Vilja ekki gistiskýli á Granda

Eigendur fast­eigna kæra nýtt gisti­skýli og vilja ekki að heim­il­is­lausir menn með vímu­efna­vanda dvelji á svæði með spenn­andi veit­inga- og versl­un­ar­starf­semi.

Vilja ekki gistiskýli á Granda

Nokkrir eig­endur fast­eigna á Granda hafa kært starf­rækslu gisti­skýlis fyrir heim­il­is­lausa á svæð­inu til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. Frétta­blaðið greinir frá.

Í nóv­em­ber sam­þykkti borg­ar­ráð kaup á hús­næði við Granda­garð sem notað verður sem gisti­skýli fyrir unga heim­il­is­lausa karl­menn í veru­legum vímu­efna­vanda. Gisti­skýlið mun rúma 15 manns og vera opið frá klukkan 17 síð­degis til 10 á morgn­ana.

Eigendur fast­eign­anna krefj­ast ógild­ingar á leyfi fyrir inn­rétt­ingu gisti­skýl­is­ins þar sem það sam­ræm­ist hvorki skipu­lags­á­ætl­unum né lóð­ar­leigu­samn­ingi. Borgin mót­mælir því á þeim for­sendum að um þjón­ustu­starf­semi sé að ræða.

Í kærunni er fjallað um að svæðið vaxi hratt, sé nýtt undir spenn­andi veit­inga- og versl­un­ar­starf­semi, auk hönn­un­ar­vinnu og nýsköp­unar. Veru­legum áhyggjum er lýst yfir því að gisti­skýli hamli frek­ari þróun og upp­bygg­ingu þar og vísað er til þess að það sé sér­stak­lega ætlað þeim sem neiti vímu­efna í æð. „Ljóst er að slíkum hópi manna munu fylgja ýmiss konar félags­leg vanda­mál sem munu koma harka­lega niður á þeirri starf­semi sem nú blómstrar á svæð­inu,“ segir í kærunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár