Hvað er að gerast næstu daga?

Stund­ar­skráin 5.júlí til 26.júlí.

Hvað er að gerast næstu daga?
Vagg og velta Ókeypis verður fyrir börn, eldri borg­ara og öryrkja á sýn­ing­una Vagg og velta á Árbæj­ar­safni sunnu­dag­inn 7. júlí. Mynd: Roman Gerasymenko

Bara við 2

Hvar? Harbin­ger

Hvenær? 6. júlí kl. 17.00

Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sýningin Bara við 2 er sjötta og jafn­framt síð­asta sýn­ingin af sýn­inga­röð­inni Rólegt og róm­an­tískt sem sam­anstendur af sex sýn­ingum í Harbin­ger fyrri hluta árs 2019. Sýn­inga­röð­inni er stýrt af Kristínu Helgu Rík­harðs­dóttur, Rúnari Erni Jóhönnu Mar­inós­syni, Unu Björgu Magn­ús­dóttur og Veigari Ölni Gunn­ars­syni.

Skógarleikarnir 2019

Hvar? Furu­lundur, Heiðmörk

Hvenær: 6. júlí kl. 13.00

Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Skóg­ar­leik­arnir eru nú orð­inn árlegur við­burður hjá Skóg­rækt­ar­fé­lagi Reykja­víkur. Að vanda mun fag­fólk í skóg­ar­höggi keppa í skógar­í­þróttum. Keppt er í hefð­bundnum skóg­ar­höggs­greinum svo sem afkvistun trjá­bola, nákvæmn­is­fell­ingu, axarkasti, sporaklifri og bola­höggi. Samhliða keppn­inni er ævin­týra­leg stemn­ing, grill­boð, fræðsla um kolefn­is­bind­ingu trjáa, leisögn um skóg­inn, seið­kona í tjaldi, eldsmiður hamrar járn yfir log­andi eldi og margt fleira. 

Vagg og velta

Hvar? Árbæj­ar­safn

Hvenær? 7. júlí kl. 13.00

Aðgangs­eyrir: Ókeypis fyrir börn, eldri borg­ara og öryrkja. Full­orðnir 1.700 kr. 

Sunnu­dag­inn 7. júlí bjóðum við gestum að upp­lifa ferða­lag aftur í tím­ann. Starfs­fólk Árbæj­ar­safns mun klæð­ast fatn­aði eins og tíðk­að­ist á 5. og 6. ára­tugnum. Háskóla­dans­inn kemur á safnið og sýnir fjörug dans­spor, spá­kona býður í spjall, Katrín Rós kennir gestum að gera flotta pin-up hár­greiðslu, félagar í Forn­bíla­klúbb Íslands verða á svæð­inu og margt fleira.

GYDA // Tónleikaröð Norræna hússins

Hvar? Norræna húsið

Hvenær? 10. júlí kl. 21:00

Aðgangs­eyrir: Frá 2.000 kr. 

Gyða Val­týs­dóttir náði fyrst athygli á heims­vísu með raf­tón­list­ar­sveit­inni múm. Hún hætti í hljóm­sveit­inni til að klára selló­nám og eign­að­ist tví­skipta masters­gráðu frá Musik Akademie í Basel í bæði klass­ískum hljóð­færa­leik og spuna. Báðar sóló­plötur hennar – þær Epicycle og Evolution – fengu verð­laun fyrir bestu plötur í opnum flokki á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum.

Fyndnustu mínar + 2 gaurar

Hvar? Hard Rock Café

Hvenær? 11. júlí kl. 19.30

Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Fyndn­ustu mínar er uppi­stands­hópur sem sam­anstendur af Lóu Björk, Rebeccu Scott Lord og Sölku Gullbrá. Þær hafa haldið uppi­stands­kvöld við frá­bærar und­ir­tektir síð­ast­liðið ár. Fyndn­ustu mínar og tveir gaurar sem þær þekkja, Vilhelm Neto og Stefán Ingvar, sam­eina krafta sína á Hard Rock þetta eina kvöld til þess að láta ykkur hlæja.

Eistnaflug 2019

Hvar? Nes­kaup­staður

Hvenær? 10–14. júlí

Aðgangs­eyrir: 3.300–18.900 kr.

Eistna­flug er inni­há­tíð í Nes­kaup­stað fyrir austan, nán­ast jafn langt frá Reykja­vík og hægt er að kom­ast án þess að fara úr landi. Síðan 2005 hefur hátíð­inni vaxið fiskur um hrygg og er orð­inn að fjög­urra daga tón­list­ar­há­tíð, þar sem metal-, harð­kjarna-, pönk-, rokk- og indí-bönd deila saman sviði.

Hjarta Hafnarfjarðar

Hvar? Bæjarbíó, Hafn­ar­firði

Hvenær? 8.–14. júlí

Aðgangs­eyrir: Frá 3.990 kr. hver við­burður

Dagana 8. júlí til 14. júlí má búast við miklum hátíð­ar­höldum í hjarta Hafn­ar­fjarðar en hljóm­sveitir á borð við Jónas Sig, Björgvin Hall­dórs­son, Á móti sól, Friðrik Dór og Dimma munu troða upp fyrir fullum sal í Bæj­ar­bíói. Einnig verða úti­tjöld og sumir við­burðir ókeypis innan þess.

JFDR, Jaakko Eino Kalevi, Farao

Hvar? Iðnó

Hvenær? 11. júlí kl. 21.00

Aðgangs­eyrir: 2.500 kr. 

Finnski tón­list­ar­mað­ur­inn Jaakko, íslenska tón­list­ar­konan Jófríður Áka­dóttir, eða JFDR, og hin norska Farao leiða saman hesta sína í raf­rænni folk-tón­list­ar­veislu í Iðnó við Tjörnina 11. júlí næst­kom­andi. 

Mr.Silla og Jae Tyler

Hvar? Mengi

Hvenær? 12. júlí

Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Mr. Silla (Sig­ur­laug Gísla­dóttir) hefur verið íslensku tón­list­ar­sen­unni góð­kunn síðan hún hóf sam­starf við raf­tón­listar-frum­herj­ana í múm snemma á tví­tugs­aldri og Jae Tyler frá Kansas er lista­strákur nú búsettur í Berlín þar sem hann býr til trufl­andi skemmti­lega lofi-músík inn­blásna af kom­andi heimsenda.

Mannréttindamaraþon – sendiráðshlaup

Hvar? Íslands­deild Amnesty International, Þing­holts­stræti 27

Hvenær? 13. júlí kl. 13.00

Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög.

Eins og nafnið gefur til kynna er þetta hlaup þar sem farið verður um 5 km langa leið á milli 5 sendi­ráða í mið­borg Reykja­víkur.

Við hvert sendi­ráð verða sjálf­boða­liðar frá ung­liða­hreyf­ing­unni og þar munu hlauparar skrifa undir mál sem snúa að löndum sendi­ráð­anna og hafa þannig áhrif á mann­rétt­inda­bar­átt­una. Ekki verður tíma­taka.

Lunga 2019

Hvar? Seyð­is­fjörður

Hvenær? 14. júlí til 21. júlí

Aðgangs­eyrir: 8.900–13.900 kr.

Lista­há­tíðin Lunga 2019 mun fara fram á Seyð­is­firði dag­anna 14.–21. júlí. Hátíðin, sem teygir sig yfir átta daga, er stút­full af við­burðum á borð við gjörn­inga, vinnu­stofur, tón­leika, fyr­ir­lestra, kvik­mynda­sýn­ingar, mynd­list­ar­sýn­ingar og tveggja daga tón­leika­hald á Norð­ur­síld helg­ina 19.–21. júlí.

IceDoc – íslensk heimildamyndahátíð

Hvar? Akranes

Hvenær? 17.–21. júlí 

Aðgangs­eyrir: Frá 6.000 kr. 

IceDoc heim­ilda­mynda­há­tíðin sýnir rúm­lega 50 heim­ilda­myndir alls staðar að úr heim­inum frá mið­viku­degi til sunnu­dags. Boðið verður upp á spurt og svarað með leik­stjórum, vinnu­stofur og aðra skemmti­lega við­burði. Við­burðir eru við hæfi allra ald­urs­hópa.  

Rölt í Reykjavík

Hvar: Hefst við Hörpu

Hvænær? 18. júlí kl. 20.00

Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Gangan er ferða­lag um miðbæ Reykja­víkur, þar sem ýmis kenni­leiti er tengj­ast glæstri dæg­ur­tón­list­ar­sögu Íslands verða skoðuð. Gömul og forn­fræg æfinga­pláss, sögu­lega mik­il­vægir tón­leika­staðir og stað­ur­inn þar sem Megas fór í sígópásu við upp­tökur á Loftmynd koma við sögu, auk ýmissa ann­arra rýma sem stuðlað hafa að fram­gangi íslensks popps og rokks. Gönguna leiðir Arnar Eggert Thorodd­sen tón­list­ar­blaða­maður. 

Muriel’s Wedding – föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís

Hvenær? 19. júlí kl. 20.00

Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Bíó Paradís fagnar 25 ára afmæli kvik­mynd­ar­innar Muriel's Wedding með því að slá upp föstu­dagspar­tí­sýn­ingu. Sjoppan verður stút­full af sæt­indum og bar­inn fljót­andi af partí­veigum sem að sjálf­sögðu má taka með inn í sal­inn. 

Geirfuglaball á Havarí

Hvar? Havarí, Berufirði

Hvenær? 26. júlí kl. 21.00

Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Tón­leika­röðin Sumar í Havarí hefur verið haldin nokkrum sinnum og margir eflaust orðnir spenntir að sjá dag­skrá árs­ins 2019. Sumar í Havarí er nefni­lega orð­inn einn af vor­boð­unum ljúfu sem gleður með blöndu af taum­lausri sveita­sælu og söng. 26. júlí munu hinir víð­frægu Geir­fuglar slá upp balli í sveita­sæl­unni fyrir austan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár