Vildi afgirt æfingasvæði Fylkis í Elliðaárdal en styður nú friðun

Björn Gíslason, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, vill stöðva upp­bygg­ingu meiri­hlut­ans við Stekkj­ar­bakka. Sem stjórn­ar­maður í Fylki vildi hann afgirta aðstöðu fyrir íþrótta­fé­lagið í Elliða­ár­dal. „Pólitík er skrýtin,“ segir Gísli Marteinn Bald­urs­son.

Vildi afgirt æfingasvæði Fylkis í Elliðaárdal en styður nú friðun

Björn Gíslason, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, mót­mælir nýju deiliskipu­lagi í Stekkj­ar­bakka við Elliða­ár­dal og vill láta friða dal­inn. Árið 2004 barð­ist hann fyrir því sem stjórn­ar­maður Íþrótta­fé­lags­ins Fylkis að afgirt æfinga­svæði yrði reist fyrir félagið í dalnum.

Á lóð­inni er fyr­ir­hugað að byggja þjón­ustu­í­búðir, hús fyrir Garð­yrkju­fé­lag Íslands og loks gróð­ur­hvelf­ingu. Í hvelf­ing­unni, sem ber nafnið Aldin Biodome, er áformað að rækta Mið­jarð­ar­hafs- og mið­baugs­gróður.

Deiliskipu­lag Stekkj­ar­bakka var sam­þykkt í borg­ar­ráði fimmtu­dag­inn 4. júlí með and­stöðu borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks. Þá hafa Holl­vina­sam­tök Elliða­ár­dals einnig gagn­rýnt fram­kvæmd­ina og vilja að henni sé hnekkt. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri hefur sagt upp­bygg­ing­una skyn­sam­lega og bent á að svæðið sé fyrir utan afmörkun Elliða­ár­dals í aðal­skipu­lagi og sé mikið raskað.

Í við­tali í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni sagð­ist Björn vilja kæra deiliskipu­lagið. „Þetta verður eins og kjarn­orku­ver í miðjum Elliða­ár­dalnum, umhverf­is­spjöllin verða svo mikil, þetta mun gnæfa yfir með mik­illi ljós­mengun og þetta nær yfir vatna­svið Elliða­ánna og mér finnst það alveg for­kast­an­legt,“ sagði Björn í við­tal­inu.

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, var einnig til við­tals í þætt­inum. „Mér finnst þessi sam­an­burður við kjarn­orku­ver algjör­lega gal­inn, þetta er ekki umhverf­isslys, það eru svo skýrar kvaðir í þessu deiliskipu­lagi um allan frá­gang,“ sagði Sig­ur­borg. „Það mun vera mun minni ljós­mengun af þessu en af þeim ljósastaurum sem eru þarna nú þegar.“

Stekkj­ar­bakkiUpp­bygg­ingin yrði á reitnum vinstra megin við göt­una Stekkj­ar­bakka, sem er fyrir miðri mynd.

Var áður fylgjandi mannvirkjum í Elliðaárdal

Gísli Marteinn Bald­urs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, gerði stefnu­breyt­ingu Björns að umfjöll­un­ar­efni á Twitter á sunnu­dag. „Pólitík er skrýtin,“ skrif­aði Gísli Marteinn. „Þegar ég var í borg­ar­málum tók­umst við Björn á um verndun Elliða­ár­dals. Þá vildi hann fá æfinga­svæði fyrir Fylki (þar sem hann var í stjórn) oní miðjan dal­inn, sem ég vildi ekki. Nú vill hann friða dal­inn og alls engin mann­virki!“

Í frétt í Morg­un­blað­inu frá jan­úar 2004 var rætt við Björn um áhuga Fylkis á að stækka athafna­svæði sitt í Elliða­ár­dal og við Rauðhóla. „Við höfum einnig sett fram hug­myndir að nýjum mann­virkjum í Blá­steins­hólma í Elliða­ár­dal. Það teng­ist meira svæð­inu við Fylk­is­veg og yrði hrein við­bót við það svæði,“ var haft eftir Birni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár