Vélhundar viðkunnanlegri en vélmenni

Gervi­greind til góðs og ills. Ný sýn­ing í London kannar báðar hliðar.

Vélhundar viðkunnanlegri en vélmenni

Í jan­úar árið 2015 birtu Stephen Hawking, Elon Musk og fleiri af klár­ustu köllum heims opið bréf þar sem þeir vör­uðu við hætt­unum sem gætu stafað af gervi­greind. Mánuði fyrr hafði Hawking varað við að gervi­greind gæti boðað enda­lok mann­kyns. En hversu raun­veru­leg er þessi hætta? Í menn­ing­ar­mið­stöð­inni Barbican í London er nú nýopnuð sýn­ing sem spyr einmitt þess­ara spurn­inga. Nefnist hún „AI: More Than Human,“ og stendur í allt sumar.

Óttinn við gervi­greind á sér reyndar eldri rætur en tæknin sjálf. Eitt fyrsta skáld­verkið til að velta spurn­ing­unni fyrir sér var bókin Franken­stein eftir Mary Shelley. Bókin kom fyrst út árið 1818 í kjöl­far blóðsút­hell­inga Napól­e­ons­stríð­anna. Róm­an­tísku skáldin sem Shelley umgengst voru þegar hér er komið við sögu mjög farin að efast um að mann­legt hug­vit gæti leyst öll vanda­mál, eins og upp­lýs­ing­ar­heim­spek­ingar fyrri aldar höfðu haldið fram. Þvert á móti var hún allt eins lík­leg til að leiða þá til glöt­unar, og skrímsli Franken­steins gerir einmitt það við skap­ara sinn.

Japanar giftast tölvum

Vís­inda­skáld­sögur hafa oft síðan fetað svip­aða slóð. Í seinni tíð má nefna kvik­myndir eins og Blade Runner, þar sem kúguð vél­menni rísa upp gegn sköp­urum sínum og koma þeim fyrir katt­ar­nef. Einna þekkt­ust er Term­inator, þar sem vél­mennin taka völdin í fram­tíð­inni og nán­ast gera út af við mann­kynið og er sama saga sögð með blæ­brigða­mun í The Matrix. Í Japan er þessu hins vegar öðru­vísi farið.

Vinalegi vél­kött­ur­inn Doraemon birt­ist fyrst í manga teikni­mynda­sögu­blöðum árið 1969, og í anime teikni­myndum tíu árum síðar. Blöðin hafa selst í yfir 100 milljón ein­tökum og teikni­mynd­irnar gengið óslitið til dags­ins í dag. Doraemon er vél­menni frá 22. öld sem hefur snúið aftur í tím­ann til að hjálpa stráknum Nobita við að leysa ýmis vanda­mál. Hann er vin­gjarn­legur, hjálp­samur og á margan hátt mann­legur, hefur til dæmis mann­legar þarfir eins og að sofa og borða.

„Eig­in­konan sem aðeins er til í for­riti var tákn­gerð með tusku­brúðu og gift­ing­ar­hring­ur­inn settur um úln­lið hennar“

Það mætti ímynda sér að menn­ing sem er alin upp við Doraemon fremur en Franken­stein og Term­inator sé betur stefnd gagn­vart hugs­andi vél­mennum, og sú virð­ist einnig vera reyndin. Japanar hafa löngum verið afar fram­ar­lega í notkun vél­menna og veitir ekki af, fæð­ing­ar­tíðni í land­inu er afar lág og sam­fé­lagið eld­ist hratt. Sumir, eins og hinn 35 ára Kondo, hafa jafn­vel tekið upp á því að kvæn­ast konum sem ein­ungis eru til á tölvu­skjám. Fjörutíu manns voru við­staddir brúð­kaupið sem kost­aði um 2 millj­ónir króna, en ætt­ingjar Kondo kusu að sitja heima. Eig­in­konan, sem aðeins er til í for­riti, var tákn­gerð með tusku­brúðu og gift­ing­ar­hring­ur­inn settur um úln­lið hennar. Hjóna­kornin hafa nú verið gift í um hálft ár og ekki er annað vitað en að þau séu ham­ingju­söm, hann hringir í hana á leið heim úr vinnu og hún kveikir ljósin fyrir hann í íbúð­inni áður en hann kemur heim.

Vélmenni sem barþjónar eða gæludýr

Á sýn­ing­unni er skýr­ing­ar­mynd sem sýnir hversu auð­velt við eigum með að hafa sam­kennd með vél­mennum. Það kemur kannski ekki á óvart að sam­kenndin er minnst þegar vél­mennið minnir lítið á lif­andi veru, eins og til dæmis vélarmar sem víða hafa verið not­aðar í iðn­aði síðan á 8. ára­tugnum, og þá sér­stak­lega í Japan. Á Barbican eru álíka vélar látnar blanda drykki og verða svosem við­kunn­an­legar fyrir vikið, þó varla vilji maður deila sorgum sínum með þeim eins og öðrum bar­þjónum, að minnsta kosti ekki á fyrsta glasi. Það vekur hins vegar meiri athygli að eftir því sem vél­mennið verður mann­legra, því meiri óhug vekur það. Okkur virð­ist líða illa í návist vera sem virð­ast mann­eskjur en eru það þó ekki. Þetta stemmir svo sem við ímyndir hryll­ings­mynda, hvort sem um er að ræða hinar ótal útgáfur af sög­unni um skrímsli Franken­steins eða Arnold Schwarzenegger í hlut­verki Tor­tím­and­ans.

Á hinn bóg­inn virð­umst við kunna hvað best við vél­menni sem minna á dýr sem við umgöng­umst. Ekki aðeins á þetta við um teikni­mynda­per­són­una Doraemon heldur líka vél­mennið AIBO. Fyrsti AIBO hund­ur­inn frá Sony kom á markað árið 1999 í tak­mörk­uðu upp­lagi. Minnti hann örlítið á Snoopy og seld­ist sam­stundis upp í Japan og Banda­ríkj­unum. Fleiri útgáfur fylgdu í kjöl­farið, sumir jafn­vel í lag­inu eins og ljónaungar, allt þar til fram­leiðslu þeirra var hætt árið 2006. Í fyrra birt­ust AIBO hundar aftur eftir ára­tugs­hlé og eru nú mun hunds­legri í útliti og fram­komu en áður. Er ætl­unin að þeir stytti eig­endum sínum stundir og jafn­vel að þeir verði til gagns á elli­heim­ilum, þó ekki sé ætl­ast til þess að þeir sinni öðrum störfum enn um sinn. Þeir geta jafn­vel greint á milli manna og verða hænd­ari að eig­endum sínum en öðrum, en það þarf bæði netteng­ingu og áskrift til að þeir læri ný trikk. Erfitt er að kenna sam­bands­lausum hundi að sitja.

Allsherjarstríð eða endalok hungurs

Báðar útgáfur AIBO eru hér á sýn­ing­unni, og sú nýrri vekur fögnuð gesta. En er þá ástæðu­laust að ótt­ast gervi­greind svo lengi sem hún kemur í krútt­legum bún­ingi? Er ótti okkar við vél­menni fyrst og fremst byggð á bíó­myndum og skáld­sögum sem eiga kannski litla stoð í raun­veru­leik­anum?

„Er ótti okkar við vél­menni fyrst og fremst byggð á bíó­myndum og skáld­sögum sem eiga kannski litla stoð í raun­veru­leik­anum?“

Líklega er þetta beggja blands. Gervi­greind getur bætt heim­inn til muna, en henni fylgja líka hættur. Ef til vill hefur vís­inda­skáld­skap­ur­inn lagt ofurá­herslu á hið seinna á kostnað hins fyrra, að minnsta kosti á Vest­ur­löndum. Á sýn­ing­unni er bæði fjallað um hvernig gervi­greind getur verið notuð til að búa til sjálf­virk vopn með ófyr­ir­séðum afleið­ingum, sem og eflt land­búnað marg­falt og það á umhverf­is­vænan máta. Meira að segja bréf Hawking og félaga leggur áherslu á kosti gervi­greindar auk gall­anna.

Vissu­lega geta flestir verið sam­mála um að til­hugs­unin um sjálf­virk dráps­vél­menni er ekki kræsi­leg og mik­il­vægt að leggja bann við slíku, þótt erfitt gæti verið að fram­fylgja því í reynd. En til nokk­urs er að vinna ef hægt er að binda enda á hungur í heim­inum með aðstoð nýj­ustu tækni. Til skemmri tíma litið er fyr­ir­séð að gervi­greind muni leggja niður mörg störf, en lík­legt er að lausnin á því verði tækni­legs eðlis líka eins og verið hefur síðan í iðn­bylt­ingu. Og kannski er kom­inn tími á að við förum öll að vinna minna? Vandinn er ekki fólg­inn í tækn­inni sjálfri heldur hvernig við beitum henni. Mannlegt hug­vit hefur stundum komið okkur í vanda, þó er ekk­ert sem hefur leyst jafn mörg vanda­mál og einmitt það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár