Lokatónleikar, afsakanir og píkupopp

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 7.-20. júní.

Lokatónleikar, afsakanir og píkupopp

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Eldur á hafi úti

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 9. júní kl. 17.45
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Flótta­menn á Íslandi bjóða almenn­ingi á sér­staka og ókeypis auka­sýn­ingu heim­ilda­mynd­ar­innar Eldur á hafi úti (e. Fire at Sea). Myndin fjallar um ástandið á landa­mær­unum sem umlykja Evrópu. Hún dregur fram í dags­ljósið hvers vegna brott­vís­anir flótta­manna til landa eins og Ítalíu, Grikk­lands, og Ung­verja­lands eru ómann­úð­legar. Kvik­myndin vann Gull­björn­inn á 66. kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín. Leik­konan Meryl Streep var for­maður dóm­nefndar, en hún hafði orð á því hvernig djörf blanda  af mark­vissum sögu­þræði og upp­tökum frá vett­vangi væri til þess fallið að nýta form heim­ilda­mynd­ar­innar út í ystu æsar. Sögu­þráður mynd­ar­innar væri mik­il­vægur, frá­sögnin hug­mynda­rík og gerð mynd­ar­innar áríð­andi í nútím­anum. 

Kæra Jelena

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 7. & 15. júní
Aðgangs­eyrir: 6.500 kr.

Komið er að loka­sýn­ingum þessa merka leik­rits sem fjallar um hóp mennta­skóla­nem­enda sem hittir umsjón­ar­kenn­ara sinn með það að marki að ráða hana af dögum. Í Kæru Jelenu takast kyn­slóðir á í verki sem spyr stórra spurn­inga um sið­ferð­is­leg mörk, ein­stak­lings­hyggju og hug­sjónir. Verkið var sett upp í Þjóð­leik­hús­inu árið 1991 þar sem það fékk mikið lof, en upp­færsla Borg­ar­leik­húss­ins hefur sömu­leiðis vakið mikla athygli.

Skjaldborg 2019

Hvar? Pat­reks­firði
Hvenær? 7.–10. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Skjald­borg er árleg hátíð íslenskra heim­ilda­mynda, en hún er haldin á Pat­reks­firði. Í ár verða sýndar fjórtán nýjar og ferskar myndir auk sex verka í vinnslu. Á hátíð­inni eru áhorf­enda­verð­laun veitt og sömu­leiðis verð­laun dóm­nefndar. Ókeypis er inn á allar myndir hátíð­ar­innar og til­boð á kræs­ingum. Ragn­heiður Maísól fer með burlesque-atriði í lok hátíð­ar­innar og ábreiðu­sveitin Bjartar sveiflur spilar þekkt lög.

Vök – útgáfutónleikar

Hvar? Hard Rock Cafe
Hvenær? 8. júní kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.490 kr.

Raf­magn­aða popp­hljóm­sveitin Vök sendi nýlega frá sér sína aðra breið­skífu, In The Dark, og í kjöl­farið hóf hún ítar­legt tón­leika­ferða­lag um Evrópu við góðar und­ir­tektir. Þar sem hljóm­sveitin er komin heim ætlar hún að blása til útgáfu­tón­leika. Vök var sig­ur­veg­ari Músiktil­rauna 2013 og fyrri breið­skífa þeirra Figure var valin 'Raf­tón­list­ar­plata árs­ins 2017' á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum.

Gringlo – lokatónleikar

Hvar? Hof Akureyri
Hvenær? 8. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Síð­ast­liðin miss­eri hefur akur­eyrska hljóm­sveitin Gringlo skapað sér orðstír fyrir að dreifa hlýjum straumum í gegnum tón­list sína og texta­gerð. Þessi indí-sveit hefur verið starf­rækt í fjögur ár og hefur það að mark­miði að lyfta vit­und ein­stak­lings­ins og sam­fé­lags­ins á æðra stig í gegnum tón­list­ar­upp­lifun. Sveitin fagnar útgáfu plöt­unnar From Source to the Ocean - A Tale Of Two Rivers á þessum tón­leikum sem eru jafn­framt þeir síð­ustu.

Mjúkberg

Hvar? Ekkisens
Hvenær? Til 16. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessi sýn­ing Söru Bjargar Bjarna­dóttur á skúlp­t­úrum sem gerðir eru úr fram­tíð­ar­berg­teg­und fer senn að ljúka.  Sara kannar sam­skipti milli lík­am­legra hvata og rök­hugs­unar í list sinni þar sem efni og form stýra lík­am­legu ferli. Sýningin er opin um helgar frá 15.00 til 18.00.

Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 12. júní kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: frá 2.000 kr.

Ragn­heiður Gröndal og Guð­mundur Pét­urs­son hafa lengi haft áhuga á íslenskri þjóð­lagatón­list og til­heyrir hún hefð sem er að mestu leyti horfin og fáar reglur hafa verið skrif­aðar. Sú stað­reynd opnar fyrir per­sónu­lega tján­ingu, nýjar upp­götv­anir og list­rænt frelsi. Þess vegna má segja að tón­list tvíeyk­is­ins sé hefð­bundin, nútíma­leg og fram­sækin allt í senn.

Auður 

Hvar? Bæjarbíó
Hvenær? 13. júní kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 3.990 kr.

Silki­mjúki og við­kunn­an­legi R&B lista­mað­ur­inn Auður hefur átt far­sælt ár; hann gaf út breið­skíf­una Afsak­anir í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sem var valin raf­tón­list­ar­plata árs­ins 2019 á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum. Hann spilar í heimabæ sínum með fjög­urra manna hljóm­sveit. Þar verður nýja platan spiluð í heild sinni, auk vel val­inna eldri laga.

GRL PWR x Spice Girls x Píkupopp

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 14. júní kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Í til­efni þess að tveir ára­tugir eru liðnir frá því að Kryddp­í­urnar voru upp á sitt besta hefur hópur af ungum og efni­legum söng­konum sem kenna sig við GRL PWR komið saman til að fagna þessum miklu áhrifa­völdum. Á þessu heið­urs­kvöldi koma fram Salka Sól Eyfeld, Elísabet Ormslev, Stefanía Svavars, GDRN og Karó. Auk laga Krydd­pí­anna verða líka flutt píku­popp­lög frá svip­uðum tíma.

Söngleikurinn Hárið

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 14. & 15. júní kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 6.500 kr.

Þrátt fyrir að vera kom­inn á sex­tugs­ald­ur­inn er Hárið ennþá einn af vinæl­ustu söng­leikjum Vest­ur­landa. Leik­flokkur Húna­þings vestra flytur þennan söng­leik, en hann var val­inn athygl­is­verð­asta áhuga­leik­sýn­ing leik­árs­ins 2018–2019 og var flokknum því boðið að setja sýn­ing­una upp á Stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins. Hárið er kraft­mikil sýn­ing sem fagnar líf­inu, frels­inu og jafn­rétt­inu.

Kveðjutónleikar Lucy in Blue 

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 15. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Sæka­del­ísku og hár­prúðu ærsla­belgirnir í Lucy in Blue hengja upp raf­mögn­uðu rokk­tækin sín og trommu­kj­uða vegna flutn­inga. Hljóm­sveitin hefur notið dyggs stuðn­ings í gegnum árin og gaf út sam­nefnda plötu árið 2016 auk plöt­unnar In Flight síð­ast­lið­inn apríl. Þeim til stuðn­ings á þessum kveðju­tón­leikum verða leðju­kenndu stóner-rokk­ar­arnir Godchilla og suð­ur­ríkja-rokk­ar­arnir Volcanova.

Áþreifanlegir kraftar 

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 15. júní til 25. ágúst
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Jóhann Eyfells hefur notið umtals­verðrar virð­ingar fyrir verk sín og vinnu­brögð. Hann var full­trúi Íslands á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum árið 1993 ásamt Hreini Frið­finns­syni. Hann byrj­aði snemma á sjötta ára­tugnum að skapa abstrakt skúlp­t­úra sem byggð­ust á til­raunum í eðlis- og efna­fræði og sér­stak­lega umbreyt­ingu málma við steypu. Sérstakt opn­un­ar­hóf verður haldið 15. júní kl. 16.00.

Dikta

Hvar? Harpa
Hvenær? 16. júní kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: frá 4.990 kr.

Indí-hljóm­sveitin Dikta heldur stór­tón­leika í til­efni af 20 ára afmæli hljóm­sveit­ar­innar og tíu ára afmæli plöt­unnar Get It Together. Dikta hefur á ferli sínum komið víða við, gefið út fimm breið­skífur, haldið í mörg tón­leika­ferða­lög utan land­stein­anna og spilað á öllum helstu tón­leika­sviðum lands­ins. Hljóm­sveitin mun snúa aftur og líta yfir far­inn veg á þessum tón­leikum, en leikin verða lög af öllum plötum sveit­ar­innar.

Reykjavík Midsummer Music 2019

Hvar? Harpa og Mengi
Hvenær? 20.–23. júní
Aðgangs­eyrir: 16.900 kr.

Hin marg­verð­laun­aða hátíð Reykja­vík Midsum­mer Music verður haldin í sjö­unda sinn í ár, en stofn­andi hátíð­ar­innar og list­rænn stjórn­andi er Víkingur Heiðar Ólafsson. Meðal gesta á hátíð­inni í ár eru Florian Boesch barítón­söngv­ari, Ilya Gringolts og Anahit Kurtikyan fiðlu­leik­arar og Yura Lee lág­fiðlu­leik­ari og frönsku píanó­leik­ar­arnir Katia og Mariella Labeque sem leika í fyrsta sinn á Íslandi, en þær eru af mörgum taldar fremsta pían­ódúó síð­ustu 30 ára.

Tákn

Hvar? Þak Arn­ar­hvols
Hvenær? til 1. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Tákn er verk eftir Stein­unni Þór­ar­ins­dóttur sem sett er upp á þaki Arn­ar­hvols við Ing­ólfs­stræti í Reykja­vík í til­efni af ári listar í almanna­rými. Steinunn hefur unnið að fígúra­tífum skúlp­túr frá byrjun fer­ils síns fyrir fjórum ára­tugum. Fígúrur hennar eru kyn­laus tákn mennsk­unnar. Verk Stein­unnar hafa frá upp­hafi tengst íslenskri nátt­úru sterkum böndum. Samtal manns­ins við nátt­úr­una, umhverfi sitt og sam­fé­lagið er leið­ar­stef í list hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár