Forseti NFMH gagnrýnir „tilefnislaus afskipti lögreglu“ af góðgerðastarfi nemenda – Rektor ánægður með vikuna

Steinn Jóhanns­son, rektor Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð, telur jákvætt að nem­endur veki athygli á mál­stað hæl­is­leit­enda. Hrafn­hildur Anna Hann­es­dóttir, for­seti nem­enda­fé­lags­ins, segir áhyggju­efni að lög­reglan hafi afskipti af góð­gerða­starfi nem­enda að til­efn­is­lausu.

Forseti NFMH gagnrýnir „tilefnislaus afskipti lögreglu“ af góðgerðastarfi nemenda – Rektor ánægður með vikuna

Hrafn­hildur Anna Hann­es­dóttir, for­seti Nem­enda­fé­lags Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð, segir áhyggju­efni að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi afskipti af góð­gerða­starfi nem­enda í skól­anum að til­efn­is­lausu. „Við vorum mjög hissa og hefðum aldrei búist við því að lög­reglan færi að skipta sér af góð­gerða­vik­unni sem við höfðum skipu­lagt,“ segir hún í sam­tali við Stundina.

Kvenna­blaðið greindi frá því á dög­unum að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði hringt í rektor MH vegna við­burðar í góð­gerða­viku nem­enda­fé­lags­ins þar sem afganskir flótta­menn komu í heim­sókn og sögðu sögu sína. Fram kom að Steinn Jóhanns­son rektor hefði tekið nem­endur tali og greint frá því að lög­regla hefði spurt hvort hvatt hefði verið til „ólög­legra mót­mæla“ á við­burð­inum. 

„Ég fékk fyr­ir­spurn frá lög­reglu sem ég svar­aði,“ segir Steinn í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Um leið leið­rétti ég mis­skiln­ing sem var í gangi um hvort nem­endur hefði verið hvattir til ólög­legra mót­mæla.“ Hann segir að for­eldri hafi haft sam­band við lög­regl­una og haft áhyggjur af því að barnið sitt hefði verið hvatt til slíkra mót­mæla. „Þann mis­skiln­ing leið­rétti ég.“ 

Hrafn­hildur Anna segir að stjórn nem­enda­fé­lags­ins og góð­gerða­ráð skól­ans taki virkan þátt í stuðn­ingi við flótta­fólk. „Stór hluti þeirra sem mót­mælt hafa á Aust­ur­velli eru MH-ingar. Það er gríð­ar­leg sam­heldni og sam­kennd meðal nem­enda gagn­vart flótta­fólki og lög­reglan breytir því ekki með svona afskiptum,“ segir hún. 

„Það er gríð­ar­leg sam­heldni og sam­kennd meðal nem­enda gagn­vart flótta­fólki og lög­reglan breytir því ekki með svona afskiptum“

Rektor segir góð­gerða­vik­una hafa verið vel heppn­aða. „Mér finnst jákvætt að nem­endur skól­ans hafi í góð­gerð­ar­viku vakið athygli á mál­stað hæl­is­leit­enda og látið gott af sér leiða, m.a. með mat­ar­gjöfum til þeirra,“ segir Steinn og bætir við: „Ég hefði svo sann­ar­lega viljað sjá það jákvæða dregið fram um þessa vel heppn­uðu viku okkar.“ 

Að sögn Hrafn­hildar er þjóð­fé­lags­gagn­rýni fyr­ir­ferða­mikil meðal MH-inga þessa dag­ana. Aðspurð hvort nem­endur taki virkan þátt í lofts­lags­verk­föllum á föstu­dögum segir hún:  „Já, skól­inn tæm­ist bók­staf­lega í hádeg­inu á föstu­dögum meðan strætó­leið 13 fyllist, beint úr MH á Lækj­ar­torg.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár