljót­lega.“


Viðbót kl. 13:45

Huginn Grétar, stofn­andi DaddyToo, hafði aftur sam­band. Hann full­yrðir að Hugi Ingi­bjarts­son sé heldur ekki einn af for­svars­mönnum DaddyToo þótt vísað hafi verið til hans með þeim hætti í við­tali við DV í fyrra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár