„Börn hafa tjáningarfrelsi og persónuverndarlöggjöf er ekki ætlað að skerða það“

Haga­skóli hefur stöðvað tíma­bundið und­ir­skrifta­söfnun nem­enda til stuðn­ings skóla­systur sinni, Zainab Safari sem yfir­völd hyggj­ast senda úr landi ásamt fjöl­skyldu hennar, eftir kvörtun frá tveimur for­eldrum. Aðrir for­eldrar hafa lýst óánægju með það og telja inn­gripið gefa slæm skila­boð um tján­ing­ar­frelsi og lýð­ræði.

„Börn hafa tjáningarfrelsi og persónuverndarlöggjöf er ekki ætlað að skerða það“
Shahnaz, Zainab og Amil Skóla­fé­lagar Zainab hófu und­ir­skrifta­söfnun til að krefj­ast þess að hún yrði ekki send úr landi. Hún var stöðvuð tíma­bundið, vegna athuga­semda frá tveimur for­eldrum. Mynd: Davíð Þór

Margir hafa sett sig í sam­band við Ómar Örn Magn­ús­son, full­trúa kenn­ara í réttinda­ráði Haga­skóla, og hvatt til þess að nem­endur fái að halda áfram und­ir­skrifta­söfnun til stuðn­ings Zainab Safari, fjórtán ára nem­anda við skól­ann, móður hennar og tólf ára bróður.

Und­ir­skrifta­söfn­unin var stöðvuð af skóla­stjórn­endum vegna kvört­unar tveggja for­eldra. Nokkur umræða hefur skap­ast meðal for­eldra barna við skól­ann um hvaða skila­boð sé verið að senda börn­unum með þessu að því er varðar tján­ing­ar­frelsi, mann­rétt­indi og lýð­ræði. 

Annað for­eldrið sem kvart­aði vís­aði í per­sónu­vernd­ar­lög og taldi und­ir­skrifta­söfn­un­ina brjóta í bága við þau.

Þórður Sveins­son, skrif­stofu­stjóri lög­fræðis­viðs Per­sónu­verndar, segir að Per­sónu­vernd hafi ekki borist kvörtun vegna máls­ins og stofn­unin ekki fjallað um það form­lega. Hins vegar sé alveg ljóst að ekk­ert í lög­unum banni und­ir­skrifta­söfnun barna.

„Auðvitað sætir tján­ing­ar­frelsi barna ein­hverjum tak­mörk­unum í ljósi þess að þau eru börn og að for­eldrar hafa ákveðið for­ræði yfir högum þeirra og visst ákvörð­un­ar­vald í þeirra lífi. Að sama skapi er gert ráð fyrir því að börn hafi tján­ing­ar­frelsi og virða beri afstöðu og vilja þeirra, eftir því sem þau hafa aldur og þroska til. Þetta kemur fram í Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og í per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­inni er raunar tæpt á þessum sjón­ar­miðum,“ segir Þórður.

Hann bætir við að barna­sátt­mál­inn hafi verið lög­festur á Íslandi og ákvæði úr honum sett í barna­lög. Í 12. gr. sátt­mál­ans komi fram að aðild­ar­ríki skulu tryggja rétt barna til að láta skoð­anir sínar frjáls­lega í ljós. Í 13. gr. sé talað um rétt barn til að láta í ljós skoð­anir sínar, munn­lega, skrif­lega eða á prenti og í 14. gr. sé talað um að virða skuli rétt barns til frjálsrar hugs­unar, sann­fær­ingar og trúar. „Þannig að það er alveg ljóst að börn hafa tján­ing­ar­frelsi og per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf er ekki ætlað að skerða það eða afnema aðra lög­gjöf sem hefur það að mark­miði að standa vörð um mann­rétt­indi barna.“ 

Útlend­inga­stofnun og Kæru­nefnd útlend­inga­mála hafa synjað fjöl­skyld­unni um efn­is­lega með­ferð á Íslandi, á þeim grund­velli að þau hafi þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Þau eiga því yfir höfði sér að verða send aftur til Grikk­lands.

„Þannig að það er alveg ljóst að börn hafa tján­ing­ar­frelsi og per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf er ekki ætlað að skerða það.“

Síð­ast­lið­inn mánu­dag­inn hlýddu nem­enda­ráð, nem­enda­full­trúar og réttinda­ráð Haga­skóla á Zainab segja sögu sína. Fjöl­skyldan er frá Afganistan en var lengi búsett í Íran. Þaðan fóru þau afar erf­iða leið yfir til Tyrk­lands og eftir nokkrar til­raunir komust þau með báti til Grikk­lands. Þar var faðir barn­anna hand­tek­inn af landamæra­vörðum við kom­una til lands­ins. Hann var í haldi í mánuð. Eftir að honum var sleppt var hann í slæmu and­legu ástandi og hvarf loks fjöl­skyld­unni, sem veit ekki hvar hann er nið­ur­kom­inn í dag. Fjöl­skyldan lýsir lífi sem ein­kennd­ist af full­komnu von­leysi og erfið­i­leikum í Grikk­landi. Móðirin, Shahnaz, kom ein til Íslands með börnin.

Frásögn Zainab reyndi mjög á við­stadda og í kjöl­far hennar sendi réttinda­ráðið frá sér ályktun, þar sem fyr­ir­hug­aðri brott­vísun fjöl­skyld­unnar er mót­mælt harð­lega. Í réttinda­ráði sitja full­trúar 8., 9. og 10. bekkjar, eitt for­eldri, tveir kenn­arar og deild­ar­stjóri við skól­ann. Til­gangur ráðs­ins er að sjá til þess að allt starf í skól­anum taki mið af Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Samhliða álykt­un­inni settu nem­endur und­ir­skrifta­söfn­un­ina af stað. 

Á þriðju­dag fengu for­eldrar barna við skól­ann tölvu­póst svohljóð­andi:

Sælir kæru for­eldrar.

Að gefnu til­efni viljum við upp­lýsa ykkur um að nem­enda­fé­lag, nem­enda­full­trúar og réttinda­ráð skól­ans hafa tekið höndum saman og sett af stað und­ir­skrift­ar­söfnun til að mót­mæla brott­vísun skóla­systur í Hagskóla úr landi.

Réttinda­ráð skól­ans sendi frá sér ályktun sem hægt er að nálg­ast á vef skól­ans.( http://hagaskoli.is/alyktun-fra-rettindaradi-hagaskola/)

Undir bréfið skrifar Hildur Ein­ars­dóttir, aðstoð­ar­skóla­stjóri Haga­skóla. Daginn eftir að und­ir­skrifta­söfn­unin var sett af stað var hún hins vegar stöðvuð, vegna athuga­semda tveggja for­eldra við skól­ann.

Ómar Örn Magn­ús­son, kenn­ari við Haga­skóla, sem jafn­framt á sæti í réttinda­ráði Haga­skóla, segir að tekin hafi verið ákvörðun um stöðva und­ir­skrifta­söfn­un­ina tíma­bundið meðan grund­völlur athuga­semd­anna væri athug­aður. Von sé á skrif­legu áliti Umboðs­manns barna og Unicef í dag, þar sem hann eigi von á að stað­fest verði að börn­unum sé heim­ilt að safna und­ir­skrift­unum. Hann segir að ein ábend­ing­anna hafi snúið að því, að þar sem und­ir­skrifta­söfn­unin færi fram í nafni réttinda­ráðs, nem­enda­ráðs og nem­enda­full­trúa skól­ans, væri hún gerð í nafni Haga­skóla og að slíkt væri ólög­legt. Það væri hins vegar ekki rétt, hún sé í nafni nem­enda við skól­ann og þeim sé frjálst að tjá hug sinn með þessu móti.

Þá segir hann að gagn­rýnt hafi verið að áskor­un­inni væri beint almennt til stjórn­valda en ekki til kæru­nefndar útlend­inga­mála. 

Ómar Örn á von á að börnin hefji aftur und­ir­skrifta­söfnun strax í dag, þó ekki sé ljóst hvort haldið verði áfram með sömu lista, nýir búnir og safnað aftur, eða hvort und­ir­skrifta­söfn­unin verði á net­inu. „Við erum auð­vitað í ákveðnum kapp­hlaupi við tím­ann, þar sem fjöl­skyldan bíður brott­flutn­ings. En und­ir­skrifta­söfn­unin mun halda áfram, það kemur ekk­ert annað til greina í huga nem­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár