Palestínsk samtök hvetja Hatara til að draga sig úr Eurovision

Palest­ínsku sam­tökin PACBI beina orðum sínum sér­stak­lega til hljóm­sveit­ar­innar Hatara í yfir­lýs­ingu um Eurovision-keppn­ina í Tel Aviv. „Besta yfir­lýs­ingin um sam­stöðu er að hætta við að koma fram í aðskiln­að­ar­rík­inu Ísrael.“

Palestínsk samtök hvetja Hatara til að draga sig úr Eurovision

Palest­ínsk sam­tök sem beita sér fyrir snið­göngu á Ísra­els­ríki hvetja hljóm­sveit­ina Hatara til að draga sig úr loka­keppni Eurovision sem fram fer í maí.

Samtökin PACBI eru stofn­að­ilar að BDS-hreyf­ing­unni sem beitir sér fyrir marg­vís­legri snið­göngu á Ísrael með það að mark­miði að binda enda á her­setu Ísrael, koma á fullu jafn­rétti Palest­ínu­manna með ísra­elskan rík­is­borg­ara­rétt og rétti palest­ínskra flótta­manna til að snúa aftur til heim­kynna sinna. Samtökin segja Ísra­els­ríki reka aðskiln­að­ar­stefnu sem birt­ist meðal ann­ars í aðskiln­að­ar­múr­num á Vest­ur­bakk­anum.

„Palest­ínu­menn hvetja alla kepp­endur í Eurovision til að draga sig úr keppn­inni í aðskiln­að­ar­borg­inni Tel Aviv,“ segir í færslu sam­tak­anna á Twitter. „Þetta á sér­stak­lega við um íslensku kepp­end­urna Hatara, sem hafa lýst yfir stuðn­ingi við rétt­indi Palest­ínu­manna.“

Í yfir­lýs­ing­unni segja sam­tökin að lista­menn sem rjúfi snið­göng­una og spili í Tel Aviv þrátt fyrir áskor­anir Palest­ínu­manna geti ekki bætt upp fyrir skað­ann sem bar­átta Palest­ínu­manna fyrir mann­rétt­indum verði fyrir. „Þó við kunnum að meta stuðn­ing, þá getum við ekki þegið hann þegar honum fylgir gjörn­ingur sem ber­sýni­lega grefur undan frið­samri mann­rétt­inda­bar­áttu okkar. Besta yfir­lýs­ingin um sam­stöðu er að hætta við að koma fram í aðskiln­að­ar­rík­inu Ísrael.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár