Ágúst Borgþór réttlætir frétt um fanga: „Almenningur leitaði til okkar“

Blaða­maður á DV bregst við gagn­rýni á umdeilda frétt sína um dæmdan morð­ingja.

Ágúst Borgþór réttlætir frétt um fanga: „Almenningur leitaði til okkar“

Ágúst Borgþór Sverr­is­son, blaða­maður á DV og rit­höf­undur, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umdeildrar fréttar sinnar um Gunnar Rúnar Sig­ur­þórs­son, dæmdan morð­ingja.

DV greindi frá því á föstu­dag að Gunnar „lifði að miklu leyti eins og frjáls maður“ og liti mun betur út en áður. Hann fal­að­ist eftir við­tali við fang­ann fyrir utan áfanga­heim­ilið Vernd að Lauga­teig án árang­urs en birti myndir af Gunnari, gaf upp heim­il­is­fang móður hans og bróður og greindi frá því að les­endur DV hefðu „lýst yfir ótta við að vera í návist hans“. 

Afstaða, félag fanga, gagn­rýndi frétta­flutn­ing­inn harð­lega og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans sagði umfjöll­un­ina lág­kúru. „Þetta er sirka botn­inn. Beitu­vefur eltir dæmdan mann sem sinnir afplánun á röndum, tekur af honum myndir, birtir upp­lýs­ingar um gerð bif­reiðar móður hans og heim­il­is­fang hennar. Erindið er ekk­ert. Eini til­gang­ur­inn er umferð­ar­klám,“ skrif­aði hann á Twitter. Undir þetta tók Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, frétta­stjóri Mbl.is, sem sagð­ist hafa orðið sorg­mædd við lest­ur­inn.

Ágúst hefur nú brugð­ist við þess­ari gagn­rýni. Í yfir­lýs­ingu sinni seg­ist hann hafa unnið grein­ina í sam­ráði við rit­stjóra DV sem hafi átt loka­orðið. „Það er maka­laus firr­ing fólgin í því að telja að upp­lýs­ing­arnar í þess­ari frétt eigi ekki erindi við almenn­ing. Það var einmitt almenn­ingur sem leit­aði til okkar og kall­aði eftir því að við köf­uðum í málið,“ skrifar Ágúst. Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild:

Und­an­farna mán­uði hafa fjöl­margar ábend­ingar borist DV um að dæmdur morð­ingi sem ekki hefur afplánað dóm sinn sé mikið á ferli í Hafn­ar­firði og víðar. Maðurinn er ger­andi í einu þekktasta saka­máli sög­unnar og morðið var óvenju­lega kald­rifjað og hrotta­fullt, glæp­ur­inn vand­lega und­ir­bú­inn.

Hér er undir sígilt og mik­il­vægt álita­mál um refs­ingar og betrun. Fangar eiga rétt á betrun í sinni afplánun en þetta er lítið sam­fé­lag og Hafn­ar­fjörður er enn minna sam­fé­lag en Ísland.

For­sendur vit­rænnar umræðu í þessu máli eru að vita raun­veru­lega stöðu þessa fanga. Fang­els­is­mála­stofnun getur ekki tjáð sig um mál­efni ein­stak­linga og ábend­ing­arnar voru án gagna.

Þannig að við fórum á stúf­ana og komumst að því að umræddur maður býr á Vernd, hefur aðgang að bíl, heim­sækir lög­heim­ili sitt reglu­lega og vinnur hjá Rauða kross­inum. Hann ræður ekki svefn­stað sínum en virð­ist ráða sér að öðru leyti. Hann er meira að segja á Tinder.

Vel má vera að þetta sé rétt­læt­an­legt og sjálfur trúi ég á betrun fremur en refs­ingar. En það eru önnur sjón­ar­mið uppi. Og til að eitt­hvert vit sé í þeim skoð­ana­skiptum þurfa upp­lýs­ing­arnar að vera á borð­inu. Þær eru það núna.

Í furðu­legri gagn­rýni á þennan frétta­flutn­ing, meðal ann­ars í botn­falli Twitters og í yfir­lýs­ingu frá því ágæta félagi Afstöðu, er látið eins og ég sé að brjóta á frið­helgi ein­stak­lings og elta mann á röndum í til­gangs­leysi.

„Það er í sjálfu sér fróð­legt að sjá ein­staka fjöl­miðla­mann opin­bera skiln­ings­leysi sitt á fréttum og til­gangi þeirra“

Það er í sjálfu sér fróð­legt að sjá ein­staka fjöl­miðla­mann opin­bera skiln­ings­leysi sitt á fréttum og til­gangi þeirra. Tilgang frétt­ar­innar, sem mér virt­ist raunar aug­ljós, hef ég nú þegar rakið. Og ég þarf víst varla að taka fram að fjöl­skylda fórn­ar­lambs­ins í þessu máli er ekki sam­mála til­teknum stór­blogg­urum í fjöl­miðla­stétt.

En frið­helgi einka­lífs­ins? Er mönnum alvara? Lög­heim­ili manns­ins er í þjóð­skrá. Allir sem eru með einka­banka hafa aðgang að þjóð­skrá. Að segja frá bíl manns­ins? Bílar eru ekki eitt­hvað sem fólk notar í ein­rúmi innan veggja heim­il­is­ins, þessi maður eins og aðrir ekur auð­vitað á bíl sínum um borg og bý.

Og að sjálf­sögðu þarf ég ekki leyfi fyrir því að ávarpa mann úti á götu þegar hann stígur út úr bíl sínum. Afstaða lætur eins og ég hafi brot­ist inn á Litla Hraun og troðið mér inn í klefa hjá fanga. Og auð­vitað hafa fjöl­miðlar leyfi til að mynda þekkt fólk á almanna­færi.

Það er maka­laus firr­ing fólgin í því að telja að upp­lýs­ing­arnar í þess­ari frétt eigi ekki erindi við almenn­ing. Það var einmitt almenn­ingur sem leit­aði til okkar og kall­aði eftir því að við köf­uðum í málið.

Ég þarf síðan vart að taka það fram að greinin var unnin í sam­ráði við rit­stjóra DV sem átti loka­orðið.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár