Flúði ástandið í Palestínu

Stundin birtir frá­sagnir og upp­lif­anir blaða­manna víðs vegar að úr heim­inum í tengslum við umfjöllun um fjöl­miðla­frelsi og við­tal við Kristinn Hrafns­son. AT er palest­ínskur blaða­maður sem vill hvorki nota fullt nafn né birta mynd af sér. AT fór úr landi vegna þess að hann gafst upp á þeirri ógn sem fylgdi því að stunda rann­sókn­ar­blaða­mennsku í heima­landi sínu. Hann leit­aði skjóls í Banda­ríkj­unum en óar við þeirri þróun sem hefur átt sér stað þar.

Flúði ástandið í Palestínu
Vill ekki þekkj­ast Palest­ínski blaða­mað­ur­inn sem hér lýsir reynslu sinni vill hvorki birta nafn sitt né mynd af sér. Aðstæður blaða­manna í Palest­ínu eru hættu­legar, á síð­asta ári voru þannig tveir blaða­menn drepnir af ísra­elskum leyniskyttum. Mynd: Shutterstock

Áður en stofn­andi Wikileaks, Julian Assange, var handek­inn við sendi­ráð Ekvador í London, þann 11. apríl, voru árásir á hendur fjöl­miðla­fólki og þögg­un­ar­til­burðir stöðugir. Hann er sá síð­asti og engin leið að vita hver verður næstur.

Sem palest­ínskur blaða­maður – eða fyrr­ver­andi, er ég þeirrar skoð­unar að það að fela sann­leik­ann um fólk er nið­ur­rif lýð­ræðis, mann­rétt­inda og brot gegn tján­ing­ar­frelsi, svo ég flutti til Banda­ríkj­anna árið 2015 í leit að betra lífi, frelsi og stöð­ug­leika. En jafn­vel hér leit út fyrir að ég þyrfti að end­ur­hugsa starfs­vett­vang minn sem blaða­maður til að forð­ast áhættu, ógn­anir og hand­tökur, líkt og ég ótt­að­ist í heima­landi mínu.

Í for­seta­kosn­ing­unum árið 2016 komst Donald Trump til valda. „Á fyrsta starfs­ári sínu sem for­seti, réðst Trump og stjórn hans á mis­mun­andi fjöl­miðla og fjöl­miðla­fólk yfir 400 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár