Mikið um hatursorðræðu í aðdraganda mótmæla gegn hælisleitendum

Íslenska þjóð­fylk­ingin efnir til mót­mæla gegn hæl­is­leit­endum og íslenskir ras­istar kalla eftir ofbeldi gegn þeim.

Mikið um hatursorðræðu í aðdraganda mótmæla gegn hælisleitendum
Íslenska Þjóð­fylk­ingin mót­mælir flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum

Á Facebook-síðu Þjóð­fylk­ing­ar­innar rignir inn stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingum í formi hat­urs­fullrar orð­ræðu vegna fyr­ir­hug­aðra mót­mæla. Íslenska þjóð­fylk­ingin hefur boðað til „frið­sam­legra“ mót­mæla á morgun kl 13:00 á Aust­ur­velli og hyggst mót­mæla „því ofbeldi sem hæl­is­leit­endur og öfga­sam­tökin NO BORDERS sýndu íslensku sam­fé­lagi og lög­regl­unni okkar í vik­unni“. 

Á vef Þjóð­fylk­ing­ar­innar er einnig birt stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing til lög­reglu­yf­ir­valda í ljósi aðgerða hennar gagn­vart mót­mæl­endum.  „Í gær sáum við afleið­ingar þess að landa­mæri lands­ins eru opin upp á gátt sem er einnig afleið­ing af stjórn­ar­háttum gömlu úreltu flokk­anna síð­ast­liðin 30 ár á hið minnsta. Fólk sem hingað á ekk­ert erindi annað en að leggj­ast upp á vel­ferð­ar­kerfið beitti ofbeldi og hót­unum gagn­vart stjórn­völdum og lög­reglu á Aust­ur­velli.“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Í gær sáum við afleið­ingar þess að landa­mæri lands­ins eru opin upp á gátt“

Telur þjóð­fylk­ingin að varn­að­ar­orð sem fylk­ingin hefur haft uppi séu nú að ræt­ast. Herða þurfi landamæra­eft­ir­lit því ellegar muni ástandið versna. Kallar flokk­ur­inn eftir því að hæl­is­leit­endur séu sendir strax úr landi við komu þeirra til Kefla­víkur auk þess sem lagðar verði sektir á flug­fé­lög og Norrænu flytji þau fólk til lands­ins skil­ríkja­laust. Þá verðir hæl­is­leit­endur sem mót­mæla á Aust­ur­velli taf­ar­laust sendir úr landi „enda almanna­heill í húfi.“ 

Á Facebook-síðu Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar hrann­ast nú upp stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar og hat­urs­full ummæli vegna fyr­ir­hug­aðra mót­mæla. Helgi Helga­saon vara­for­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar segir á Facebook-síð­unni að það rað­ist inn beiðnir um að ger­ast félagi í Þjóð­fylk­ing­unni. 

„Þessir menn (flótta­menn) eru hvergi ánægðir því þetta eru rottur sem vilja bara fá allt upp í hend­urnar frítt og mat­inn líka. Burt með þetta sný­kju­lið af landi mínu!“ Þessi athuga­semd birt­ist við færslu manns sem spyr Þjóð­fylk­ing­una hvort almenn­ingur ætli að sætta sig við það að fámennur hópur hæl­is­leit­anda „her­taki Aust­ur­völl.“

„Þetta eru rottur sem vilja bara
fá allt upp í hend­urnar“

„Ef ég væri ekki á Spáni akkúrat núna, hefði ég mætt á Aust­ur­völl í gær­kvöld með prik fyrir flótta­manna-pakkið, og vel val­inn orð til þessa pakks sem eru Íslend­ingar, því ég skelf af reiði,“ ritar kona ein við aug­lýs­ingu um mót­mælin. 

Sama kona aug­lýsir mót­mælin á sinni eigin Facebook-síðu. Í einni færsl­unni spyr hún hvort „nið­ur­lægja“ eigi að íslenskt þjóð­fé­lag meira „með því að láta þetta hel­vítis útlenska pakk sofa á Aust­ur­velli“. Facebook-vinur hennar skrifar eft­ir­far­andi við færsl­una: „Það á nátt­úru­lega að skjóta þetta jafn­óðum og það kemur á Íslenska grund, ógeðs­legir krakkar, skítugar tíkur og illa inn­rættir karlar, skjóta þetta allt jafn­óðum. Þá hætta þau að koma, alla vega þetta dauða drasl sem búið er að skjóta.“ 

„Það á nátt­úru­lega að skjóta þetta jafn­óðum og það kemur á Íslenska grund“

Klukkan 14:29 sendi Þjóð­fylk­ingin frá sér yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla vegna hryðju­verka í Christchurch. Í þessu hryðju­verki er sak­laust fólk vegið í nafni brenglaðrar hug­mynda­fræði.“ Þjóð­fylk­ingin lýsir „ megnu ógeði og for­dæm­ingu á hryðju­verk­unum“ og vottar fórna­lömbum þeirra dýpstu samúð. 

Eins og Stundin fjall­aði um í morgun þurfti Vísir.is að loka fyrir ummæli undir frétt um hryðju­verkin vegna hat­urs­fullra við­bragða les­enda. Í athuga­semda­kerf­inu fögn­uðu nokkrir net­verjar því óspart að múslimar hefðu verið myrtir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár