Hávær sprenging í endurvinnslunni Hringrás

Enginn slas­að­ist að sögn starfs­manns, en hvell­ur­inn virð­ist hafa komið við notkun á pressu.

Hávær sprenging í endurvinnslunni Hringrás

Hávær hvellur heyrð­ist frá end­ur­vinnsl­unni Hringrás í Kletta­görðum laust fyrir klukkan eitt í dag. Að sögn starfs­manns er ekki vitað hvað olli sprengi­hljóð­inu.

Starfs­maður sem Stundin ræddi við segir að eng­inn hafi slasast og engin tæki orðið fyrir skaða. Hvell­ur­inn hafi lík­lega komið við notkun á pressu, en hann hafi verið óvenju­lega hávær. Reglu­lega komi sprengi­hljóð frá end­ur­vinnsl­unni þegar dekk eru klippt. Þetta hafi hins vegar verið óvenju hátt, en eng­inn eldur hafi kviknað.

Að sögn starfs­manns­ins var sá aðili sem vann við press­una með heyrn­ar­hlífar. Honum hafi brugðið eins og öðrum, en að öðru leyti hafi allt farið vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár