Katrín Jakobsdóttir segir ummæli Donalds Trump „óboðleg“ og dæma sig sjálf

For­sæt­is­ráð­herra Íslands bæt­ist í hóp þjóð­ar­leið­toga sem gagn­rýna fram­göngu Donalds Trump.

Katrín Jakobsdóttir segir ummæli Donalds Trump „óboðleg“ og dæma sig sjálf

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur ummæli Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta um þing­konur Demókra­ta­flokks­ins óboð­leg. Þetta segir upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. „Katrín tekur þar með undir álit meiri­hluta full­trúa­deildar banda­ríska þings­ins. Hún telur ummælin dæma sig sjálf.“

Donald Trump birti harð­orða Twitter-færslu síð­ustu helgi þar sem hann beindi spjótum sínum að fjórum Demókrata­þing­konum af erlendum upp­runa og sagði þeim að snáfa heim til sín. Þetta hefur vakið mikla hneykslan, en í gær for­dæmdi meiri­hluti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings ummælin og sagði þau ein­kenn­ast af ras­isma.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, gagn­rýndi ummæli Trumps í fyrra­dag og sagði þau „full­kom­lega óásætt­an­leg“. Þá hafa Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, og Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands lýst van­þóknun sinni. Nú hefur Katrín Jak­obs­dóttir bæst í hóp þjóð­ar­leið­toga sem taka afger­andi afstöðu gegn fram­göngu Donalds Trump. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár