Bankarnir högnuðust um 10 milljarða á fyrsta ársfjórðungi

Hagnaður við­skipta­bank­anna þriggja var minni en í fyrra og munar þar um gjald­þrot WOW air og tapað dóms­mál dótt­ur­fé­lags Arion banka.

Bankarnir högnuðust um 10 milljarða á fyrsta ársfjórðungi

Við­skipta­bank­arnir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, högn­uð­ust sam­tals um 10,4 millj­arða króna á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins. Hagn­að­ur­inn dregst saman miðað við sama tíma­bil í fyrra, þegar bank­arnir högn­uð­ust um 12,1 millj­arð. Morg­un­blaðið greinir frá.

Sam­dráttur í afkomu Arion banka skýrir hluta af mun­inum. Upp­gjörið lit­ast af gjald­þroti WOW air, en bank­inn þurfti að afskrifa 222 millj­óna króna skulda­bréfa­eign sína á hendur félag­inu. Þá tap­aði Valitor, dótt­ur­fé­lag bank­ans, í máli sem Wikileaks höfð­aði gegn því í hér­aðs­dómi Reykja­víkur og þarf félagið að greiða 1,2 millj­arða króna í skaða­bætur.

„Hvað óreglu­lega liði varðar þá eru það einkum gjald­þrot WOW air og dóm­ur Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur í máli gegn Valitor sem hafa nei­kvæð áhrif á af­kom­una en sala bank­ans á hlut sín­um í Farice veg­ur upp á móti,“ segir Stefán Pét­urs­son, starf­andi banka­stjóri Arion banka.

Hagnaður Lands­bank­ans dróst einnig saman, úr 8,1 millj­arði króna á fyrsta fjórð­ungi 2018 í 6,8 millj­arða nú. Hagnaður Íslands­banka jókst milli ára, úr 2,1 millj­arði króna í 2,6 millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár