Fangar listarinnar

Hræódýr lítil mynd nær því að verða skemmti­legri og fyndn­ari en margar dýr­ari.

Fangar listarinnar

Þú vaknar í litlu loft­lausu her­bergi, vinnu­að­stæð­urnar eru skelfi­legar, öll tæki og tól eru af skornum skammti og þú átt lík­lega ekki eftir að fá neitt borgað fyrir vinn­una.

Þetta gæti verið ágætis lýs­ing á ótal óháðum lista­verk­efnum með enga styrki – nema hér kemur örlít­ill grund­vall­ar­munur: þér hefur verið rænt. Það ger­ist fyrir fimm íslenska lista­menn í Taka 5, hræó­dýrri lít­illi mynd sem er samt miklu skemmti­legri og fyndn­ari en margar miklu dýr­ari myndir – og merki­legt nokk, alveg jafn vel skotin og margar þeirra, en Hrund Atla­dóttir heldur þar á kamer­unni og mun vera fyrst íslenskra kvenna til að vera töku­maður á mynd í fullri lengd. Eitt skemmti­legt stíl­bragð er til dæmis hvernig heim­ur­inn er alltaf pínu­lítið skakkur þegar mann­fólkið er fjarri, víðu sveita­skotin sýna heim á skjön, eins og séð frá manni sem datt af baki eftir hesta­manna­mót. Önnur tækni­vinna er svo að lang­mestu leyti í höndum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár